Hallur

Hér kynna meðlimir þessa spjallborðs sig sjálfir. Allir eru velkomnir í hópinn.
Post Reply
User avatar
hallur
Kraftagerill
Posts: 56
Joined: 16. Jun 2009 09:06
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Hallur

Post by hallur »

BJÓR!
Góðan dag ágætu fágunarlimir. Hann Sjonni benti mér á ykkur þar sem ég ætla að hefjast handa við að brugga bjór með honum. Hann hefur þegar hafist handa við fyrstu umferð. Hann sér um fyrri hlutann, þ.e.a.s. framleiðsluna en ég sé um drykkjuna... að einhverju leiti a.m.k.

Ég heiti Hallur og er milli starfa auk þess að vera lausamaður í rútubílaakstri, tölvukerfastjórnun, tónlistarmennsku og umboðsmennsku.

Ég prófaði að brugga fyrir 17 árum og það byrjaði vel en endaði jah... ætli ég segi ekki söguna bara.
Ég var að vinna í stórmarkaði sem fór allt í einu að selja einhverjar dollur með bjórgerðarefni. Vinnufélagi minn átti græjur en var ekki að nota þær þannig að ég fékk þær lánaðar. Ég þreif græjurnar hátt og lágt og fór svo nákvæmlega eftir leiðbeiningunum. Bætti við þeim sykri sem átti að bæta við og síðan setti ég aukalega slatta af sykri til viðbótar því það átti jú að nota þetta til að verða fullur. Svo henti ég þessu eftir kúnstarinnar reglum milli kúta... nema hvað ég var á þessum tíma helmingi latari en ég er í dag og nennti ekki alveg strax að færa á milli og það liðu nokkrir dagar. Þegar ég hafði lokið við að hella á milli og gera og græja þá átti þetta að standa eitthvað í viðbót og eins og í fyrra skiptið hafði letin talsvert að segja. Ég var svo sem ekkert á hrakhólum staddur með bjór á þeim tíma því félagi minn var alltaf í siglingum og reddaði mér Elefant bjór svo ég var ekkert að flýta mér með bruggið. Svo dældi ég hinum gullna miði á tandurhreinar flöskur, prentaði sér límmiða á flöskurinar (SÍÐU-HALLUR hét bjórinn). Svo lét ég þetta standa dágóðan tíma við stofuhita og rúmlega það... Svo kom að stóru stundinni. Ég hafði skellt einhverjum bjórum á Grolsch flöskur (þessar með flip-tappanum sem hægt er að loka aftur) og greip tvær og fór með þær inn í eldhús. Á þeim tíma bjó ég hjá foreldrum mínum. Ég horfði stoltum augum á flöskuna áður en ég opnaði. Ég lét síðan verða af því. Það næsta sem gerist er að ég stend uppi á eldhúsborði og er að þrífa loftið í eldhúsinu, sótbölvandi og urrandi. Ég hugsaði með mér að þetta hljóti að hafa verið eitthvert botnfall eða einhver hluti sem hefur skemmst. Það var mjög lítið eftir í flöskunni og eftir þrifin þá smakkaði ég það. Þetta var bara ekki sem best... Þetta var eiginlega alveg skelfilegt. En ég hugsaði með mér að fara með hina flöskuna til baka og ná í aðra sem væri pottþétt ekki úr sama hluta kútsins og flaskan sem endaði í loftinu. Og aftur inn í eldhús og aftur horft með stolti og aftur var loftið þrifið. Ég ákvað að láta þetta vera næstu 17 árin eða svo eða þar til nú. En nú er ég ekki einn að þessu og vona að við Sjonni þurfum ekki að þrífa loft eða veggi þegar flöskur verða opnaðar. Það er skemmst frá því að segja að afgangurinn af löguninni fyrir 17 árum var notuð í partýi þar sem keppt var í því hver gæti skotið lengst úr flösku... Það var illa lyktandi gras og gangstétt morguninn eftir og raunar næstu daga.
Gerjandi: ekkert
Þroskandi: ekkert
Smakkandi: ekkert
Drekkandi: lítið ... afsakið
Hugsandi: ALLT!!!
Hendandi: engu
User avatar
Andri
Undragerill
Posts: 621
Joined: 5. May 2009 23:56

Re: Hallur

Post by Andri »

Hef einu sinni þurft að þrífa loft, það var einmitt smá tilraun í gangi, skellti auka sykri í svona flip top flösku..
Í gerjun :
Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
User avatar
sigurjon
Kraftagerill
Posts: 142
Joined: 9. May 2009 01:38
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Hallur

Post by sigurjon »

Ég hef nú reyndar bruggað svona horbjóð, en hef ekki þurft að þrífa loft eftir. Getur verið að of mikill sykur hafi verið settur í eftirgerjun, eða að of hátt hitastig hafi verið á flöskunum?

