Var að gera mína fyrstu lögun og mældi hana eftir 11. daga í gerjun og mælist 3,8%.
Það bubblaði bara í rúman 1. sólarhring í vatnslásnum, hitastig hefur verið 16 til 20 gráður við gerjuninna.
1.026 hljómar svolítið hátt, myndi alveg gefa þessu aðeins lengri tíma.
Annars er alltaf séns að eitthvað hafi klikkað í meskingu eða bara í gerjuninni sjálfri (miklar hitasveiflur t.d.). Myndi samt bara gefu þessu aðeins lengri tíma og mæla svo aftur.
*Alltaf* að gefa bjórum amk 10 daga í gerjun, óháð sykurmælingum. Ég gerja alltaf í 2-3 vikur.
Ef FG potast ekkert niður á næstu dögum þá hefur eitthvað skeð, líklega of heitur meskihiti, en hugsanlega hefur gerið gefist upp, t.d. út af hitasveiflum. 16 gráður er við neðri mörk þess sem us05 þolir, og ef það hefur byrjað í heitara og svo lækkað þá getur það vel stoppað of snemma. Þá er hægt að hræra *varlega* í fötunni, til að ýra upp gerið til að reyna að koma því í gang aftur. Passa að fá ekki súrefni í bjórinn.
elvislifir wrote:Hvað er til ráða ef að meskihitinn hefur verið of hár ?
Þá í rauninni verðurðu að sætta þig við hátt final gravity. Þá er meira af ógerjanlegum sykri.
Getur prófað að hræra aðeins upp í gerinu eins og Hrafnkell sagði og gefa þessu síðan viku og tekið aðra mælingu. Ef ekkert breytist, skelltu þessu þá bara á flöskur. Passar bara betur upp á meskihitann og gerjunarhitann næst
elvislifir wrote:Já fór eftir leiðbeiningum frá Brew.is og var með hita í 72 og setti svo kornið í en, hitinn hélt sér í 72 nánast alla meskinguna, semsé 72 niður í 66
Hitinn ætti að lækka við það að setja kornið í, um amk 4-5 gráður. Ef hann gerði það ekki þá er eitthvað skrýtið í gangi.