[Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Á þessum þræði geta meðlimir spjallborðsins sett fram allt sem tengist gerjun. Ennig spurt spurninga og fengið aðstoð frá öðrum meðlimum.
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

[Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by Hjalti »

Jólabjórinn kemur í bæinn!
Fimmtudaginn 12. nóvember verður jólabjórnum frá Ölvisholt Brugghúsi verða dreift á betri bari og veitingahús. Endað verður á Vínbarnum þar sem formleg sala hefst með pompi og prakt kl 19:30. Jólabjórinn verður fáanlegur í gleri og í mjög takmörkuðu magni á krana.

Allir bjórunnendur velkomnir.

Kveðja,
Valgeir Valgeirsson
Bruggmeistari
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by kristfin »

verður ekki hópferð.

hvað geturðu sagt okkur um bjórinn valli?

hvaða humlar og malt, stíll og soddan
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
User avatar
valurkris
Gáfnagerill
Posts: 262
Joined: 29. Jul 2009 06:47
Location: Kópavogur

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by valurkris »

Þá hefur maður eithvað til að hlakka til á afmælisdeginum sínum :D
Kv. Valur Kristinsson
User avatar
aki
Kraftagerill
Posts: 90
Joined: 8. Sep 2009 10:42

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by aki »

Dvergurinn og geitin... hlakka til að prófa hann.
Í gerjun: Ekkert
Á flöskum: ESB
Á teikniborðinu: Jólabjór
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by halldor »

aki wrote:Dvergurinn og geitin... hlakka til að prófa hann.
?
Plimmó Brugghús
User avatar
dax
Kraftagerill
Posts: 112
Joined: 1. Oct 2009 20:17
Location: Kópavogur
Contact:

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by dax »

Ég ætla að mæta, og reyna að plata bróður minn með og Hjört Kegger. :fagun:
Í gerjun: ekkert
Í lageringu á secondary: Sterkur S04
Á flöskum: ekkert
Á næstunni: eitthvað meira en EKKERT! :)
User avatar
dax
Kraftagerill
Posts: 112
Joined: 1. Oct 2009 20:17
Location: Kópavogur
Contact:

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by dax »

Hjalti wrote:Fimmtudaginn 12. nóvember verður jólabjórnum frá Ölvisholt Brugghúsi verða dreift á betri bari og veitingahús.
Hvaða barir og veitingahús eru það sem bjóða uppá slíkar unaðsveigar?
Í gerjun: ekkert
Í lageringu á secondary: Sterkur S04
Á flöskum: ekkert
Á næstunni: eitthvað meira en EKKERT! :)
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by halldor »

Ég ætla pottþétt að mæta.
Það væri gaman að sjá hversu margir Fágunarliðar ætla að mæta.
Plimmó Brugghús
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by halldor »

dax wrote:
Hjalti wrote:Fimmtudaginn 12. nóvember verður jólabjórnum frá Ölvisholt Brugghúsi verða dreift á betri bari og veitingahús.
Hvaða barir og veitingahús eru það sem bjóða uppá slíkar unaðsveigar?
Samkvæmt sölustjóra drykkjarsviðs Karls K. Karlssonar eru það m.a. Vínbarinn, íslenski barinn, enski barinn og Nýlenduverslun Hemma og Valda.
Hann bað okkur um að kíkja á http://www.freisting.is" onclick="window.open(this.href);return false; en ég sá ekkert þar sem tengist þessu eventi.
Ég mæli með því að mæta, þarna verður bjórinn víst smakkaður með hangiketi og eitthvað fleira sprell í gangi :skal:
Plimmó Brugghús
User avatar
dax
Kraftagerill
Posts: 112
Joined: 1. Oct 2009 20:17
Location: Kópavogur
Contact:

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by dax »

halldor wrote:Hann bað okkur um að kíkja á http://www.freisting.is" onclick="window.open(this.href);return false; en ég sá ekkert þar sem tengist þessu eventi.
Það er bara talað um vodka barþjónakeppini á fimmtudag á nasa á þessari síðu. Sá heldur ekki neitt um Jólabjór á Vínbarnum.
Í gerjun: ekkert
Í lageringu á secondary: Sterkur S04
Á flöskum: ekkert
Á næstunni: eitthvað meira en EKKERT! :)
Valli
Villigerill
Posts: 35
Joined: 20. May 2009 15:55

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by Valli »

aki wrote:Dvergurinn og geitin.
Ég held að einn af betri teiknurum CCP sárni mjög við það að íslenski jólasveininn hans skuli vera líkt við dverg.

Annars er Jólabjórinn í ár reyktur bock (geithafur á þýsku), létt kryddaður með negul.

Maltið í honum er reykt malt og munich malt í grunninn, svo carapils, caramunichII og caraaroma. Humlar eru first gold, celea (styrian goldings) og cascade. Gerið er SaflagerS-23.