Kv. Sjonni kúl
Gerjandi: Flat tire ale
Þroskandi: Mjöður
Smakkandi: Smje
Drekkandi: English bitter, hvítvín, Tripel
Hugsandi: Gerjað malt
User avatar
hallur
Kraftagerill
Posts: 56
Joined: 16. Jun 2009 09:06
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Hallur

Post by hallur »

Það er mjög líklegt... of mikill hiti, of langur tími og of mikill sykur... Ávísun á klúður.
Gerjandi: ekkert
Þroskandi: ekkert
Smakkandi: ekkert
Drekkandi: lítið ... afsakið
Hugsandi: ALLT!!!
Hendandi: engu
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Hallur

Post by Eyvindur »

Gæti líka verið sýking í flöskunni... Ýmislegt kemur til greina.

Allavega, velkominn.

Bara smá ábending: Mjöður er ekki bjór. Mjöður er gerjað hunangsvatn. Bara svo það sé á hreinu ;)
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Hallur

Post by Oli »

Eyvindur wrote:Bara smá ábending: Mjöður er ekki bjór. Mjöður er gerjað hunangsvatn. Bara svo það sé á hreinu ;)
Það er rétt að í dag köllum við gerjað hunangsvatn mjöð, en ég las reyndar einhversstaðar að á víkingatímum hafi menn notað orðið mjöð yfir marga áfenga drykki og þar með bjór/öl. Byggbjór sem menn brugguðu á þá var oft kallaður mjöður.

"Þór kvað:
Segðu mér það Alvís,
öll of rök fira
vörumk, dvergr, að vitir,
hve það öl heitir, er drekka alda synir,
heimi hverjum í?"

"Alvíss kvað:
Öl heitir með mönnum, en með ásum bjórr,
kalla veig vanir,
hreinalög jötnar, en í helju mjöð,
kalla sumbl Suttungs synir."

Alvís mál - Eddukvæði :beer:
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
sigurjon
Kraftagerill
Posts: 142
Joined: 9. May 2009 01:38
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Hallur

Post by sigurjon »

Gaman að fá svona komment Óli. Ekki dapurt að vísa í Eddukvæðin...

Kv. Sjonni
Gerjandi: Flat tire ale
Þroskandi: Mjöður
Smakkandi: Smje
Drekkandi: English bitter, hvítvín, Tripel
Hugsandi: Gerjað malt
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Hallur

Post by Oli »

hehe. svona í tilefni dagsins :beer:
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Hallur

Post by Eyvindur »

Mjög gott. Þetta kvæði verður að vera í hávegum haft.

Engu að síður finnst mér mikilvægt að gera greinarmun þarna á milli, því alls staðar í heiminum er talað um mjöð, eða mead, sem gerjað hunangsvatn.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Hallur

Post by Oli »

Ég er sammála því Eyvindur, í dag ættum við að gera greinarmun þarna á.
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
hallur
Kraftagerill
Posts: 56
Joined: 16. Jun 2009 09:06
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Hallur

Post by hallur »

ég biðst forláts á rangfærslum mínum en sagan stendur óhögguð þar sem leiðrétting hefur komið fram á þræðinum.
Gerjandi: ekkert
Þroskandi: ekkert
Smakkandi: ekkert
Drekkandi: lítið ... afsakið
Hugsandi: ALLT!!!
Hendandi: engu
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Hallur

Post by Oli »

Oli wrote:
"Þór kvað:
Segðu mér það Alvís,
öll of rök fira
vörumk, dvergr, að vitir,
hve það öl heitir, er drekka alda synir,
heimi hverjum í?"

"Alvíss kvað:
Öl heitir með mönnum, en með ásum bjórr,
kalla veig vanir,
hreinalög jötnar, en í helju mjöð,
kalla sumbl Suttungs synir."

Alvís mál - Eddukvæði :beer:

sé að ÖB notar þessa vísu á nýja þorrabjórnum Suttungasumbli :skal:
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
Post Reply