Porter?

Hér skal eingöngu skrá uppskriftir sem hafa verið prófaðar og gefið góða raun að mati bruggara, vina og/eða vandamanna. Nafn bjórstíls skal taka fram í titli þráðar. Dæmi: "Hvítur sloppur – Belgískur Hveitibjór"
Post Reply
Bjössi
Gáfnagerill
Posts: 390
Joined: 2. Oct 2009 11:52
Location: Reykjavík

Porter?

Post by Bjössi »

Ég er að reina að sjóða saman einkverskonar Porter, hef ekki gert slíkt áður
endilega kommenta hvað betur má fara?
Einnig! Hvar er hægt að kaupa "Gifs" Calcium Sulfate

Type: All Grain Date: 8.2.2010
Batch Size: 25,00 L Brewer: Bjössi
Boil Size: 32,00 L Asst Brewer:
Boil Time: 60 min Equipment: Plastunna 60ltr
Taste Rating(out of 50): 35,0 Brewhouse Efficiency: 70,00
Taste Notes:

Ingredients
Amount Item Type % or IBU
2,70 kg Pale Malt (Weyermann) (3,3 SRM) Grain 43,55 %
2,70 kg Pilsner (Weyermann) (1,7 SRM) Grain 43,55 %
0,35 kg Carafa Special III (Weyermann) (470,0 SRM) Grain 5,65 %
0,35 kg Caramunich II (Weyermann) (63,0 SRM) Grain 5,65 %
0,10 kg Roasted Barley (300,0 SRM) Grain 1,61 %
20,00 gm Centennial [10,00 %] (60 min) Hops 19,4 IBU
15,00 gm First Gold [7,50 %] (30 min) Hops 8,4 IBU
25,00 gm Saaz [4,00 %] (3 min) Hops 1,2 IBU
0,33 tsp Irish Moss (Boil 10,0 min) Misc
10,00 gm Gypsum (Calcium Sulfate) (Mash 60,0 min) Misc
1 Pkgs US-05 (Fermetis) Yeast-Ale


Beer Profile
Est Original Gravity: 1,054 SG Measured Original Gravity: 1,010 SG
Est Final Gravity: 1,016 SG Measured Final Gravity: 1,005 SG
Estimated Alcohol by Vol: 5,01 % Actual Alcohol by Vol: 0,65 %
Bitterness: 29,0 IBU Calories: 90 cal/l
Est Color: 29,3 SRM Color:
Color
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Porter?

Post by sigurdur »

Þú færð gips í smærri einingum í apótekum en stærri einingum í múrverslunum (svosem múrbúðinni).
Farðu frekar samt í apótekið þar sem að þú notar ekki mikið í einu.
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Porter?

Post by kristfin »

ég mæli með uppskrifitinni sem ég setti á vefinn. það var 3ji porterinn minn og ég er mjög sáttur við hann.

ég mundi ekki setja roasted barley, þá ertu kominn meira í stout.

ég mundi nota enskt ger, mér finnst það passa betur við svona porter, eins og s04.

ef þú notar pilsner, slepptu þá pale malt, því pilsnerinn þarf alltaf 90 mín suðu. eða sleppa pilsner og nota bara pale ale.

karamellu bragðið kemur úr caramunich ii, og síðan er carafa special iii að fá rétta litinn og fylla uppí bragðið.

uppskriftin sem ég notaði kemur frá ray daniels, sem er eitt af idolunum mínum, en hann bjó þetta til fyrir weyermann brugghúsið. ég mundi bara treysta henni. hafðu meskinguna bara einfaldari, 90 mín við 68, og sjóddu þetta síðan í 90 mín.
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Porter?

Post by Eyvindur »

+1 á allt sem Kristfin sagði - reyndar má benda á að Fullers nota ristað bygg í London Porter, en mér finnst það persónulega vera óþarfi og eins og var bent á, komið meira út í Stout.

Ég er ekki hrifinn af uppskriftum með of flókna kornsamsetningu. Maður finnur miklu miklu betur fyrir því hvað hvert korn er að gera ef maður hefur þetta einfalt. Ég hef séð mikið af uppskriftum á heimabruggarasíðum sem gera ráð fyrir öllu nema eldhúsvaskinum, þannig að þetta er mikil lenska virðist vera, en mér finnst þetta í flestum tilfellum vera vitleysa. Um að gera að hafa kornsamsetninguna sem einfaldasta, þannig að maður geri sér grein fyrir því hvað gefur hvaða bragð - þannig gerir maður sér líka betur grein fyrir því hvernig maður getur bætt uppskriftina seinna. Ef þetta er einhver kornsúpa er miklu erfiðara að einangra eitthvað tiltekið bragð sem maður vill magna eða minnka í framtíðinni.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Bjössi
Gáfnagerill
Posts: 390
Joined: 2. Oct 2009 11:52
Location: Reykjavík

Re: Porter?

