Rekstur og virðisaukaskattur.

Á þessum þræði geta meðlimir spjallborðsins sett fram allt sem tengist gerjun. Ennig spurt spurninga og fengið aðstoð frá öðrum meðlimum.
Post Reply
pritty
Villigerill
Posts: 2
Joined: 26. Aug 2010 12:59

Rekstur og virðisaukaskattur.

Post by pritty »

Góðan dag,
þekkir einhver hér hvort löglegt er að vera með fyrirtæki sem stendur í bruggun í tilraunaskyni.
Fá síðan vsk endurgreiddan af vörum tengdum brugginu ?
arnarb
Gáfnagerill
Posts: 242
Joined: 14. Jun 2009 22:30

Re: Rekstur og virðisaukaskattur.

Post by arnarb »

Sæll.
Ég tel að lögin séu skýr. Eingöngu aðilar með tilskilin leyfi mega brugga áfengi umfram 2.25%, hvort sem það er í tilraunaskyni eða öðrum tilgangi.
Arnar
Bruggkofinn
pritty
Villigerill
Posts: 2
Joined: 26. Aug 2010 12:59

Re: Rekstur og virðisaukaskattur.

Post by pritty »

Þannig ef ég ætla að brugga 2.2% pilsner í tilraunaskyni - þá er þetta leyfilegt ?

Vonandi fer ekkert úrskeiðis hjá mér ;)
arnarb
Gáfnagerill
Posts: 242
Joined: 14. Jun 2009 22:30

Re: Rekstur og virðisaukaskattur.

Post by arnarb »

Það er leyfilegt að brugga 2.25% og undir...vonandi fer EKKERT úrskeiðis hjá þér :beer:
Arnar
Bruggkofinn
User avatar
Andri
Undragerill
Posts: 621
Joined: 5. May 2009 23:56

Re: Rekstur og virðisaukaskattur.

Post by Andri »

Minnir að þú þarft að leggja til 500 þús kall í lágmarkshlutafé ef þú ætlar þér að stofna einkahlutafélag.
Held svo að þú þarft að fá menntaðann bruggmeistara og vottaða aðstöðu til að framleiða þetta þar sem þetta er drykkjarfang..
En eins og kom fram þá er þér heimilt að brugga upp að 2.25% en vonum bara að sykurflotvogin þín sé ekki biluð eins og okkar flestra ;)
Í gerjun :
Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Rekstur og virðisaukaskattur.

Post by hrafnkell »

Þarft ekkert endilega að stofna ehf.. Getur verið sf líka, og þá þarf ekkert hlutafé þar sem þú ert persónulega ábyrgur fyrir rekstrinum.
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Rekstur og virðisaukaskattur.

Post by Oli »

Andri wrote:Minnir að þú þarft að leggja til 500 þús kall í lágmarkshlutafé ef þú ætlar þér að stofna einkahlutafélag.
Held svo að þú þarft að fá menntaðann bruggmeistara og vottaða aðstöðu til að framleiða þetta þar sem þetta er drykkjarfang..
En eins og kom fram þá er þér heimilt að brugga upp að 2.25% en vonum bara að sykurflotvogin þín sé ekki biluð eins og okkar flestra ;)
Þú þarft ekki að leggja til 500 þús í beinhörðum peningum, stofnar félagið, það kostar sitt og sá kostnaður fer inn í hlutaféð. Svo leggur maður til bruggbúnaðinn líka sem er náttúrulega 500 þús kr virði ;)
hrafnkell wrote:Þarft ekkert endilega að stofna ehf.. Getur verið sf líka, og þá þarf ekkert hlutafé þar sem þú ert persónulega ábyrgur fyrir rekstrinum.
...og greiðir bara hagnað út í sf, minnsta skattlagningin þannig.
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: Rekstur og virðisaukaskattur.

Post by halldor »

Andri wrote:Held svo að þú þarft að fá menntaðann bruggmeistara og vottaða aðstöðu til að framleiða þetta þar sem þetta er drykkjarfang..
Ertu viss um þetta með menntaðan bruggmeistara? Mig minnir að eitthvað eitt íslensku brugghúsana sé ekki með neinn bruggmeistara í vinnu.
Plimmó Brugghús
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Rekstur og virðisaukaskattur.

Post by Eyvindur »

Ég held að til þess að gera þetta þyrftirðu að vera með heilbrigðisvottun af einhverju tagi (þótt ég viti það í raun ekki).

Hins vegar veit ég að þú færð ekki vsk endurgreiddan nema vera með hagnað. Þannig að þú getur ekki gert þetta út í bláinn - þú verður að vera með einhverja starfsemi sem þú getur sannað að tengist þessum vörum svo þetta gangi upp.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Post Reply