Ég fór í vínkkjallarann í dag og lennti á spjalli við eigandann (held allavega að hann sé eigandinn) en allavega þá fóru þeir í vínkjallaranum til bretlands á dögunum til að athuga með bjórgerðarefni, bjórkit sem er með stærri dósum en coopers og kiti með tveimur dósum o.fl einnig voru þeir að skoða malt extract og korn.
Þeir hafa áhuga á að flytja inn korn ef að þeir eiga ekki eftir að sitja uppi með það, og þá er bara spurning um eftirspurn á korni því ef að hún er engin þá fara þeir ekki útí þetta.
er þettað ekki eithvað sem að menn er hrifnir af og munu níta sér, og ekki skemmir fyrir að fá aðeins meir úrval af korni.
http://www.muntons.com/" onclick="window.open(this.href);return false; þetta er fyrirtækið sem að er með kornið
Endilega að spjalla við vínkjallarann til að fá frekari upplýsingar um þetta mál
Þetta er ansi lítill markaður en ef þeir myndu flytja inn eitthvað annað en það sem Ölvisholt er með og gætu verið með svipuð verð eða betri þá væri maður náttúrulega til
Í gerjun : Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
Ég myndi ætla að þeir myndu stíla inná korn sem að eru ekki fáanleg hér, og miðað við það sem að hann sagði þá var stefnan sett á lægra verð en ÖB en það fer allt eftir því hversu dýrt er að flytja þetta inn
Held að þeirra besta gróðavon í bjórgerð sé að flytja inn DME og ger. Þeir gætu líka til að byrja með pantað nokkur all grain kit og sjá hvort þau seljist ekki.
Þeir þyrftu að vera mjög mikið ódýrari en ÖB ef ég ætti að fara að versla sömu hlutina þar og ég geri nú í Ölvisholti. Í mínum huga er þetta ekki bara spurning um verð, heldur aðallega good-will. Ölvisholtsmenn hafa verið okkur svakalega góðir, og ég vil launa þeim það á allan þann hátt sem ég get. Ég held að það væri langbest fyrir Vínkjallarann að panta eitthvað sem ekki fæst þar, þá eftir óskalista frá okkur, og svo betri extract/partial mash kit en fást hér í dag. Og auðvitað ger!
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Ég sendi vínkjallaranum email og spurðist fyrir um hvaða korn hann gæti boðið uppá og hvort að þeir þarna úti bæru með einhverja humla.
Einnig nefndi ég það að sennilega yrði lítið verslað af því sem að fáanlegt er frá ölvishollti
og að lokum spurði ég um ger.
þetta er svar hanns:
Sæll Valur
Ég get alveg skilið að þið viljið halda ykkur við Ölvishollt þar sem góð þjónusta er viðhöfð. Það myndi ég líka gera, og myndi ég einnig styðja viðleiti ykkur að halda því áfram. Ég mun þá reyna fá upplýsingar um það sem Muntons er með og sjá hvað annað áhugavert þeir eru með sem þið fáið ekki hjá Ölvisholti, og láta ykkur vita,
Ég skal spyrjast fyrir um það hvaða humla og hvaða ger þeir eru með. Við munum örugglega flytja inn malt extrakt í dósum og þurrdufti sem bætiefni í Coopers og Muntons. Svo sjáum við bara hverning þetta þróast.
Það væri gott að vita aðeins meira um þessi ger sem þið panntið, hvaðan og hversu mikið á ca 6 mánaða tímabili, því eitt fyrirtæki sem við kaupum frá framleiða aragrúfu að gerlum bæði öl-, lager- vodka- léttvíns- portvíns- og margar aðrar tegundir gerla. Þeir eru t.d. Með alveg rosalegan stóra markaðshlutfall vodka gerla í heiminum.
En varðandi bjórinn veit ég að Muntons selur mjög mikið af korni til Calsberg og Heineken og það sem þeir sögðu mér, er að þeir nota ekki erfðabreytt korn, það er eins með víngerðar efnin sem við fáum frá Canada.
Ég hefði áhuga að fara með ykkur austur næst þegar þið farið í heimsókn til Ölvisholt. Ég tel sammvinna vera nauðsýnleg, það er öllum til góðs þegar til lengri tíma er litið.
Bestu kveðjur Bernhard
Varðandi gerumræðuna er einhver sem að getur svarað því þarsem að ég er ekki nógu sjóaður í þessum málum og tel að aðrir hérna munu geta svarað þessu betur
Fyrir mína parta þá vil ég sjá Muntons ger og Muntons Malt extract. Ég myndi versla svoleiðis fyrir hvert einasta brugg
Jörvi Brauhaus
Að gerjast: Ekkert Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
Ég myndi kaupa allar týpur af Fermentis þurrgeri, þ.e. Safale, Safbrew og Saflager einnig myndi ég kaupa Danstar gerin; Windsor, Münich og Nottingham. Þá er upptalið það sem ég hef notað af þurrgeri.
Ég ætla að fá að lauma einu að hérna... því ég nenni ekki að búa til nýjan þráð sem heitir líka "Vínkjallarinn".
Ég var að fara að kaupa 2 gerjunarfötur og 4 poka af töppum. Ég ákvað að gera smá verðsamanburð og varð sko ekki svikinn. Mér reiknaðist til að þetta kostaði 5.000 kr. minna í Vínkjallaranum en Ámunni
Ég hef ekkert á móti Ámunni... hafði alltaf verslað tappa og annan búnað þar áður.
Aðalmunurinn var á töppunum, 200 stk í pakka kosta 1990 kr. í Ámunni en kostuðu 1250 í Vínkjallaranum. Svo munaði 500 kr. á hvorri gerjunarfötu.
Smá útúrdúr frá efni þráðarins... vonandi fyrirgefið þið.