Bruggplan Hjalta

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Bruggplan Hjalta

Post by sigurdur »

Hjalti wrote:Andri ofur snillingur tók sig til og hjálpaði mér með að koma brugg settinu saman hjá mér og við tókum smá rúnt í leit að íhlutum og svona.
L1040220.jpg
Ég veit ekki hvort fólk hefur reynslu af þessu eða ekki, en ég var að lesa 'How to brew' og fór í gegn um mashing/lautering kaflann.

Áhugaverður partur var þessi
Another extraction efficiency problem that needs to be considered when designing your tun is preferential flow down the walls. The smooth space between the grainbed and the wall of the tun can be the path of least resistance to the drain. To minimize this short circuiting, false bottoms should fit tightly and manifold tubes should be spaced so that the distance from the outer tubes to the wall of the tun is half of the inner tube spacing (see Figure 88). For example, a manifold with a tube spacing of 6 inches should have 3 inches of space between the manifold and the adjacent walls. Preferential flow is more of a concern in false-bottom systems because a loose fitting false bottom with a gap at the wall presents a unobstructed flow path to the drain.
http://www.howtobrew.com/section3/chapter17-2.html" onclick="window.open(this.href);return false;

Ég er að spá hvort að þú eigir á hættu að ná minna extraction út af því að barkinn er alveg við vegginn á kæliboxinu.

Annars þarf það ekkert að vera .. vildi bara benda á þetta.
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Bruggplan Hjalta

Post by Eyvindur »

Þetta skiptir bara máli ef þú notar fly sparge (stöðuga skolun). Ef þú notar batch sparge (lotuskolun) skiptir þetta engu máli. Þá ertu að hræra skolvatninu saman við kornið í hverri skolun (misjafnt hvort fólk skolar einu sinni, tvisvar eða jafnvel þrisvar), þannig að lögun og gerð síunnar í botninum verður aukaatriði.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Bruggplan Hjalta

Post by sigurdur »

Alright .. vissi það ekki. Takk fyrir að benda mér á það. :)

Það virðist sem að bókin sé svolítið hlutdræg á aðferðir ... svosem ekki við öðru að búast samt.
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Bruggplan Hjalta

Post by Eyvindur »

Athugaðu þó að ef þú ert að lesa netútgáfuna, þá er það fyrsta útgáfa bókarinnar, og þá var tiltölulega nýbyrjað að nota Batch sparge eftir nokkurt hlé, og þá voru töluverðir fordómar gegn slíku. Þetta hefur þó breyst, og í dag held ég að um 70% heimabruggara kjósi heldur lotuskolun en stöðuga skolun. Enda hefur það sýnt sig að ef maður er ekki með mjög fullkomið og nákvæmt kerfi er næsta víst að maður fær meiri nýtni út úr lotuskolun. Hins vegar ef maður nennir að standa í því að gera endalausar prófanir og fullkomna hinsegin kerfi er hægt að fá fyrirtaks nýtni úr henni.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Re: Bruggplan Hjalta

Post by Hjalti »

Jæjja, reyndi að setja í elementið mitt í dag en vandinn er sá að þetta er ekki alveg þétt, þetta fer að leka þegar það er 15 cm hærri vatn en elementið sjálft... Núna er að finna eitthvað til þess að þétta þetta betur og stækka hringinn örlítið.

Þarf að finna eitthvað út úr því en tankurinn er að ráða vel við kranavatn og bognar ekkert, spurning hvernig hann höndlar suðu samt en það kemur bara í ljós þegar ég næ að þétta elementið almennilega! :)
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Bruggplan Hjalta

Post by sigurdur »

Ef þú ert handlaginn með dúkahníf eða öðru beittu áhaldi (skæri ættu mögulega að duga) og þú átt eitthvað sílíkon bökunardót, þá ættiru að geta útbúið þéttihringi fyrir elementin.
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Re: Bruggplan Hjalta

Post by Hjalti »

Var að berjast við þetta með dúkahnífnum mínum, skærunum, bor og fleiru áðan en var ekki að ná að gera þetta jafnt og gott.

