Ég hef verið að horfa í kringum mig með almennileg bjórglös. Auðvitað er það til að æra óstöðugan að opna þessa umræðu (hver bjór á sitt glas og allt það) en það sem ég var að velta fyrir mér eru glös frá RV sem eru túlipanalöguð. Skildist að það væru frekar góð all-round glös. Þá eru þau auðvitað ekki til hjá þeim og óvíst hvenær þau koma aftur. Veit einhver hér um eitthvað svipað? Hvar hafið þið verið að kaupa glös og hvað hefur reynst vel?
ViTo brugghús
Næst: Tripel
Í gerjun: Saison, Porter
Á kút: APA, Tunnuþroskaður stout
Á flösku: Haugur
Buy a man a beer and he wastes an hour. Teach a man to brew and he wastes a lifetime.
Ég er að bíða eftir að fá Mikkeller glös, aðalega þessi 0.4l tulip, getur séð það hér http://www.mikkeller.dk/index.php?id=51 ... d=6&land=0" onclick="window.open(this.href);return false; - á að vera á leiðinni og væntanlega í hús í næstu viku. Verða fáanleg í Járn og Gler - skútuvogi. Pantaði reyndar ekkert rosalega mikið magn.
Þetta var víst sent með skipi en ekki flugi þannig þetta tekur eitthvað lengri tíma en ég hélt. Ég læt vita þegar þau koma, svona ef einhverjir eru áhugasamir