Græjukaup

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
Post Reply
dadjan
Villigerill
Posts: 9
Joined: 23. Sep 2011 20:59

Græjukaup

Post by dadjan »

Ég er að fara að panta eitthvað af dóti frá HomeBrewStuff.com. Pælingin er að panta hluti sem munu auðvelda mér lífið í bjórgerðinni + smá annað. Mér datt í hug að fá smá komment áður en ég panta. Þetta er listinn sem ég er kominn með:

Wort chiller
Auto siphon
Bottle filling wand
Bottle sanitizer & rinser (vinator)
Flöskuskolari
Krani á kegerator

Er eitthvað þarna sem ykkur finnst vanta í að gera bjórgerðina þægilegri? Það sem ég á núna er í raun það sem er í byrjendapakkanum frá brew.is.

Alltaf gaman að kaupa sér leikföng :)
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Græjukaup

Post by hrafnkell »

Myndi taka 1/2" autosiphon frekar, og þá 1/2" bottling wand líka. Ég held að ég eigi bæði fyrir þig ef þú vilt. Svo þarftu helst dælu með plate chillernum.

Svo er rétt að benda á að þú færð flest af þessu í bæði vínkjallaranum og ámunni (allt nema keg unitið), ekki víst að það borgi sig að panta þetta að utan - sendingarkostnaður, tollur og vsk á eftir að taka þig í endaþarminn :)

Annars eru þetta allt græjur sem er afar þægilegt að hafa.
dadjan
Villigerill
Posts: 9
Joined: 23. Sep 2011 20:59

Re: Græjukaup

Post by dadjan »

hrafnkell wrote:Myndi taka 1/2" autosiphon frekar, og þá 1/2" bottling wand líka. Ég held að ég eigi bæði fyrir þig ef þú vilt. Svo þarftu helst dælu með plate chillernum.

Svo er rétt að benda á að þú færð flest af þessu í bæði vínkjallaranum og ámunni (allt nema keg unitið), ekki víst að það borgi sig að panta þetta að utan - sendingarkostnaður, tollur og vsk á eftir að taka þig í endaþarminn :)

Annars eru þetta allt græjur sem er afar þægilegt að hafa.
Ok, ég fæ þá autosiphon og bottling wand næst þegar ég kaupi hráefni :)

Benni á svona plate chiller og við notuðum hann án dælu síðast með fínum árangri.

Ég hringdi í Vínkjallarann og Ámuna en hvorug búðin átti alla þessa hluti til og engin þeirra er með plate chiller og krana (sem eru aðal hlutirnir). Miðað við estimate á sendingarkostnaði frá homebrewstuff.com, 15% tolli (ég veit ekki hvort þetta sé rétt tala), 25,5% vsk og núverandi gengi á USD, þá er homebrewstuff.com alltaf sambærilegt eða ódýrara.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Græjukaup

Post by sigurdur »

Plate chiller færðu hjá lagnavöruverslunum (notað sem varmaskiptir til að hita neysluvatn með hitaveituvatninu og fá þá neysluhæft kranavatn).
dadjan
Villigerill
Posts: 9
Joined: 23. Sep 2011 20:59

Re: Græjukaup

Post by dadjan »

sigurdur wrote:Plate chiller færðu hjá lagnavöruverslunum (notað sem varmaskiptir til að hita neysluvatn með hitaveituvatninu og fá þá neysluhæft kranavatn).
Ég hringdi á nokkra staði og þetta virðist vera talsvert dýrara á klakanum. Það er alltaf þægilegra að kaupa hluti heima en þegar þetta virðist vera hátt í tvöfalt dýrara þá er það svolítið mikið :)
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Græjukaup

Post by hrafnkell »

Getur líka skoðað counterflow chiller - Getur smíðað hann frekar ódýrt með hráefni hérna. Það er mikið auðveldara að þrífa þá, en þeir taka auðvitað aðeins meira pláss. Ég nota svoleiðis og er hæstánægður með græjuna.
Post Reply