Kassar undir flöskurnar

Á þessum þræði geta meðlimir spjallborðsins sett fram allt sem tengist gerjun. Ennig spurt spurninga og fengið aðstoð frá öðrum meðlimum.
Post Reply
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Kassar undir flöskurnar

Post by Idle »

Rakst á þessa fínu kassa í Rúmfatalagernum undir allar flöskurnar. Stór og djúpur, á hjólum og auðvelt að stafla þeim. 1.395 kr. finnst mér ekki mikið fyrir svona grip. Get komið um á milli 40 og 50 flöskum í einn (330 og 500 ml í bland) ef ég læt þar standa. Fín vörn gegn flöskusprengjum líka. :)
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
Classic
Gáfnagerill
Posts: 318
Joined: 18. Feb 2010 21:14
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Kassar undir flöskurnar

Post by Classic »

Ég var einmitt að þvælast þarna um daginn, reyndar í leit að allt öðru, en rakst á þennan gaur, finnst hann alveg eðal undir hluti eins og slöngur og sleifar og syphonrör og þvíumlíkt, allt svona langt og mjótt. Reyndar er ég svo smátækur að ég næ að geyma allt smádót (mæla, tappa, hettur, föndurefni fyrir miðana og örugglega eitthvað sem ég er að gleyma) tengt brugginu í honum líka.
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi
anton
Gáfnagerill
Posts: 248
Joined: 10. Jun 2010 00:06

Re: Kassar undir flöskurnar

Post by anton »

Eina leiðinlega er að þeir eru með opið inn í kassan hjá hjólunum sem heldur þeim ekki þéttum.... Svo er líklega betra að hafa kassana ekki glæra? Upp á að ljósið komist ekki að veigunum?

Það er hægt að kaupa glæra plastpoka í rekstrarvörum, 100 gaurar á rúllu minnir mig, sem er svona að stærð eins og hálfur svartur poki, sem hægt er að "fóðra" passandi pappakassa með og raða bjórnum þar ofaní. Þá sér pappakassinn um að halda ljósinu og rykinu frá og pokinn myndi grípa það sem gæti lekið úr flösku...

En ég á einmitt hálfa geymsluna af svona kössum, reyndar því miður ekki fulla af bjór, en öðru dóti og þeir eru mjög góðir til síns brúks, semsagt eina sem er pirrandi er að þeir mættu vera þéttari.
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Kassar undir flöskurnar

Post by Idle »

Kassarnir sem ég vísaði í og keypti eru þéttir að undanskildum sex litlum "loftgötum" í beinni línu eftir miðju lokinu. Hjólin eru smellt undir og þar eru engin göt. Annars geymi ég alltaf bjórinn á dimmum stað, og sjaldnast í kössum - þar til nú. Nota brúnar flöskur eingöngu, og þá skipta sól og flúrljós engu máli, eða a. m. k. afar litlu.
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
anton
Gáfnagerill
Posts: 248
Joined: 10. Jun 2010 00:06

Re: Kassar undir flöskurnar

Post by anton »

ok, þá tek ég til baka að eigi svona kassa, því mínir eru með götum á botninum líka
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Kassar undir flöskurnar

Post by Eyvindur »

Idle wrote:þá skipta sól og flúrljós engu máli, eða a. m. k. afar litlu.
Reyndar eyðileggur ljós bjórinn líka þótt hann sé í brúnum flöskum. Það tekur bara lengri tíma. Ég myndi ekki bjóða í að hafa brúna flösku lengi í beinu sólarljósi.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Kassar undir flöskurnar

Post by Idle »

Eyvindur wrote:
Idle wrote:þá skipta sól og flúrljós engu máli, eða a. m. k. afar litlu.
Reyndar eyðileggur ljós bjórinn líka þótt hann sé í brúnum flöskum. Það tekur bara lengri tíma. Ég myndi ekki bjóða í að hafa brúna flösku lengi í beinu sólarljósi.
Ég lít á það sem almenna skynsemi að geyma ekki bjór undir beinu sólarljósi til lengri tíma. ;) En vissulega var þetta óvarlega orðað, og auðvelt að misskilja. :)
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Kassar undir flöskurnar

Post by Eyvindur »

Skynsemi er ekkert voðalega almenn. ;)
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Post Reply