Yfirleitt gerjum við strákarnir í 2 vikur í primary, fleytum svo yfir á nýja fötu og setjum hana í aðeins kaldara umhverfi (12-15°C) í 1-2 vikur til að hjálpa til við að fella gerið. Við höfum reyndar lent í því þegar við secondary-um við of kalt hitastig (1°C), í of langan tíma að það komi niður á kolsýrunni þar sem of lítið ger fer í flöskurnar til að búa til kolsýru.Höddi birkis wrote:Takk fyrir þetta strákar, en halldór, nei ég er ekki að hella, ég er með hævert slöngu til að færa á milli:) það er nú ekki komið að þessu strax hjá mér, en svo ég skilji ykkur rétt, ef ég set í secondary og svo í átöppunar fötuna þegar þar að kemur ætti ég að sitja eftir með tæran bjór? eða svo til tæran?
Þegar það kemur að því að setja bjór á flöskur, þá er mjög gott að skilja mestalla gerkökuna eftir í gerjunarílátinu, "sleppa grugginu".Sleipnir wrote:Mælið þið með því á einhverju stigi að sía grugg sem myndast frá? Ég á þétta olíusíu en þori ekki að nota hana hef á tilfinningunni að hluti af "grugginu" sé beinlínis ætlað að vera í gerjuninni til að fá bragð. Kannski hentar þetta alveg í lokin þegar kemur að áfyllingu?
Kv.
Sigurður
Ég er ekki alveg að skilja spurninguna, græjur til að gera hvað?Sleipnir wrote:Jú jú ég var að spá í þetta fínasta og það sem vill alltaf koma með. En svona aukreytis hvaða græjur mæla menn með? Ég er með þessa týpísku þar sem er slanga sem maður blæs í til að fá þrýsting í kútinn.
Er það rétt hjá mér að slangan sem blásið er í opnist ofan í kútinn? Ef svo er, og ef þú blæst í hana, þá fer úrvals gerlagróður með hverjum blæstri niður í kútinn og sýking er gulltrygg.Sleipnir wrote:yfirfallslangan sem ég er með er þannig að ég þarf að sjúga úr slöngunni. Ef kúturinn er með rétt gat get ég blásið í aðra slöngu sem liggur oní og myndað þrýsting í kútnum og þá fleytist yfir. Hef séð á netinu græjur með pumpu efst, hef aldrei séð það í ámunni, spurning hvort það fáist yfirhöfuð á íslandi.
bottom line, ég þarf betri slöngu til að fleyta yfir.
Hér er listi yfir vefverslanir (og fleira): http://fagun.is/viewtopic.php?f=2&t=18" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;Sleipnir wrote:Já það er þannig, er líka skíthræddur við þetta. Þetta er slanga einsog bæði áman og vínkjallarinn eru að selja hef aldrei séð neitt annað frá þeim.
Kjallarinn er allavega ekki með þetta á netinu, en ég ætla að kíkja í ámuna á eftir. Er einhversstaðar til listi þar sem menn hafa tekið saman helstu söluaðila á netinu?
Fann reyndar eina verslun sem selur autosyphon en mér vantar fleira dót sem þeir voru ekki með svo ég þarf helst að finna aðra verslun.
Kv.
Siggi