Það er ágætis sílikon hringur sem coverar þetta en ég held ég þurfi bara að laga gatið betur....
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Bruggplan Hjalta

Post by sigurdur »

Ertu viss um að vandræðin séu ekki út af því að fatið er bogið, þar af leiðandi mismikill þrýsingur sem að lendir á núverandi sílikonhring?
User avatar
Andri
Undragerill
Posts: 621
Joined: 5. May 2009 23:56

Re: Bruggplan Hjalta

Post by Andri »

Síldartunnan er náttúrulega mun þykkari og væri betri kandídat... þessi græna er kanski ekki að fylla út í þessa rönd á gúmmíhringnum
Reynum að þykkja þetta einhvernveginn með því að líma bót þar sem gatið er og gera gat í bótina, svo þarf að rigga eitthvað vatnsþétt rafmagnsbox á elementið því það má ekki vera svona utan á pottinum

mér dettur ekki alveg í hug skemtileg leið til að redda þessu auðveldlega... reyni að fá vinnufélaga minn til að brainstorma þetta með mér á morgun
Í gerjun :
Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Bruggplan Hjalta

Post by Eyvindur »

Fiskabúrs-sílíkon?
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Bruggplan Hjalta

Post by sigurdur »

Ég myndi sjálfur ekki treysta fiskabúrs sílikoni ef að það er eitthvað "play" á elementinu, það gæti rifnað á óheppilegum tíma ... eins og t.d. 30 mínútur eftir að suða hefur komið upp.

En ég kíkti í BYKO í gær og ætlaði að kaupa 2 ódýra hraðsuðukatla, hinsvegar þá var sagt mér að þeir væru búnir og kæmu ekki aftur. Hjalti, fékkst þú þína senda í gær?
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Bruggplan Hjalta

Post by Idle »

sigurdur wrote:Ég keypti mér einmitt 35 lítra kælibox í húsó núna áðan á tæpann 1400 kall (aðeins nokkur stykki eftir), en ég þarf að annað hvort hafa racking system á þessu eða þá að bora í boxið (mun án efa enda á því) og setja einhverja lekavörn á þetta.
Í múrbúðinni þá má finna ódýr klósetttengi (einhverstaðar í 300-500 krónum býst ég við). Svo er auðvitað líka verkfæralagerinn, spurning hvort að eitthvað finnst þar.

En ég er mikið til í að smíða eitt svona sett með þér.
Ég var að hringja í Húsasmiðjuna og athuga hvort þetta væri til, en svo var víst ekki. :( Spurning hvar maður getur fundið ódýrt kælibox annarsstaðar?
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Bruggplan Hjalta

Post by sigurdur »

Það voru til ódýr ~25 lítra í rúmfatalagerinum (svona græn nákvæmnlega eins og hjalti keypti) en ég keypti mitt fyrir rúmum mánuði .. spurning hvort að þetta sé enn til.

Ég fékk mitt box í skútuvogi, það voru nokkur box eftir á pallettu nálægt afgreiðslukössunum, það eru kanski nokkrir þar eftir.

En svo þú brennir þig ekki á því að leita að hraðsuðukötlum hjá Byko, ég fór þar í gær (kópavogi) og ætlaði að kaupa svoleiðis en það voru ekki nein til og ekki von á nýjum.
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Bruggplan Hjalta

Post by Idle »

Kannski ég renni við í Skútuvoginum á heimleiðinni; humm, með viðkomu í Vínbúðinni, mjög gott úrval einmitt í Skútuvoginum. :)
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
Andri
Undragerill
Posts: 621
Joined: 5. May 2009 23:56

Re: Bruggplan Hjalta

Post by Andri »

við hjalti fórum í húsasmiðjuna skútuvogi, fengum grænu fötuna þar í garðdeildinni
rándýrir hraðsuðu-katlar í kringum 8-10 þús
Í gerjun :
Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Bruggplan Hjalta