Post by Bjössi »

Takk fyrir skjót svör, ég skoðaði uppskriftina hjá "kristfin" og aðlaga að minni uppskrift
en á bara US-05, sennilega pósta ég síðar um skipti á geri
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Porter?

Post by kristfin »

eg á s04 ger ef þig vantar bjössi
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
Bjössi
Gáfnagerill
Posts: 390
Joined: 2. Oct 2009 11:52
Location: Reykjavík

Re: Porter?

Post by Bjössi »

Magnaður ertu, ég á US-05 og Hveitibjórs ger, man ekki hvað heitir
Bjössi
Gáfnagerill
Posts: 390
Joined: 2. Oct 2009 11:52
Location: Reykjavík

Re: Porter?

Post by Bjössi »

Uppfærð uppskrft, miða við 25ltr, spurning hvor maður ætti að þurrhumla???

AmountItemType% or IBU
5,30 kgPale Malt (Weyermann) (3,3 SRM)Grain84,13 %
0,50 kgCarafa Special III (Weyermann) (470,0 SRM)Grain7,94 %
0,50 kgCaramunich II (Weyermann) (63,0 SRM)Grain7,94 %
20,00 gmCentennial [10,00 %] (60 min)Hops19,3 IBU
15,00 gmFirst Gold [7,50 %] (30 min)Hops8,3 IBU
25,00 gmSaaz [4,00 %] (3 min)Hops1,2 IBU
0,33 tspIrish Moss (Boil 10,0 min)Misc

10,00 gmGypsum (Calcium Sulfate) (Mash 60,0 min)Misc
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Porter?

Post by kristfin »

ég mundi ekki þurrhumla, finnst það ekki passa. jafnvel að nota frekar goldings heldur en cascade þar sem mér finnst citrusinn ekki passa.

ég er að fá nýtingu uppá 75% og miðað við það mundi ég hafa
5.0 kg pale malt,
0.4 kg caramunich II
0.3 kg carafa special III, ekki meira
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Porter?

Post by Eyvindur »

Það er mesti óþarfi að þurrhumla Porter. Þessi stíll gengur fyrst og fremst út á malt (og ger að einhverju leyti). Að mínu mati myndi mikil humlaangan þvælast fyrir kaffi/súkkulaði/korn anganinni sem maður sækist eftir í Porter.

Þurrhumlun er eitthvað sem er stök unun í humlaríkum bjórum. En maður má ekki eyðileggja maltríka bjóra með of mikilli humlaangan. Maður þarf að átta sig á því áður en maður byrjar að pæla í bjór (jafnvel áður en maður finnur uppskrift) hvað maður vill hafa í forgrunni. Ef maður gerir IPA vill maður hafa humla, humla og aftur humla fremst, og maltið í besta falli langt á bak við. Ef maður gerir belgískt öl vill maður vanalega láta gerið njóta sín. Ef maður gerir porter er það maltið sem á að vera í sviðsljósinu. Ég er ekkert voðalega upptekinn af því að halda sig í hefðum eða stílum, en mér finnst þetta lúta að því sama og með maltið - ef maður hemur sig ekki og gerir alla skemmtilegu hlutina í einu er erfiðara að læra af því sem maður er að gera. Maður þarf að átta sig á því hvar hlutir eins og þurrhumlun eiga við og hvar ekki. Þetta er eins og með allt annað - þegar maður er búinn að ná valdi á „reglunum“ getur maður farið að brjóta þær.

Já, þetta varð aðeins lengra en þetta átti að vera. Svarið í einu orði: Nei.

;)

Já, og ég tek undir með Kristfin - sítrusinn gæti orðið leiðinlegur í porter. Enskir humlar fara betur.

Hins vegar fyndist mér allt í lagi að hafa meira en 300g af Carafa, en auðvitað fer það eftir því hvaða karakter þú ert að sækjast eftir. Mér finnst gott að hafa porterinn svolítið vel ristaðan (án þess að fá sýru og beiskju, eins og maður býst við af stout). Ef þú vilt hafa hann mildari eru 300g fín. Ef þú vilt hafa hann meira „robust“ gætirðu alveg farið aðeins ofar - trúlega ekki hærra en 500g, samt.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Bjössi
Gáfnagerill
Posts: 390
Joined: 2. Oct 2009 11:52
Location: Reykjavík

Re: Porter?

Post by Bjössi »

Takk fyrir þetta kristfin og Eyvindur fyrir gott og nákvæmt svar, þetta er endalaus skóli fyrir mann, Eyvindur bætir þekkinguna hjá mér :D
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Porter?

Post by Eyvindur »

Gott að geta hjálpað. :)
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Post Reply