Skipti, Caraaroma Caramunic

Á þessum þræði geta meðlimir spjallborðsins sett fram allt sem tengist gerjun. Ennig spurt spurninga og fengið aðstoð frá öðrum meðlimum.
Post Reply
Bjössi
Gáfnagerill
Posts: 390
Joined: 2. Oct 2009 11:52
Location: Reykjavík

Skipti, Caraaroma Caramunic

Post by Bjössi »

Hefur einhver áhuga á að fá Caraaroma á móti Caramunic?
Ég er að fara gera Brúðkaupsöl og vantar Caramunic
Einhver...?
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Skipti, Caraaroma Caramunic

Post by kristfin »

ég get látið þig fá nokkra lófa. hvað vantar þig mikið
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
Bjössi
Gáfnagerill
Posts: 390
Joined: 2. Oct 2009 11:52
Location: Reykjavík

Re: Skipti, Caraaroma Caramunic

Post by Bjössi »

Magnaður ertu
ekki mikið, uppskrift segir 350gr caramunic
Fyrsti AG bjórinn sem ég gerði (brúðkapsb) konunni líkaði hann svo vel að hún vill að ég geri aftur, verð að gera þetta fyrir hana, þar sem hún er mjög skilnigrík á þetta hobbí mitt
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Skipti, Caraaroma Caramunic

Post by kristfin »

ekki málið. hringdu bara á undan þér, 860 0102, ætti að vera heima í kvöld
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
User avatar
ulfar
Gáfnagerill
Posts: 238
Joined: 8. May 2009 08:32

Re: Skipti, Caraaroma Caramunic

Post by ulfar »

Einföld lausn væri að nota caraaroma í staðin. Það er í raun bara mjög dökt crystal malt. Bjórinn yrði kanski örlítið dekkri...og ef þú vilt það ekki getur þú bara notað aðeins minna af því. Ef ég man uppskriftina rétt þá eru 300 gr af caramunich sem gera um 6%, væri hægt að setja 200-250 gr af caraaroma (4-5%).

CaraAroma
Very dark crystal malt - similar to a crystal 120 or Caramunich 120 malt. Adds strong caramel flavor, red color, and malty arom
Bjössi
Gáfnagerill
Posts: 390
Joined: 2. Oct 2009 11:52
Location: Reykjavík

Re: Skipti, Caraaroma Caramunic

Post by Bjössi »

Góður punktur hjá þér Ulfar
spá að prófa þetta svona, sirka á reindar eftir að henda inn í beersmith
4,00kg pale ale malt
700gr caraaroma
300gr Caramunic

veit ekki hvaða humla ég mun nota, ennilega Cascate
User avatar
ulfar
Gáfnagerill
Posts: 238
Joined: 8. May 2009 08:32

Re: Skipti, Caraaroma Caramunic

Post by ulfar »

Ég veit ekki hvernig þú gerðir þetta síðast en ef þú ætlar að gera ljósöl í léttari kantinum þá finnst mér helst til mikið af crystal malti (1 kg/5 kg = 20%). Ef meskingin er ekki gerð við þeim mun lægri hita gæta loka þyngdin (FG) orðið ansi há.

Í uppskriftinni af brúðkaupsölinu sem undir "Uppskriftir" er hún svona
3.5 kg pale ale malt
1.5 kg munich malt
350 gr cara munich

Ekki má rugla saman "munich" og "caramunich"
caramunich er crystalmalt en munich er base malt. Ef munich er ekki til en nóg til af cara aroma gæti þetta:
5.0 kg pale ale malt
300 gr cara aroma

verið nærri lagi.

En gleðin við allgrain er jú sú að - þú mátt ráða nákvæmlega hvað þú gerir.

kv. Úlfar
Bjössi
Gáfnagerill
Posts: 390
Joined: 2. Oct 2009 11:52
Location: Reykjavík

Re: Skipti, Caraaroma Caramunic

Post by Bjössi »

Nákvæmleg úlvar "gleðin" er að maður getur endalaust ruglað saman korni, humlum, osfv....og oftast fengið eitthvað skemmtilegt út

Eg ætla að prófa að henda þessu inn í beersmith, og leika mér svo með humlana
5.0 kg pale ale malt
300 gr cara aroma
Braumeister
Kraftagerill
Posts: 137
Joined: 19. Jul 2009 16:21

Re: Skipti, Caraaroma Caramunic

Post by Braumeister »

Mig langar bara til að benda á að 300gr af CaraAroma í 20L er ansi mikið fyrir bjór eins og mér sýnist Brúðkaupsölið vera (þægilegur og í góðu jafnvægi).

Í þínum sporum myndi ég byrja á 5kg á Pale Ale malti og bæta svo CaraAroma þangað til að liturinn orðinn svipaður og í frumuppskriftinni sem frúin var að panta. Ætti að vera ca 75-100 grömm.

Það er yfirleitt betra að vera með of lítið sérmalt en of mikið, prófaðu til dæmis að japla á nokkrum kornum af CA.

Annars hefur mér aldrei tekist að brugga ódrykkjarhæfan bjór, þrátt fyrir mikla tilraunagleði :beer:
Fyrirhugað: Stout og Alt
Í Gerjun: Westvleteren 12
Á flöskum: Fjelagsjóhann Ammrískur IPA
Bruggaður bjór: 650L
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Skipti, Caraaroma Caramunic

Post by Eyvindur »

Ég hef notað 2kg af CaraMunich fyrir mistök (hélt að þetta væri Munich - við Úlfar rugluðum saman pokum). Útkoman var yndisleg, en hefði mjög auðveldlega getað orðið misheppnuð held ég. Heppilega lágur meskihiti reddaði þessu.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Bjössi
Gáfnagerill
Posts: 390
Joined: 2. Oct 2009 11:52
Location: Reykjavík

Re: Skipti, Caraaroma Caramunic

Post by Bjössi »

Jæja drengir, ég þakka kærlega öll þessi góðu ráð,
sérstaklega góður punktur, að byrja á 5kg a pale malti og svo bara bæta við cara aroma,
sennilega enda ég á 5,2kg pale ale m. og 250gr caramunic
eins gott að konan verði ánægð 8-) í des
einhver lumar á pottþettum "konu" bjór endilega pósta
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Skipti, Caraaroma Caramunic

Post by Idle »

Bjössi wrote:einhver lumar á pottþettum "konu" bjór endilega pósta
Fyrsti hveitibjórinn. :)
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
Bjössi
Gáfnagerill
Posts: 390
Joined: 2. Oct 2009 11:52
Location: Reykjavík

Re: Skipti, Caraaroma Caramunic

Post by Bjössi »

nákvæmlega, ætlaði að gera hann um helgina en á ekki rétt ger, var búinn að panta ur ölvishollti hráefni
er vantar bara rétt ger, u-6 minnir mig
Post Reply