Að taka mælisýni

Á þessum þræði geta meðlimir spjallborðsins sett fram allt sem tengist gerjun. Ennig spurt spurninga og fengið aðstoð frá öðrum meðlimum.
Post Reply
anton
Gáfnagerill
Posts: 248
Joined: 10. Jun 2010 00:06

Að taka mælisýni

Post by anton »

Vildi deila því með ykkur að ég fékk þá snilldarhugmynd að kaupa mér stæðstu gerð af sprautu (60ml) og grófar (sverar) nálar í apóteki.

Sprautan kostaði einhvern 100kall og nálarnar kosta 15 kr stk eða eitthvað þar um bil.

Svo smelli ég bara nál á sprautuna, sting bara nálinni ofan í bjórinn og dreg upp mælisýni. Svo má bara henda nálinni. Hún er dauðhreinsuð og ekkert sótthreinsivesen á neinum tólum til að taka mælisýni. Enginn hreyfing á bjórnum í fötunni.

Muna bara handspritt á hendurnar áður en hafist er handa því þar er líkelga mesta hættan þegar opnað og lokað er á eftir sér.

Ódýrt, fljótlegt og mjög þægilegt.

Gengur kannski illa í "carboy" en virkar vel í fötu.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Að taka mælisýni

Post by sigurdur »

Flott hugmynd.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Að taka mælisýni

Post by hrafnkell »

Já þetta er mjög sniðug hugmynd - ég hef venjulega forðast mælingar bara frekar en að sýkja bjórinn. Geri þetta klárlega í framtíðinni.
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: Að taka mælisýni

Post by halldor »

Við notum vel joðfóraðan turkey baster.
Það fylgir meira að segja nál með honum (sem við höfum ekki verið að nota). Kannski ætti maður að fara að nota hana til að takmarka snertiflötinn við vökvann.
Plimmó Brugghús
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Að taka mælisýni

Post by Eyvindur »

Skemmtilegt. Ég hef lengi notað sprautu til að taka sýni, en hef ekki pælt í að nota nálar... Klárlega skynsamlegast.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Post Reply