Weissbier Hell fyrir sumarið

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
Post Reply
User avatar
helgibelgi
Undragerill
Posts: 773
Joined: 6. Nov 2010 22:29
Location: Reykjavík, Iceland
Contact:

Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by helgibelgi »

Ætla að brugga þennan Weissbier fljótlega og var að spá í nokkrum hlutum.

Kornið er:

70% Wheat malt
3% Acidulated malt (Weyermann)
5% Cara Munich II (Weyermann)
22% Pilsner malt

Spurning 1: Á einhver Acidulated malt? Spurning 1 og 1/2: Gæti ég súrmeskjað pilsner malt í staðinn?

Uppskriftin kallar á einhverja þýska humla. Spurning 2: Hvað mælið þið hveitibjórsmenn með?

Ger: Wyeast 3068 (sýnist nokkrir eiga það í gerbankanum)

Meskiferli:
Maltose rest : 63 °C (145 °F) í 35 mín
dextrinization rest : 71 °C (160 °F) í 45 mín
mash-out : 76 °C (169 °F) (optional)

Kæla niður í 13-15°C eftir suðu og pitcha gerinu út í og leyfa síðan hækkun upp í 17°C og halda því þar í gerjun. Nota blow-off tube og fjarlægja brúnt krausen. Spurning 3: Hvernig hafið þið farið að þessu með að fjarlægja krausen? Ég held ég verði of hræddur við að sýkja bjórinn að ég þori því varla.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by hrafnkell »

Liggur nokkuð vel við að nota hersbrucker eða mittelfruh humla. Acidulated malt geturðu búið til (google)
User avatar
gunnarolis
Undragerill
Posts: 563
Joined: 23. Mar 2010 16:44

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by gunnarolis »

Ég á acidulated malt, þú getur fengið hjá mér ef þú vilt.

Notaðu bara Hallertauer Hersbrucker eða hallertauer mittelfruh í þetta, hersbrucker frekar.

Það að fjarlægja kreusen held ég að sé ekki mikið atriði.

Mér hefur fundist best að gerja hveitibjór við 17°C, það kemur mjög vel út. Passaðu bara að hafa nóg pláss fyrir kreusen (amk 33%) í fötunni, hef lent oftar en einusinni í því að sprengja lok af hveitibjórsfötu.
Næst: Bock, Pilsner
Í Gerjun : Brett'd Dubbel, Orval, Flemish Red, Lambic Mk1
Á flösku : Dubbel, Amarillo Smash
Á kút : Rauchbier Märzen.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by hrafnkell »

Getur líka notað fermcap til að koma í veg fyrir að krausen verði til vandræða :)
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by sigurdur »

hrafnkell wrote:Getur líka notað fermcap til að koma í veg fyrir að krausen verði til vandræða :)
Áttu nokkuð fermcap?
User avatar
Squinchy
Gáfnagerill
Posts: 205
Joined: 21. May 2009 15:40
Location: Grafarvogur

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by Squinchy »

Er það ekki bara DIY, skera toppinn af samskonar fötu sem passar rétt ofan í virtinn ?, þ.a.s. ef það verður nægilega þétt
kv. Jökull
User avatar
helgibelgi
Undragerill
Posts: 773
Joined: 6. Nov 2010 22:29
Location: Reykjavík, Iceland
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by helgibelgi »

Er ekki Fermcap eitthvað efni sem maður setur í suðu?
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by sigurdur »

helgibelgi wrote:Er ekki Fermcap eitthvað efni sem maður setur í suðu?
Júbb.
User avatar
Feðgar
Gáfnagerill
Posts: 377
Joined: 24. Apr 2011 20:38
Location: Keflavík

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by Feðgar »

helgibelgi wrote:Er ekki Fermcap eitthvað efni sem maður setur í suðu?
Er það ekki sett út í þegar maður setur gerinn út í virtina.
User avatar
helgibelgi
Undragerill
Posts: 773
Joined: 6. Nov 2010 22:29
Location: Reykjavík, Iceland
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by helgibelgi »

Feðgar wrote:
helgibelgi wrote:Er ekki Fermcap eitthvað efni sem maður setur í suðu?
Er það ekki sett út í þegar maður setur gerinn út í virtina.
Er að lesa þráð á homebrewtalk og þar kemur fram að þetta sé notað í suðu til þess að koma í veg fyrir boil-over, en einnig út í gerjun til þess að koma í veg fyrir krausen uppbyggingu (sýnist mér)
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by sigurdur »

Áhugaverðar upplýsingar á midwestsupplies
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by hrafnkell »

Passar. Ég er farinn að setja þetta alltaf í eftir meskingu, þá slepp ég við boilovers og krausensprengingar. Þetta efni er samþykkt af Jamil og Chris White þannig að ég þykist öruggur að nota þetta. Á ekki að hafa nein áhrif á head retention.

Svo er ég líka farinn að nota þetta þegar ég sýð fisk, pasta og hrísgrjón - Afar þægilegt að þurfa ekki að hafa áhyggjur af því að það sjóði uppúr ef maður gleymir sér :)
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by Idle »

Ég hef einmitt notað froðueyði um nokkurt skeið við suðu á fiski. Amma heitin átti þetta gjarnan til í töfluformi, en pabbi var með þetta í fljótandi formi í litlum sprautubrúsum, áþekkum þeim sem matarlitur fæst í. :D
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
helgibelgi
Undragerill
Posts: 773
Joined: 6. Nov 2010 22:29
Location: Reykjavík, Iceland
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by helgibelgi »

Ég keypti svona froðueyði frá ámunni og hann virkaði vel þegar ég var að sjóða virt fyrir startera. Það var byrjað að freyða upp úr og ég sprautaði nokkrum dropum ofan á og þá hætti strax að freyða og virturinn var þægur eftir það. Karlinn í búðinni segist nánast drekka þennan froðueyði (ekki taka því of bókstaflega samt :lol: )

En ég var að spá í með þessa uppskrift. Það stendur: "One addition of German hops worth about 40 mg/l alpha acid in the kettle full wort. This is about 1 g alpha acid in 25 l (6.6 gal) or 10 g 10% alpha acid hops in 25 l. The hops may be added before or after the wort comes to a boil. Boil time is 70 min."