Vona bara að sem flestir sjái sér fært að kíkja í bæinn á fimmtudaginn. Hafið augun opin fyrir gömlum traktor höktandi niður Laugaveginn, þar verður opinber jólabjórsútkeyrsluflutningatæki á ferð.
Valgeir Valgeirsson
Bruggmeistari
Borg Brugghús
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by halldor »

Valli wrote:
aki wrote:Dvergurinn og geitin.
Annars er Jólabjórinn í ár reyktur bock (geithafur á þýsku), létt kryddaður með negul.
Já ég var búinn að ná tengingunni með geitina :)
Ég fékk smá smakk hjá ykkur fyrir um mánuði síðan og get ekki beðið eftir að gæða mér á honum á Vínbarnum í kvöld.
Plimmó Brugghús
User avatar
dax
Kraftagerill
Posts: 112
Joined: 1. Oct 2009 20:17
Location: Kópavogur
Contact:

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by dax »

Meiriháttar bjór af suðurlandi!!! Jólabjór Ölvisholts er vel balanceaður reyktur bock, þó sætleikinn sé ekki í stóru hlutverki.

Inná facebookprófílnum hjá mér eru nokkrar myndir af jólasveinunnum að keyra niður Laugarveginn að afgreiða pantanir: http://facebook.com/daxarinn

kv,
-d
Í gerjun: ekkert
Í lageringu á secondary: Sterkur S04
Á flöskum: ekkert
Á næstunni: eitthvað meira en EKKERT! :)
User avatar
aki
Kraftagerill
Posts: 90
Joined: 8. Sep 2009 10:42

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by aki »

Sammála um jafnvægið. Reykta bragðið ekki yfirþyrmandi, en ég var að leita að negulnum (sem á að vera þarna samkvæmt miðanum) og fann hann ekki með mínum einföldu bragðlaukum.

Þetta með "dverginn og geitina" var meint á allravinsamlegasta hátt, enda fantaflottur miði. "Stormur í flösku" væri annað mögulegt gælunafn ;) .
Í gerjun: Ekkert
Á flöskum: ESB
Á teikniborðinu: Jólabjór
Valli
Villigerill
Posts: 35
Joined: 20. May 2009 15:55

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by Valli »

Ég þakka virkilega góðar viðtökur á jólabjórnum, við skemmtum okkur stórvel við opnunina.
Vil annars benda á að það gæti verið til eitthvað smotterí eftir á kút af jólabjórnum niðri á Vínbar fyrir þá sem sáu sér ekki fært að kíkja við á fimmtudaginn síðasta.
Valgeir Valgeirsson
Bruggmeistari
Borg Brugghús
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by Oli »

Valli wrote:Ég þakka virkilega góðar viðtökur á jólabjórnum, við skemmtum okkur stórvel við opnunina.
Vil annars benda á að það gæti verið til eitthvað smotterí eftir á kút af jólabjórnum niðri á Vínbar fyrir þá sem sáu sér ekki fært að kíkja við á fimmtudaginn síðasta.
Ég kíkti þar við á föstudagskvöld og þá var mér sagt að hann væri búinn!
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
Valli
Villigerill
Posts: 35
Joined: 20. May 2009 15:55

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by Valli »

Jæja, það er möguleiki á að Jólabjór 2009 fáist aftur á kút uppúr annarri vikunni í desember. Takmarkað magn af gleri verður að duga þangað til.
Valgeir Valgeirsson
Bruggmeistari
Borg Brugghús
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by Oli »

hvenær kemur hann í átvr?
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
hordurg
Villigerill
Posts: 48
Joined: 29. Oct 2009 15:57

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by hordurg »

Oli wrote:hvenær kemur hann í átvr?
Skv. reglum ÁTVR hefst tímabil jólabjóra þriðja fimmtudaginn í nóvember, svo von er á öllum jólabjórunum á fimmtudag og sennilega líka þessum :)
User avatar
karlp
Gáfnagerill
Posts: 305
Joined: 8. May 2009 00:27

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by karlp »

on tap: Nothing! new beer fridge in planning
gassing/maturing: bad beers growing up to maybe be good beers
Fermenting: nothing!
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by kristfin »

flottir. mikið djöfulli var sorglegt að missa af þessu. en svona var það, elsti grísinn fékk svínið og ekki var frá komist
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
Valli
Villigerill
Posts: 35
Joined: 20. May 2009 15:55

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by Valli »

Nú stendur til að endurtaka leikinn en bara í öðru sveitafélagi. Jólabjórinn kemur "heim" á Selfoss. Traktor og jólasveinar taka rúntinn og enda á Kaffi Krús um 20:30.

Vil líka benda á að Jólabjór 2009 fæst eingöngu til að byrja með í eftirfarandi ÁTVR verslunum Heiðrúnu, Kringlunni og á Selfossi, held ég hafi einhverstaðar áður minnst á mjög takmarkað magn til að byrja með.
Valgeir Valgeirsson
Bruggmeistari
Borg Brugghús
hordurg
Villigerill
Posts: 48
Joined: 29. Oct 2009 15:57

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by hordurg »

Er það satt sem ég heyri, að hann komi ekki í ríkið fyrir en í byrjun Des vegna þess að veitingastaðir hafa allir klárað bjórinn? :)
User avatar
valurkris
Gáfnagerill
Posts: 262
Joined: 29. Jul 2009 06:47
Location: Kópavogur

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by valurkris »

nei, ég fór áðan í kringluna og náði mér í einn til að smakka.

Og ég sagt að ég mun ná í fleiri eftir að hafa smakkað hann
Kv. Valur Kristinsson
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: [Tilkynning] Jólabjórinn kemur í bæinn

Post by Oli »

Ég gat ekki pantað hann á vefverslun Vínbúðarinnar í dag, ekki til þar :o , þarf víst að bíða lengur með að fá að smakka.
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
Post Reply