Sælir félagar.
Við erum tveir ný byrjaðir. fórum beint í All-Grain, Byrjendakitt frá brew.is.
Fyrsta tilraun komin á flöskur (Bee Cave) og að stóru leyti uppúr þeim aftur . heppnaðist prýðilega.
Önnur Bee Cave lögun komin af stað og Hvítur Sloppur (http://www.brew.is/oc/HviturSloppur) á dagskrá á morgun.
Talandi um Hvítan slopp, lumar einhver á frekari leiðbeiningum, meski hita, tíma, humlun og þess háttar?
Kveðja
Magni