Post by Idle »

Garðdeildinni... Hvers vegna datt mér það ekki í hug? :roll:

Kæliboxin eru a. m. k. búin þarna í Skútuvoginum, fór og leitaði vel og vandlega.
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Bruggplan Hjalta

Post by Idle »

Fór aftur áðan í Húsasmiðjuna og Blómaval, og fann ekki neitt - nema allskyns gras og glingur. Endaði í lagnadeildinni og náði mér í kúluloka með stút, en þeir áttu engar pakkningar af réttri stærð. Leit við í Múrbúðinni og náði mér í svona klósettbarka og hosuklemmur. Brá mér því næst í forsöluna í Byko; lagnadeildin var lokuð, og ég fann engin hæfileg ílát (að undanskildu 45 lítra kæliboxi á 14.000 kr!).
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
arnilong
Gáfnagerill
Posts: 259
Joined: 5. May 2009 20:30

Re: Bruggplan Hjalta

Post by arnilong »

Ég var í Góða Hirðinum fyrr í vikunni og sá stórt kælibox í fínu lagi á 500 kall.
Í gerjun: Jólaöl 2009
Í þroskun: Bláberjalambic 2007
Í flöskum: Margt
Á næstunni: Rauchbier, Alt og eitthvað belgískt brjálæði
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Bruggplan Hjalta

Post by sigurdur »

Hjalti og Andri, hvað notuðið þið fyrir þéttingu fyrir kúlulokakerfið?
Ég finn ekki fyrir litla lífið í mér sílikon o-hringi hér á landi og er mjög tregur við að vilja nota nokkuð annað ...
User avatar
karlp
Gáfnagerill
Posts: 305
Joined: 8. May 2009 00:27

Re: Bruggplan Hjalta

Post by karlp »

How is the tap sealed on the mash tun? I've been stuck at that stage for a while, (stuck == lazy over summer) I was looking for a food safe glue, or some suitable washers, but didn't find anything :(
on tap: Nothing! new beer fridge in planning
gassing/maturing: bad beers growing up to maybe be good beers
Fermenting: nothing!
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Bruggplan Hjalta

Post by sigurdur »

It is best to use high temperature silicone washers, but they are unavailable in iceland unless you create them yourself
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Bruggplan Hjalta

Post by Idle »

Það er erfitt að finna nokkuð að ráði um Viton hringina, ég get a. m. k. hvergi séð að þeir séu merktir "food grade". Á romantik.is er hægt að fá hringi úr sílikoni, þráðlausa og alles! ;)

Hér er talað um að þeir þoli allan fjandann (og hitastig upp að 200°C), en séu ekki sérlega þolnir gagnvart heitu vatni og gufu.
http://www.dkirubber.com/materials.asp

Væri gaman að vita hvernig Hjalti og Andri leystu þetta, áður en maður pantar þetta hreinlega að utan. :?:
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Re: Bruggplan Hjalta

Post by Hjalti »

Við skrúfuðum þetta nú barasta saman nógu helvíti þétt og það virðist halda.....

Engin meiri stærðfræði við það alltsaman :)
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Bruggplan Hjalta

Post by Idle »

Hjalti wrote:Við skrúfuðum þetta nú barasta saman nógu helvíti þétt og það virðist halda.....

Engin meiri stærðfræði við það alltsaman :)
Þannig á þetta líka að vera - ekkert japl, jaml né fuður! :D
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Bruggplan Hjalta

Post by sigurdur »

Ég er búinn að upplifa sannleika laga Murphy's of oft til að leyfa svona hlutum að vera ótryggum, það munu verða matvæla þéttihringir sem að verða keyptir .. hægt að kaupa 50 í pakka á einhverja 7USD plús sendingargjald frá McMaster Carr. Mikið að spá í að kaupa svoleiðis.
Post Reply