[SELdUR] 50 lítra bjórkaggasuðukútur til sölu

Ertu með eitthvað til sölu eða vantar þig eitthvað til að fullkomna gerjunina? Allt geriltengt má auglýsa eða óska eftir hér.
Til að einfalda leitina, setjið [Til Sölu], [Óskast] eða [Skipti] fyrir framan titilinn á þræðinum.
Forum rules
Til að einfalda leitina, setjið [Til Sölu], [Óskast] eða [Skipti] fyrir framan titilinn á þræðinum.
Post Reply
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

[SELdUR] 50 lítra bjórkaggasuðukútur til sölu

Post by kristfin »

er með þennan fína 50 lítra becks kút til sölu. (áður en einhver spyr, þá er hann ættaður frá þýskalandi og kom með togara til landsins fyrir mörgum mörgum árum)

ég er búinn að opna hann að ofan, gera gat fyrir elementið og fyrir krana.

kúturinn er til sölu á 10 þúsund, nema það sé slegist um hann, þá er það hæsta boð.

einnig get ég selt 5.5kw element með á 5 þúsund.

það sem verðandi eigandi þarf að gera er (gefið að hann sé með tommu skrúfgangs element):

* fá sér 1" ryðfría stoppró og o-hring í landvélum til að skrúfa elementið fast (gæti verið að kalli ætti svoleiðs auka síðan hann var að smíða pottinn sinn)
* fá sér 1/2" ryðfrían krana, getnumtaksmúffu, 2 skinnur, pakkningar, hné og 1/2 " SPT yfir í 1/2" kónatengi og koparrör til að tengja krana sem sýgur uppúr botninum.
* tala við halldór á brew.is og kaupa PID controller
* tengja rafmagnið
* brugga inn í eilífðina

ef síðan á að nota BIAB, mæli ég með að gera að auki:
* mixa falskan botn
* útbúa lok á pottinn úr krossvið eða korki og mixa hitamæli niður í gegnum það.
* sauma biab poka
* einangra pottinn og klæða

á myndunum er krani kominn í, ég get selt hann með gegnumtaksmúffu og tilbehör á 2 þúsund.

Image
Image
Image

sendið mér línu á kristfin@gmail.com (ég er með svo klénan síma að hann ræður illa við að skoða ep, þannig að ef þið viljið athygli, senda póst)
Last edited by kristfin on 13. Oct 2011 22:59, edited 1 time in total.
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: 50 lítra bjórkaggasuðukútur til sölu

Post by hrafnkell »

kristfin wrote:...
* tala við halldór á brew.is og kaupa PID controller
...
Hver er halldór á brew.is? :D
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: 50 lítra bjórkaggasuðukútur til sölu

Post by kristfin »

hrafnkell wrote:
kristfin wrote:...
* tala við halldór á brew.is og kaupa PID controller
...
Hver er halldór á brew.is? :D
jedúdduamía.

sorry, hrafnkell. var eitthvað utan við mig :drunk: