Bottnfall??

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
Post Reply
User avatar
Höddi birkis
Kraftagerill
Posts: 81
Joined: 1. Jun 2010 09:08

Bottnfall??

Post by Höddi birkis »

Sælir bruggarar, langar að byrja á að þakka fyrir frábæra síðu:) anyway, ég hef verið að spá mikið í því hvernig hægt sé að losna við gerkökuna, hefur einhver prufað td að fleyta yfir í aðra tunnu í gegnum vel sótthreinsaðan nælonsokk eða einhverskonar síu? eða útbúa bruggfötu sem væri kónlaga á bottninum með krana sem væri hægt að skrúfa frá og hleypa kökunu niður áður en tappað er á flöskur? langar mikið að gera tilraunir með þetta, endilega komið með comment:)
Í gerjun: Coopers lager.
Framundan American pale ale og(fyrsti AG) Epplavín og Jóla glögg.
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Bottnfall??

Post by Eyvindur »

Maður losnar við gerkökuna með því að fleyta yfir. Sokkur er algjör óþarfi. Það er hægt að kaupa mjög dýr conical gerjunarílát (mini útgáfa af þeim sem eru notuð í brugghúsum), ef menn vilja fara alla leið með þetta, en kostnaðurinn er talsverður.

Ef þú ert að hugsa um einhverja síun erum farnir að tala um flóknari mál. Þá þarftu að vera með kúta til að hleypa kolsýru á (þar sem gerið sér annars um að mynda kolsýruna), og ferlið verður allt svolítið flóknara.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: Bottnfall??

Post by halldor »

Ohh... ég var búinn að skrifa svar en Eyvindur svaraði í millitíðinni... hér kemur það engu að síður:

Lang einfaldast er að gera það sem flestir hér gera, sem er að nota slöngu til að fleyta á milli og passa sig á að taka sem minnst af gerkökunni með. Autosyphon er klárlega málið http://www.northernbrewer.com/default/a ... -5-16.html" onclick="window.open(this.href);return false; . Þú færð svoleiðis í Ámunni á undir 4000 kr.
Það eru skiptar skoðanir hér með að setja í "secondary". Ég set yfirleitt í secondary ef ég ætla að láta bjórinn sitja í meira en 3 vikur án þess að tappa á. Gallarnir eru að þú átt á hættu að fá sýkingu í bjórinn (og þetta tekur 5 mínútur af lífi þínu) en kostirnir þeir að þú minnkar líkurnar á að fá óbragð úr gerinu í bjórinn og ef rétt er staðið að þessu ættirðu að enda með tærari bjór en ella þar sem þú ert ekki að fá neitt af gerkökunni í flöskurnar þegar þú ert búinn að fleyta bjórnum úr secondary yfir í átöppunarfötuna.

Ég vona að ég sé ekki að misskilja þig eða tala eitthvað barnamál, en ert þú að hella á milli fata núna? þ.e. ertu ekki að nota slöngu til að fleyta á milli? Ef svo er þá áttu á hættu að bjórinn þinn skemmist fljótt þar sem hann kemst í snertingu við mikið súrefni þegar hellt er úr einni fötu í aðra.

Draumurinn er að eignast kónískan gerjunartank þannig að maður geti "sett í secondary" með einu handtaki :fagun:
En það er bara svo djöfulli dýrt að flytja þá til landsins.
Plimmó Brugghús
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Bottnfall??

Post by hrafnkell »

Mig dauðlangar einmitt líka í kónískan gerjunartank :) Það hlýtur að vera hægt að finna eitthvað sem er hægt að mixa hér einhversstaðar á landinu...
User avatar
Höddi birkis
Kraftagerill
Posts: 81
Joined: 1. Jun 2010 09:08

Re: Bottnfall??

Post by Höddi birkis »

Takk fyrir þetta strákar, en halldór, nei ég er ekki að hella, ég er með hævert slöngu til að færa á milli:) það er nú ekki komið að þessu strax hjá mér, en svo ég skilji ykkur rétt, ef ég set í secondary og svo í átöppunar fötuna þegar þar að kemur ætti ég að sitja eftir með tæran bjór? eða svo til tæran?
Í gerjun: Coopers lager.
Framundan American pale ale og(fyrsti AG) Epplavín og Jóla glögg.
User avatar
Höddi birkis
Kraftagerill
Posts: 81
Joined: 1. Jun 2010 09:08

Re: Bottnfall??

Post by Höddi birkis »

Já það hlítur að vera hægt að mixa einhvern sniðugan tank... held að málið sé bara að demba sér í tilraunir;)
Í gerjun: Coopers lager.
Framundan American pale ale og(fyrsti AG) Epplavín og Jóla glögg.
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: Bottnfall??