Ætla líklega að nota Hersbrucker frá Hrafnkeli sem er 3% aa. Passar þá að nota 20 grömm í 15 lítra uppskrift?

Kveðja. Helgi
User avatar
helgibelgi
Undragerill
Posts: 773
Joined: 6. Nov 2010 22:29
Location: Reykjavík, Iceland
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by helgibelgi »

Jæja, þá er þessi kominn í gerjunarfötuna eftir mesta flýtibrugg ever. Hafði bara 4 tima til þess að brugga og þrífa, en það var bara hressandi!

Mörg atriði sem ég hefði mátt hugsa betur áður en byrjað var:

1. var með ómalað korn => þurfti að henda því í ziplock poka og hamast á því í smá tíma (ég á ekki kökukefli) en sem betur fer bara 100 grömm af acid malti.

2. Samkvæmt uppskrift þarf að kæla virtinn niður í 15 gráður áður en maður hendir gerinu út í, náði honum bara niður í 18 gráður og henti gerinu út í bara samt!

3. Gerjun má ekki fara yfir 18 gráður en ég er ekki með ísskáp eða kæli. Ég fann samt aðra lausn: fann plastkassa/bala sem ég setti gerjunarfötuna í og fyllti síðan balann með vatni og setti tvær frosnar hálfslítra plastflöskur í vatnið til að kæla. Vona að þetta dugi til.

Spurning: Haldið þið að það sé mjög slæmt að ég setti gerið út í við 18 gráður miðað við að bjórinn á líklega eftir að kælast aðeins niður útaf kælingu frá vatninu/ísnum í balanum sem hann liggur í
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by sigurdur »

Það skiptir trúlega ekki máli. Aðal ástæðan fyrir gerjunarhitastiginu er til þess að stjórna ester/fenól myndun.
User avatar
helgibelgi
Undragerill
Posts: 773
Joined: 6. Nov 2010 22:29
Location: Reykjavík, Iceland
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by helgibelgi »

Hann er byrjaður að bubbla á fullu svo gerið hefur lifað þetta af :mrgreen:

Hitastigið í balanum er samt 21 gráður, þarf að vinna betur í því að lækka það. Er ekki annars rétt hjá mér að við hátt hitastig með þetta ger kemur bananabragð/lykt? Er eitthvað meira sem kemur sem gæti verið slæmt? (ekki að banani sé slæmur, elska banana í hveitibjór!)
Attachments
Beðið eftir suðu...
Beðið eftir suðu...
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by sigurdur »

Jú .. en það eykst líka phenol við hærra hitastig.
User avatar
helgibelgi
Undragerill
Posts: 773
Joined: 6. Nov 2010 22:29
Location: Reykjavík, Iceland
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by helgibelgi »

Það vantar appelsínugula kassa og ég vona að þið elskið myndir jafnmikið og ég. Svona reddaði ég kælingu fyrir hveitibjórinn: hann liggur í ca. 16 gráðu heitu vatni:
Attachments
Hi-tech cooling system
Hi-tech cooling system
bjarkith
Gáfnagerill
Posts: 255
Joined: 11. Nov 2010 15:22

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by bjarkith »

Hvað náðiru mörgum lítrum að virt?
Á flöskum: Barollo 2 árs, Barollo 1 árs
Á Kút: Hrísgrjónalager
Í gerjun: Lambic Base, Berliner Weisse, Berliner Weisse Kriek, IPA, Pale Ale, CaliCommon
Í bígerð: Flanders Red Ale, IPA, HoneyWeizen Haraldar
User avatar
helgibelgi
Undragerill
Posts: 773
Joined: 6. Nov 2010 22:29
Location: Reykjavík, Iceland
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by helgibelgi »

Náði 13 lítrum með 1.049 OG
bjarkith
Gáfnagerill
Posts: 255
Joined: 11. Nov 2010 15:22

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by bjarkith »

Fínt, með 16l pottinum er það ekki?
Á flöskum: Barollo 2 árs, Barollo 1 árs
Á Kút: Hrísgrjónalager
Í gerjun: Lambic Base, Berliner Weisse, Berliner Weisse Kriek, IPA, Pale Ale, CaliCommon
Í bígerð: Flanders Red Ale, IPA, HoneyWeizen Haraldar
User avatar
helgibelgi
Undragerill
Posts: 773
Joined: 6. Nov 2010 22:29
Location: Reykjavík, Iceland
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by helgibelgi »

Já þetta er 16 lítra stálpottur, sá sem sést á myndinni.
User avatar
helgibelgi
Undragerill
Posts: 773
Joined: 6. Nov 2010 22:29
Location: Reykjavík, Iceland
Contact:

Re: Weissbier Hell fyrir sumarið

Post by helgibelgi »

Var að skella þessum á flöskur og djöfull var sýnið gott! Hann fór frá 1.049 niður í 1.008 :D

Ég sleppti lageringu (10 dagar skv. uppskrift) en miðað við hvað hann er orðinn góður hef ég engar áhyggjur. Reyni að koma með hann á næsta mánudagsfund.

Ætla að gera þennan strax aftur og vanda mig aðeins meira og lagera og alles og sjá hvort ég nái honum ennþá betri :fagun:
Post Reply