Matreiðslubók Þóru Andreu Nikólínu Jónsdóttur á vefnum

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
Post Reply
User avatar
aki
Kraftagerill
Posts: 90
Joined: 8. Sep 2009 10:42

Matreiðslubók Þóru Andreu Nikólínu Jónsdóttur á vefnum

Post by aki »

Vildi nota tækifærið og plögga nýjan vef sem Landsbókasafnið opnar formlega í dag: http://baekur.is. Þarna er ætlunin að birta stafrænar endurgerðir gamalla íslenskra bóka (útgefnar fyrir 1870). Meðal þess sem þar er að finna er Ný matreiðslubók Þóru Andreu Nikólínu Jónsdóttur frá 1858. Hún er að hluta þýðingar úr dönskum ritum og að hluta íslenskar uppskriftir. Það sem er þó eftirtektarverðast fyrir okkur er að í bókinni er sérstakur kafli um ölgjörð sem veitir innsýn í heimabruggun á 19. öld þótt hann virðist að mestu þýddur upp úr dönsku riti.

Strax á eftir þeim kafla kemur skemmtilegur kafli um ostagerð.

Beinn tengill á bókina: http://baekur.is/bok/000430474/Ny_matre ... amt_avisun (kaflinn um ölgjörð er á bls. 171)
Í gerjun: Ekkert
Á flöskum: ESB
Á teikniborðinu: Jólabjór
User avatar
gunnarolis
Undragerill
Posts: 563
Joined: 23. Mar 2010 16:44

Re: Matreiðslubók Þóru Andreu Nikólínu Jónsdóttur á vefnum

Post by gunnarolis »

Ég ætlaði að fara að fleima þig fyrir að setja þetta hérna á bjórgerðarspjallið :)

En þetta er alveg magnað, að komast í svona eldgamla lýsingu á ölgerð.

Það er samt ekkert talað um RIMS kerfi í bókinni....
Næst: Bock, Pilsner
Í Gerjun : Brett'd Dubbel, Orval, Flemish Red, Lambic Mk1
Á flösku : Dubbel, Amarillo Smash
Á kút : Rauchbier Märzen.
User avatar
aki
Kraftagerill
Posts: 90
Joined: 8. Sep 2009 10:42

Re: Matreiðslubók Þóru Andreu Nikólínu Jónsdóttur á vefnum

Post by aki »

Þetta er náttúrulega fullkomlega óforskammað plögg :oops:

Það sem mér þykir þó athyglisverðast í þessu er að hún er þarna að kenna í grundvallaratriðum nákvæmlega sömu prinsippin og við erum að nota. Helsti munurinn sem ég sé er að hún meskir með köldu vatni í langan tíma - en varla hafa menn haft mikla innsýn í kjörhitastig hvata á þessum tíma... Þetta er bara fjórum árum eftir að Pasteur uppgötvaði að það væru örverur sem bæru ábyrgð á gerjun.
Í gerjun: Ekkert
Á flöskum: ESB
Á teikniborðinu: Jólabjór
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Matreiðslubók Þóru Andreu Nikólínu Jónsdóttur á vefnum

Post by kristfin »

magnað alveg. gaman að lesa svona
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
User avatar
ulfar
Gáfnagerill
Posts: 238
Joined: 8. May 2009 08:32

Re: Matreiðslubók Þóru Andreu Nikólínu Jónsdóttur á vefnum

Post by ulfar »

Takk fyrir ábendinguna. Þetta er frábært. Ég hafði heyrt af þessari bók en aldrei komist í hana.

Ef ég túlka uppskriftina rétt. Þá væri sett ein skeppa af malti, sem ég ætla að kalla 5 kg, og hrærð saman með köldu vatni þannig allt kornið sé blautt. Þetta ættu að vera ca 10 ltr af vatni. Þetta er svo látið standa yfir nótt. Þá er þessu hellt yfir í skolkerið og þá öðrum skammti af vatni (10 ltr), nú sjóðandi, bætt í. Ef ég reikna þetta gróft ætti hitastigið í skolkerinu að vera á bilinu 55 til 60 gráður eftir viðbótina. Þetta er síðan látið standa í tvo tíma áður en hleypt er undan. Þá er aftur 10 ltr af sjóðandi bætt í og blandan ætti þá að ná hita á bilinu 60 til 70 gráðum, þetta er svo látið standa í 2 tíma. Hleypt af og sjóðandi vatni hellt í þriðja sinn. Er þetta ekki bara nokkuð hefðbundin útfærsla 2 þrepameskingu í bland við batch sparge?
Last edited by ulfar on 1. Dec 2010 21:13, edited 2 times in total.
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Matreiðslubók Þóru Andreu Nikólínu Jónsdóttur á vefnum

Post by Oli »

Snilld ;)
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
Post Reply