Er nokkuð sem mælir mót því að nota heitt vatn frá krananum til að meskja með og skola? Hefur einhver prófað þetta?
Efnainnihald vatnsins er annað en þess kalda, en það ætti að vera hægt að fá upplýsingar um hvert það er. Mér dettur helst í hug að innihald brennisteins sé mikið en það gæti gufað upp við suðuna.
Ég hef heyrt um fólk sem finnst besta drykkjarvatnið vera heitt vatn sem kælt hefur verið niður.
Ef þetta er í lagi er hægt að skera dágóðan tíma og fyrirhöfn af bruggdeginum. Hitastig vatnsins er 75 stig hjá mér svo það þarf lítið að hita.
Ef þú ert með forhitara þá veit ég ekki um neitt sem að mælir gegn því. Með forhitun þá færðu hreint og tært heitt vatn.
Ef þú ert ekki með forhitara þá myndi ég bara slaka á .. ég nota tímann oft til að fá mér að borða, mala korn eða vigta allt sem að þarf fyrir daginn.
Oh nuna væri ég alveg til í cfc Það kemur alveg mega heitt vatn úr krönunum þar sem ég brugga, það myndi líklega spara dágóðan tíma að forhita kalda vatnið aðeins.
sigurdur wrote:Ef ykkur langar að hita vatnið hraðar, þá getið þið líka notað immersion kælispíral og keyrt heitt vatn í gegn um hann.
Þannig gerði ég þetta til að byrja með og það hjálpaði mikið.
Munið bara að taka hann upp úr þegar vatnið nær um 70°C hita, annars er hann farinn að tefja fyrir hitun.