Post by halldor »

Höddi birkis wrote:Takk fyrir þetta strákar, en halldór, nei ég er ekki að hella, ég er með hævert slöngu til að færa á milli:) það er nú ekki komið að þessu strax hjá mér, en svo ég skilji ykkur rétt, ef ég set í secondary og svo í átöppunar fötuna þegar þar að kemur ætti ég að sitja eftir með tæran bjór? eða svo til tæran?
Yfirleitt gerjum við strákarnir í 2 vikur í primary, fleytum svo yfir á nýja fötu og setjum hana í aðeins kaldara umhverfi (12-15°C) í 1-2 vikur til að hjálpa til við að fella gerið. Við höfum reyndar lent í því þegar við secondary-um við of kalt hitastig (1°C), í of langan tíma að það komi niður á kolsýrunni þar sem of lítið ger fer í flöskurnar til að búa til kolsýru.

Ertu að nota Irish Moss? Ef ekki þá mæli ég með því að þú gerir það ef þú vilt tærari bjór.
Þú færð Irish Moss (eða fjörugrös) í Heilsuhúsinu.
Plimmó Brugghús
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Bottnfall??

Post by Eyvindur »

Ég nota nánast aldrei secondary, og hef aldrei lent í skýjuðum bjór nema í mesta lagi smá chill haze (sem tengist gerinu ekki neitt). Það er mýta að gerkakan geri bjórinn skýjaðari - í mesta lagi fær maður aðeins meira botnfall í flöskurnar (en ég hef reyndar ekki séð neinn mun á því hvort sem ég nota secondary eða ekki).
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Sleipnir
Kraftagerill
Posts: 58
Joined: 8. Nov 2010 20:25

Re: Bottnfall??

Post by Sleipnir »

Mælið þið með því á einhverju stigi að sía grugg sem myndast frá? Ég á þétta olíusíu en þori ekki að nota hana hef á tilfinningunni að hluti af "grugginu" sé beinlínis ætlað að vera í gerjuninni til að fá bragð. Kannski hentar þetta alveg í lokin þegar kemur að áfyllingu?
Kv.
Sigurður
anton
Gáfnagerill
Posts: 248
Joined: 10. Jun 2010 00:06

Re: Bottnfall??

Post by anton »

Ég held að það sé margt í mörgu og gerið skilar sér mismunandi vel niður í botnin í gerkökuna, sem dæmi.
Ég var að fleyta bjór gerjuðum með S04, gerkakan var límd við botninn og ég náði að hiverta allan bjórinn yfir í áfyllingarfötuna án þess að það vottaði fyrir hinu minnsta gruggi.

Svo var annar bjór með US05 gerinu og þar var gerkakan lausari í sér.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Bottnfall??

Post by sigurdur »

Sleipnir wrote:Mælið þið með því á einhverju stigi að sía grugg sem myndast frá? Ég á þétta olíusíu en þori ekki að nota hana hef á tilfinningunni að hluti af "grugginu" sé beinlínis ætlað að vera í gerjuninni til að fá bragð. Kannski hentar þetta alveg í lokin þegar kemur að áfyllingu?
Kv.
Sigurður
Þegar það kemur að því að setja bjór á flöskur, þá er mjög gott að skilja mestalla gerkökuna eftir í gerjunarílátinu, "sleppa grugginu".
Ég myndi ekki sía þetta í burtu, því ef þú notar góða tækni við að flytja bjórinn úr gerjunarílátinu, þá kemur ekkert grugg með.

Þó maður sjái það ekki með berum augum, þá er ger í bjór þó að hann virðist kristaltær. Það dugar þegar það kemur að áfyllingu.
Sleipnir
Kraftagerill
Posts: 58
Joined: 8. Nov 2010 20:25

Re: Bottnfall??

Post by Sleipnir »

Jú jú ég var að spá í þetta fínasta og það sem vill alltaf koma með. En svona aukreytis hvaða græjur mæla menn með? Ég er með þessa týpísku þar sem er slanga sem maður blæs í til að fá þrýsting í kútinn.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Bottnfall??

Post by sigurdur »

Sleipnir wrote:Jú jú ég var að spá í þetta fínasta og það sem vill alltaf koma með. En svona aukreytis hvaða græjur mæla menn með? Ég er með þessa týpísku þar sem er slanga sem maður blæs í til að fá þrýsting í kútinn.
Ég er ekki alveg að skilja spurninguna, græjur til að gera hvað?
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Bottnfall??

Post by kristfin »

þegar allt kemur til alls, er það þolinmæði og tækni sem skilar manni hreinum bjór.

meðan maður er að ná henni upp, þá er flott að nota ger sem fellur vel niður, eins og nottingham.

