Ljós lager í þýskum stíl

Leyfið spjallverjum að fylgjast með því sem þú ert að gerja. Skrifaðu lýsingu fyrir og eftir gerjun til að sýna okkur hvað hægt er að gera og hverju þið lendið í.
Post Reply
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Ljós lager í þýskum stíl

Post by Oli »

Oli wrote:Ég setti saman uppskrift að lager, á að vera í helles stíl. Er að notast við það efni sem ég á, það hefði líklega verið betra að nota ljósara pilsner malt sem grunn, en það verður að bíða næstu ferðar í Ölvisholt.

Ætla að henda gerinu í frekar heitan virt miðað við lager, svona um 18 gráður og henda svo í bjórkælinn og láta gerjast við um 9-11 gráður í 2-3 vikur, lagering fer svo fram við ca. 3 gráður í amk 4 vikur.
23 lítra skammtur
4,00 kg Pale Malt (Weyermann) (3,3 SRM) Grain 82,47 %
0,45 kg Munich I (Weyermann) (7,1 SRM) Grain 9,28 %
0,20 kg Caramel Malt - 10L (Briess) (10,0 SRM) Grain 4,12 %
0,20 kg Carapils (Briess) (1,5 SRM) Grain 4,12 %
1,00 oz Hallertauer Mittelfrueh [4,00 %] (60 min) Hops 12,1 IBU
1,00 oz Hallertauer Hersbrucker [3,80 %] (15 min) Hops 5,7 IBU
0,25 tsp Irish Moss (Boil 10,0 min) Misc
2 Pkgs SafLager German Lager (DCL Yeast #S-189) Yeast-Lager
OG áætlað um 1.050
FG áætlað um 1.012
IBU um 19
litur 5,5 SRM
Ætla að nota tvöfalda skammtaskolun sem skilaði ágætis nýtni síðast eða um 77%.
Lagði í þennan í gær. Fyrsti skammturinn þar sem ég nota gasbrennara og kælispíral. Meskjunarhitastigið var heldur lágt eða rúmlega 66°c, tvöföld skammtaskolun skilaði um 29 lítrum í pottinn þar sem OG var 1,042. Suðan var heldur löng eða um 75 mín. Uppgufun var mikil og ég fékk bara um 17 lítra úr pottinum þar sem eðlisþyngdin var um 1,065, ég bætti 6 lítrum af vatni í og fékk þá OG 1,050 eins og áætlað var.

Það er gríðarlega gott að nota gasbrennara, ég byrjaði að kynda undir pottinum eftir fyrstu skolun og suðan var fljót að koma upp eftir að seinni skolun var búin. Kælispírallinn svínvirkaði líka og ég var enga stund að ná hitastiginu niður í um 20°c. Henti tveimur pökkum af lagergeri og henti þessu í bjórkælinn þar sem að gerlarnir una sér vel við 11-12°c :P
Nú er bara að bíða.....
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Ljós lager í þýskum stíl

Post by Oli »

Tékkaði á þessum í gær, eðlisþyngd komin niður í 1.012, ennþá fljótandi gerklumpar í bjórnum, ætla að gefa honum nokkra daga í primary í viðbót. Flotvogarsýnið smakkaðist vel, verður crisp and clean eftir 4 vikna lageringu.
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Re: Ljós lager í þýskum stíl

Post by Hjalti »

Þú ert orðinn aldeilis fullorðinn í þessu maður :)

Gaman að sjá þetta :)
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Ljós lager í þýskum stíl

Post by Oli »

Hjalti wrote:Þú ert orðinn aldeilis fullorðinn í þessu maður :)

Gaman að sjá þetta :)
Enda er ég rígfullorðinn :massi:, þýðir ekkert annað en að skella sér í þetta af fullum krafti, nú er bara að drífa sig í fyrsta all grain skammtinn Hjalti :skal:
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Ljós lager í þýskum stíl

Post by Eyvindur »

Nákvæmlega, Hjalti! Ekki fleiri afsakanir!
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Post Reply