Hafra Porter með anis

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
Post Reply
kalli
Gáfnagerill
Posts: 440
Joined: 9. Jan 2010 09:43
Location: Hafnarfjörður

Hafra Porter með anis

Post by kalli »

Ég hef gert einn Hafra Porter og var mjög ánægður með þann drykk. En það væri gaman að peppa hann upp með smá lakkrísbragði. Ég á star anise frá http://www.midwestsupplies.com/star-anise-1-oz.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Þeir mæla með 1/2 til 1 únsu í 4 gallon, en mig grunar að það sé of mikið. Hvaða reynslu hafið þið af anis í porter?
Life begins at 60....1.060, that is.
kalli
Gáfnagerill
Posts: 440
Joined: 9. Jan 2010 09:43
Location: Hafnarfjörður

Re: Hafra Porter með anis

Post by kalli »

Best að bæta við ... ég vill bara fá hint af lakkrís í bjórinn. Svipað og Gæðingur, sem er í uppáhaldi hjá mér.
Life begins at 60....1.060, that is.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Hafra Porter með anis

Post by sigurdur »

Þú getur alltaf prófað að sjóða stjörnuaníste eftir að gerjun er lokið og bætt við smá og smakkað ..
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Hafra Porter með anis

Post by hrafnkell »

Eða gert extract - anís í vodka, bæta svo dropa við í bjórinn og sjá hvort það sé passlegt.. annars bæta öðrum við osfrv.
kalli
Gáfnagerill
Posts: 440
Joined: 9. Jan 2010 09:43
Location: Hafnarfjörður

Re: Hafra Porter með anis

Post by kalli »

Sigurður og Hrafnkell, ég prófa sennilega báðar aðferðirnar. Takk fyrir það.
Life begins at 60....1.060, that is.
oliagust
Villigerill
Posts: 27
Joined: 13. Oct 2011 00:21

Re: Hafra Porter með anis

Post by oliagust »

Ég setti lakkrís í minn Hafra Porter og kom það mjög vel út, þó myndi ég setja minna næst.

Ég var með lakkrísrót (sennilega svipað og apótekaralakkrísinn) sem er svona svart fyrirbæri, svipað og brjóstsykur, nema (nær) alveg sykurlaust. Ég notaði u.þ.b. 30gr í 20 lítra lögun. Það var of mikið að mínu mati og myndi ég nota helming af því næst!

Ég eignaðist þennan lakkrís fyrir mörgum árum eftir leiðum sem ég get ekki gefið upp... :) en einhver benti á að þetta sé til í Tiger: http://www.fagun.is/viewtopic.php?f=2&t=1173" onclick="window.open(this.href);return false;
Í vinnslu; Bríó klón
Í gerjun: SMASH lager og Nelson Sauvin IPA
Á flöskum; Rauðöl, Vetraröl, APA, Brúðkaupsöl og SMASH öl.
kalli
Gáfnagerill
Posts: 440
Joined: 9. Jan 2010 09:43
Location: Hafnarfjörður

Re: Hafra Porter með anis

Post by kalli »

Ég sé að það er mælt með 14 til 28g af lakkrísrót í 20 L. Þér fannst 30g of mikið og Idle fannst 15g of lítið. Ætli lendingin verði ekki 20g...
Life begins at 60....1.060, that is.
kalli
Gáfnagerill
Posts: 440
Joined: 9. Jan 2010 09:43
Location: Hafnarfjörður

Re: Hafra Porter með anis

Post by kalli »

Porterinn er nú í gerjun. Virturinn bragðaðist vel með áberandi lakkrísbragði. Eins gott að ég er hrifinn af lakkrís. En ég er að vona að það verði minna áberandi með tímanum. Ég notaði 20g í 22L.
Life begins at 60....1.060, that is.
kalli
Gáfnagerill
Posts: 440
Joined: 9. Jan 2010 09:43
Location: Hafnarfjörður

Re: Hafra Porter með anis

Post by kalli »

Ég er að drekka Hafra Porterinn með lakkrísviðbót þessa dagana. Lakkrísbragðið er til staðar án þess að vera ágengt. Magnið er hæfilegt held ég. Það má ekki vera meira en má frekar prófa að nota minna magn. Í það heila er þetta mildur, bragðgóður og skemmtilegur porter.
Life begins at 60....1.060, that is.
User avatar
bergrisi
Undragerill
Posts: 948
Joined: 27. Apr 2011 23:24
Location: Keflavík

Re: Hafra Porter með anis

Post by bergrisi »

Flott, er að gera Hafra porter og langaði að bæta við súkkulaði. Var bara ekki viss hvar í ferlinu ég ætti að setja það inn og hve mikið. Er ekki með súkkulaði malt. Spurning hvort maður geti þurrhumlað með hreinusúkkulaði.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Hafra Porter með anis

Post by sigurdur »

bergrisi wrote:Flott, er að gera Hafra porter og langaði að bæta við súkkulaði. Var bara ekki viss hvar í ferlinu ég ætti að setja það inn og hve mikið. Er ekki með súkkulaði malt. Spurning hvort maður geti þurrhumlað með hreinusúkkulaði.
Þú getur þurrkakóað kakóbaunum (cacao nibs sem eru búnar að liggja í hreinum vodka).
Kakóbaunir færðu hjá Kollu í grasa apótekinu á laugarveginum (man ekki hvað þetta heitir hjá henni)
Post Reply