þegar virtinn soðinn, ná whirlpool með kælingunni, bíða eftir að virtinn nái gerjunarhita, og hívera bjórinn úr pottinum og reyna að skilja sem mest eftir.

leyfa bjórnum að gerjast í 1-3 vikur og hívera í flöskufötu, og þaðan á flöskur.

ef það áberandi mikið grugg, er hægt að hívera í secondary, taka 2-3 vikur þar og síðan á flöskur.

einnig er hægt að kæla secondary (eða primary) vel níður síðustu dagana og láta botnfalla.
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
Sleipnir
Kraftagerill
Posts: 58
Joined: 8. Nov 2010 20:25

Re: Bottnfall??

Post by Sleipnir »

yfirfallslangan sem ég er með er þannig að ég þarf að sjúga úr slöngunni. Ef kúturinn er með rétt gat get ég blásið í aðra slöngu sem liggur oní og myndað þrýsting í kútnum og þá fleytist yfir. Hef séð á netinu græjur með pumpu efst, hef aldrei séð það í ámunni, spurning hvort það fáist yfirhöfuð á íslandi.
bottom line, ég þarf betri slöngu til að fleyta yfir.
kalli
Gáfnagerill
Posts: 440
Joined: 9. Jan 2010 09:43
Location: Hafnarfjörður

Re: Bottnfall??

Post by kalli »

Sleipnir wrote:yfirfallslangan sem ég er með er þannig að ég þarf að sjúga úr slöngunni. Ef kúturinn er með rétt gat get ég blásið í aðra slöngu sem liggur oní og myndað þrýsting í kútnum og þá fleytist yfir. Hef séð á netinu græjur með pumpu efst, hef aldrei séð það í ámunni, spurning hvort það fáist yfirhöfuð á íslandi.
bottom line, ég þarf betri slöngu til að fleyta yfir.
Er það rétt hjá mér að slangan sem blásið er í opnist ofan í kútinn? Ef svo er, og ef þú blæst í hana, þá fer úrvals gerlagróður með hverjum blæstri niður í kútinn og sýking er gulltrygg.

Ég keypti sjálfur Autosyphon sem er dreginn í sundur og ýtt saman einu sinni til tvisvar og þá dælist upp úr kútnum og flæði komið af stað. Ég flutti minn inn sjálfur en held að Áman og Vínkjallarinn séu komnir með þetta á lager. Ég mæli eindregið með þessu áhaldi.
Life begins at 60....1.060, that is.
Sleipnir
Kraftagerill
Posts: 58
Joined: 8. Nov 2010 20:25

Re: Bottnfall??

Post by Sleipnir »

Já það er þannig, er líka skíthræddur við þetta. Þetta er slanga einsog bæði áman og vínkjallarinn eru að selja hef aldrei séð neitt annað frá þeim.
Kjallarinn er allavega ekki með þetta á netinu, en ég ætla að kíkja í ámuna á eftir. Er einhversstaðar til listi þar sem menn hafa tekið saman helstu söluaðila á netinu?
Fann reyndar eina verslun sem selur autosyphon en mér vantar fleira dót sem þeir voru ekki með svo ég þarf helst að finna aðra verslun.
Kv.
Siggi
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Bottnfall??

Post by kristfin »

ef þú notar kolsýru getur þú dælt milli með þrýsting.

lang einfaldast (finnst mér) er að nota glærar slöngur og turkey baster til að starta flæðinu
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
kalli
Gáfnagerill
Posts: 440
Joined: 9. Jan 2010 09:43
Location: Hafnarfjörður

Re: Bottnfall??

Post by kalli »

Sleipnir wrote:Já það er þannig, er líka skíthræddur við þetta. Þetta er slanga einsog bæði áman og vínkjallarinn eru að selja hef aldrei séð neitt annað frá þeim.
Kjallarinn er allavega ekki með þetta á netinu, en ég ætla að kíkja í ámuna á eftir. Er einhversstaðar til listi þar sem menn hafa tekið saman helstu söluaðila á netinu?
Fann reyndar eina verslun sem selur autosyphon en mér vantar fleira dót sem þeir voru ekki með svo ég þarf helst að finna aðra verslun.
Kv.
Siggi
Hér er listi yfir vefverslanir (og fleira): http://fagun.is/viewtopic.php?f=2&t=18" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;
Sjálfur hef ég ma. keypt af Brouwland og eBay verslun hér: http://cgi.ebay.com/Auto-Siphon-1-2in-I ... 2a0cf6a05d" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;
Báðar verslanirnar eru með fullt af öðru bruggtengdu dóti.

Ég myndi kaupa 1/2" útgáfuna. Þá tekur fleytingin enga stund.
Life begins at 60....1.060, that is.
Sleipnir
Kraftagerill
Posts: 58
Joined: 8. Nov 2010 20:25

Re: Bottnfall??

Post by Sleipnir »

Takk fyrir allar upplýsingarnar.
Þið eruð frábær hópur, það stendur sko ekki á svörum og ráðleggingum.
Sama hversu fáránlegar spurningarnar eru.

Kv.
Siggi
Post Reply