Með þetta í huga þá hef ég komið mér upp húsbjór sem uppfyllir þær kröfur sem ég geri til IPA. Hann er þægilegur til drykkju, ekki allt of mikið áfengi, en ég get leikið mér að hafa eins mikið bragð og lykt af honum og ég vill. Ég hef bruggað hann nokkrum sinnum og alltaf breytt uppskriftinni því ég nota aldrei sama humalinn tvisvar. Ég leitast við að finna humla sem hafa góða karaktera og tiltölulega hátt alfa stig (hærra en 10%). Nota síðan sama humalinn í allar viðbætur. Vissulega má færa rök fyrir að betra væri að nota suma humla í ákveðin hlutverk, og aðra í önnur. En hingað til hafa allir bjórarnir komið vel út og verið vel drykkjar hæfir.
Ég byrjaði með staðlaða uppskrift af IPA úr Brewing Classic styles, breytt fyrir Weyerman kornið:
5,78 kg Pale Malt
0,45 kg Carahell
0.34 kg Munich I
0,11 kg Caramunch II
30 g humall 60 mín
26 g humall 10 mín
26 g humall 5 mín
26 g humall 0 mín
50 g humall dry hop 5 dagar
Gerja með W1056, WLP001 eða US-05 í 14 daga við 18,5 gráður.
Miðað við 22 lítra og 69% nýtni gefur þessi uppskrift 3 mæligildi sem útskýra nafnið á honum:
OG 1.066
IBU 66
Alc 6,6%
Ég tel þetta vera hina fullkomnu blöndu fyrir góðan IPA. Uppskriftin gerir ráð fyrir humlum með 14,6% alfa. Ef þið notið aðra humla þá þarf að skala til magnið miðað við alfa gildi humalsins. Sem dæmi, ef nota á Nelson Sauvin sem hefur alfa 12,1% þarf að margfalda humlamagn með 14,6/12,1=1,2. Þá verður fyrsta humlaviðbót 30x1,2=36g o.s.frv.
Ég setti uppskriftina viljandi svona opna upp til að gefa fólki lausan tauminn í sköpun á IPA. Þið getið notað einn humal eins og ég hef gert, notað mismunandi humla í mismunandi skrefum (ath bara að skala til magn hvers og eins) eða getið tekið nokkra humla og búið til kokteil (þ.e. blanda þeim í poka og hrista vel, reikna út meðaltal alfagildinsins út frá magni hvers og eins). Allir amerískir og Eyjaálfu há-alfa humlar koma til greina. Möguleikarnir eru endalausir.