....félagar, hefur einhver reynt sig við Budeiser Czech clone (sá eina sanna) Eða Stella A.
og getur einhver gefið uppskrift sem telur sig hafa komist nærri?
hef "goggla" nokkuð en ekki fundið neitt sérstakt
tek fram að konan ætlar mér að gera svona bjór sem er ekkert nema sjálfsagt mál
Edit: Tók eftir einhverjum furðulegheitum í humlatímanum á linknum, hið rétta er að fyrsti humlaskammtur er í 60 mín, næsti í 15 mín með fjörugrösum, þá 10 mín, 5 mín og loks 1 mín.
ég er búinn að búa til bohemian pilsner, held að óli hafi gert líka. það svínvirkar. pilner með saas humlum. ekki slæmt.
bohem pilnser er hinsvegar soldið humlaður. kannski að konan væri hrifin af einhverju meira í ætt við bitburger. það er uppskrift í brewing classic styles sem heitir myburger, ætla að brugga hana á næstunni
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
Kærar þakkir drengir
'eg gerði Bohemian pilsner , s.s. pilsner malt og bara Saaz fyrir konuna, en var ekki alveg að virka vildi eitthvað léttar
Bitburger er góð hugmynd, skella í hann næst þegar "Stíl-brot lagerinn" minn er búinn (hvað er verið að brugga) nema ég komi annari tunnu fyrir í ísskáp
Við strákarnir gerðum Budvar klón og mig minnir að við höfum byggt það á uppskriftinni í Beer Captured.
Notuðum bara Saaz og IBU var um 35 að mig minnir. Alveg hreint sæmilegur bjór.