Spjallið í lægð?

Á þessum þræði geta meðlimir spjallborðsins sett fram allt sem tengist gerjun. Ennig spurt spurninga og fengið aðstoð frá öðrum meðlimum.
Post Reply
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Spjallið í lægð?

Post by Idle »

Mér þykir þögnin eftir aðalfundinn heldur þyrmandi. Allir í sumarleyfum og hættir að brugga eða skipuleggja næstu græjusmíðar? :)
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Spjallið í lægð?

Post by sigurdur »

Ég held að flestir séu bara komnir á sumarfylleríið ... m.v. fyrri reynslu, þá lýkur því í kring um nóv/des ;-)
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Spjallið í lægð?

Post by Idle »

Framleiðsla fyrri mánaða tekin til ítarlegra athugana, sem sagt. Vitanlega mega veigarnar ekki fara til spillis! :skal:
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
bergrisi
Undragerill
Posts: 948
Joined: 27. Apr 2011 23:24
Location: Keflavík

Re: Spjallið í lægð?

Post by bergrisi »

Þetta er frekar rólegt núna en menn eru eflaust með hugann við sumarið.

Afrekaði að setja hveitibjór í flöskur í gær viku seinna en ég ætlaði mér.

Ætli bjórgerðin sé ekki meira vetrarsport.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
User avatar
Plammi
Gáfnagerill
Posts: 269
Joined: 24. Mar 2012 14:09

Re: Spjallið í lægð?

Post by Plammi »

Er að gera smá toucan test, sem fær nafnið Hans Klaufi sökum hrakfalla á bruggdegi (missti aðra dósina í virtinn og fattaði þegar allt var komið í fötu að ég ætti bara einn loftlás sem ég var að nota í hvítvínslögnina) :)
Mun skila skýrslu um hann eftir átöppun þ.e. ef hann tekst ágætlega, annars verður honum sópað undir teppi.

Hvítvínið fer á flöskur um helgina og bragðaðist það bara slummufínnt þegar ég smakkaði það síðast.

Better Brew bjórinn er orðinn vel drykkhæfur, loksins komin þokkaleg kolsýra í hann og súra bragðið nánast horfið. Tek samt eftir því að hann er miklu betri í 330ml flöskunum heldur en 500ml. Notaði coopers carb drops sem ég þurfti að skera í helminga fyrir 500ml flöskurnar, kannksi að það hafi einhver áhrif. Mun allavega ekki nota þessa carb drops aftur, mikill peningur fyrir lítinn ávinning.
Í gerjun:
Á flöskum/Kút: Very Hoppy Saison
Næst á dagskrá: Zombie, Hádurtur I revisited
Hans Klaufi á FB
Gvarimoto
Gáfnagerill
Posts: 176
Joined: 13. Mar 2011 20:03

Re: Spjallið í lægð?

Post by Gvarimoto »

Já sammála með BetterBrew, ég gerði IPA fyrir einhverju síðan og hann er rétt núna klár í kæli, mér finnst hann ekkert það spes samt.
Ég mæli samt með því að þú farir að sjóða ca 500ml vatn og setja um 150gr sykur út í og fleytir svo bjórnum ofan á það í annari fötu, hef gert þetta síðustu skipti og þú sparar góðan tíma á þessu plús það fer nákvæmlega jafnt um allan vökvan :)

Svo var ég að setja á flöskur í gær fyrsta AG Hvíta sloppinn, smakkaðist rosalega vel :)
Í fyrradag sauð ég BeeCave uppskriftina en átti aðeins við humlana, setti aðeins meira en skv uppskrift sem ætti að virka fínt því OG var mælt 1.054
Svo pantaði ég meira frá brew.is, Cascade/Amarillo bjór sem ég er pínu spenntur fyrir :)

Fékk sendingu að utan um daginn sem innihélt m.a flöskusprautara, StarSan brúsa (i love it) meskipoka og humlapoka ásamt 4 krönum til að setja á föturnar mínar :)
Í Gerjun:
Á Flöskum: Uppfærður Kit bjór, BeeCave
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Spjallið í lægð?

Post by hrafnkell »

Þetta róast aðeins á sumrin hugsa ég... Sérstaklega þegar þaðer búið að vera svona gott veður, þá nennir maður minna að brugga.

Ég þarf að drífa í að henda í 2-3 laganir asap, afmæli í ágúst og möst að eiga nóg af öli fyrir það :)
User avatar
Plammi
Gáfnagerill
Posts: 269
Joined: 24. Mar 2012 14:09

Re: Spjallið í lægð?

Post by Plammi »

Gvarimoto wrote:Ég mæli samt með því að þú farir að sjóða ca 500ml vatn og setja um 150gr sykur út í og fleytir svo bjórnum ofan á það í annari fötu, hef gert þetta síðustu skipti og þú sparar góðan tíma á þessu plús það fer nákvæmlega jafnt um allan vökvan :)
Það er einmitt á dagskránni að tækla þetta svona.
Í gerjun:
Á flöskum/Kút: Very Hoppy Saison
Næst á dagskrá: Zombie, Hádurtur I revisited
Hans Klaufi á FB
Post Reply