Hátt FG = minni flöskusykur?

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
Post Reply
hjaltibvalþórs
Villigerill
Posts: 47
Joined: 5. Nov 2012 15:46

Hátt FG = minni flöskusykur?

Post by hjaltibvalþórs »

Sælir veriði.

Ég er með einn Bee Cave pale ale í gerjun hjá mér sem er búinn að vera í fötunni í tvær og hálfa viku, og er að stoppa í 1.020 (OG 1.051). Við lentum í smá vandræðum með hita í byrjun meskingar sem er líklega útskýringin. Ég stefni í að setja hann á flöskur í vikunni og er smeykur við flöskusprengjur. Ætti ég að setja minni sykur til kolsýringar og ef svo er hvaða magn ætti ég að setja? Þetta eru c.a. 19. lítrar.
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Hátt FG = minni flöskusykur?

Post by Idle »

Ef þið hafið lent í vandræðum með hitastigið í meskingu og gerjun stoppað snemma vegna þess, þá ættuð þið ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því að gerið taki skyndilega upp á því að borða þessar flóknu sykrur eftir að í flöskur er komið. Haldið bara áfram eins og ekkert hafi í skorist. :)
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
hjaltibvalþórs
Villigerill
Posts: 47
Joined: 5. Nov 2012 15:46

Re: Hátt FG = minni flöskusykur?

Post by hjaltibvalþórs »

Glæsilegt, takk fyrir. Ég var búinn að fá misvísandi upplýsingar um þetta á erlendu spjallborðunum. Koma flöskusprengjur þá bara ef menn misreikna sykurinnihaldið eða bottla of snemma?
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Hátt FG = minni flöskusykur?

Post by Idle »

Kannski ekki eingöngu, en það er áreiðanlega skýringin í langflestum tilvika. Ef þú ert einhvern tímann í vafa og vilt hafa allan vara á, þá mæli ég með að geyma flöskurnar í lokuðum plastkassa (hægt að fá þá nokkuð billega í Rúmfatalagernum). Þannig geturðu a. m. k. takmarkað tjón og þrif ef eitthvað gerist. :)
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Hátt FG = minni flöskusykur?

Post by hrafnkell »

Það eru 3 ástæður fyrir flöskusprengjum, sem mér dettur í hug akkúrat eins og er:

1. Bottlað of snemma - Gerjun ekki alveg búin og gerið heldur áfram eftir að það er komið í flöskuna. Sumar (óalgengar) gertegundir eiga það til að gerja, stoppa í einhvern tíma og halda so áfram.
2. Of mikill priming sykur.
3. Sýking. Gerlar komast í bjórinn sem gæða sér á flóknu sykrunum. Gerist venjulega á löngum tíma (mánuðir)
User avatar
bergrisi
Undragerill
Posts: 948
Joined: 27. Apr 2011 23:24
Location: Keflavík

Re: Hátt FG = minni flöskusykur?

Post by bergrisi »

Ég lenti einusinni í því að flaska sprakk og það var útaf því að hitinn var of hár í skúrnum mínum. Ég er með gólfhita þar og setti tvo bjórkassa undir borð og svo bilaði ofn hjá mér og hitinn í gólfinu fór í 30 stig.
Núna passa ég að vera með flöskurnar við 20 gráður.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
Post Reply