Gerkaup í stokkhólmi

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
Post Reply
User avatar
BeerMeph
Gáfnagerill
Posts: 189
Joined: 18. Nov 2009 20:27

Gerkaup í stokkhólmi

Post by BeerMeph »

Ég náði að plata kærustuna mína til að fara í heimabruggsbúð að kaupa humla og ger á meðan hún er stödd í svíþjóð (Stokkhólmi).

Þar sem ég er ekki sérlega fróður um ölger þá vildi ég spyrja hvað af þessari síðu þið mynduð kaupa.

P.s. Þetta er allt á sænsku

http://www.pgw.se/index.php?cPath=153_159_132

Hvernig er svo málum háttað með að fara með humla og ger í gegnum tollinn á Íslandi?
Gerjun: Ekkert
Þroskun/Lagering: Ekkert.
Á flöskum: Raven Rock stout (idle), Blonde Ale, Jólaöl, Volgur Kölsch.
Á næstunni: Einfaldur hveiti.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Gerkaup í stokkhólmi

Post by sigurdur »

úff .. ég myndi kaupa allt .. en það myndi trúlega deyja hjá mér þar sem að ég næði ekki að nota það allt.

Athugaðu að þú þarft að útbúa ræsa (starters) til að keyra germagnið upp með þessu geri nema þú kaupir fleiri pakka af hverri tegund.

Ég myndi kaupa það ger sem að þú getur hugsað þér um að nota í náinni framtíð (næstu 1-2 mánuðina).

Þú þarft ekki nein sérstök leyfi fyrir þessar matvörur þannig að ég get ekki séð að það verði vandræði í tollinum.
User avatar
BeerMeph
Gáfnagerill
Posts: 189
Joined: 18. Nov 2009 20:27

Re: Gerkaup í stokkhólmi

Post by BeerMeph »

sigurdur wrote:úff .. ég myndi kaupa allt .. en það myndi trúlega deyja hjá mér þar sem að ég næði ekki að nota það allt.

Athugaðu að þú þarft að útbúa ræsa (starters) til að keyra germagnið upp með þessu geri nema þú kaupir fleiri pakka af hverri tegund.

Ég myndi kaupa það ger sem að þú getur hugsað þér um að nota í náinni framtíð (næstu 1-2 mánuðina).

Þú þarft ekki nein sérstök leyfi fyrir þessar matvörur þannig að ég get ekki séð að það verði vandræði í tollinum.
Ok hentugt þar sem ég var einmitt að lesa hvernig gera ætti starter
Gerjun: Ekkert
Þroskun/Lagering: Ekkert.
Á flöskum: Raven Rock stout (idle), Blonde Ale, Jólaöl, Volgur Kölsch.
Á næstunni: Einfaldur hveiti.
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Gerkaup í stokkhólmi

Post by Eyvindur »

Þú getur reyndar alveg geymt gerið í allt að ár í ísskáp, en þá þarftu að gefa því lengri tíma til að komast í gang í starter - byrja jafnvel smærra og trappa starterinn upp.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
dax
Kraftagerill
Posts: 112
Joined: 1. Oct 2009 20:17
Location: Kópavogur
Contact:

Re: Gerkaup í stokkhólmi

Post by dax »

Humlar eru dýrir á þessari síðu, en gerið á fínu verði sýnist mér í fljótu bragði.
Í gerjun: ekkert
Í lageringu á secondary: Sterkur S04
Á flöskum: ekkert
Á næstunni: eitthvað meira en EKKERT! :)
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Gerkaup í stokkhólmi

Post by kristfin »

ef þú kaupir ger væri ég mjög til í að stinga pinnanum mínum í þegar þú notar, svo við getum notað fyrir komandi kynslóðir.
ps eg legg til að þú fáir þér eitthvað gott hveitibjórsger :)
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Gerkaup í stokkhólmi

Post by Oli »

kristfin wrote:ps eg legg til að þú fáir þér eitthvað gott hveitibjórsger :)
Styð þá tillögu :D Fæ svo sýni hjá þér
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
BeerMeph
Gáfnagerill
Posts: 189
Joined: 18. Nov 2009 20:27

Re: Gerkaup í stokkhólmi

Post by BeerMeph »

Verð að hryggja ykkur hveitipervertana að því miður pantaði ég ekkert hveitibjórsger - ætlaði mér ekki að brugga hveitbjór (ekki mitt uppáhald en það gæti breyst) á næstunni en hefði hugsanlega keypt einn pakka ef ég hefði séð þetta fyrr :drunk:

Það sem ég pantaði var:
1xBrewers Ch. American Ale
1xBrewers Ch. British Ale
1xBrewers Choice German Ale
1xBrewers Choice Kölsh
1xBrewers Choice. Irish Ale
1xBrewers Choice. London Ale

Endilega látið vita ef einhver vill sýni af einhverju af þessu þá hendi ég á þá línu sem vilja þegar það fer í notkun :P
Gerjun: Ekkert
Þroskun/Lagering: Ekkert.
Á flöskum: Raven Rock stout (idle), Blonde Ale, Jólaöl, Volgur Kölsch.
Á næstunni: Einfaldur hveiti.
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Gerkaup í stokkhólmi

Post by kristfin »

mig langar að stinga í þetta allt saman held ég
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
Post Reply