Maris Otter

Á þessum þræði geta meðlimir spjallborðsins sett fram allt sem tengist gerjun. Ennig spurt spurninga og fengið aðstoð frá öðrum meðlimum.
Post Reply
kalli
Gáfnagerill
Posts: 440
Joined: 9. Jan 2010 09:43
Location: Hafnarfjörður

Maris Otter

Post by kalli »

Hvar fæ ég Maris Otter malt? Má nota eitthvað annað í staðinn?
Life begins at 60....1.060, that is.
User avatar
karlp
Gáfnagerill
Posts: 305
Joined: 8. May 2009 00:27

Re: Maris Otter

Post by karlp »

You can normally get away with just regular pale ale malt.

If you want real Marris Otter, you'll need to import it from one of the british shops. (Otherwise it will have been imported already from britain to wherever you're shopping) It's just a specific pale barley breed. (There's dozens of them, all tasting _slightly_ different)
on tap: Nothing! new beer fridge in planning
gassing/maturing: bad beers growing up to maybe be good beers
Fermenting: nothing!
kalli
Gáfnagerill
Posts: 440
Joined: 9. Jan 2010 09:43
Location: Hafnarfjörður

Re: Maris Otter

Post by kalli »

Takk fyrir það. Ég nota bara Pale Ale.
Life begins at 60....1.060, that is.
User avatar
OliI
Kraftagerill
Posts: 70
Joined: 28. Aug 2010 10:42

Re: Maris Otter

Post by OliI »

Ég var einhverntíma í sömu hugleiðingum, þú getur googlað "maris otter substitute" eða þvíumlíkt, það eru þónokkrir sem hafa spurt sömu spurningar.
Eftir netrápið endaði ég á að setja pale + 5% heimaristað biscuit (Pale malt í 175°C í 15mín).
Ég var hæstánægður með útkomuna en ég hef ekki guðsgræna glóru um hversu nálægt ég var Maris Otter.
kalli
Gáfnagerill
Posts: 440
Joined: 9. Jan 2010 09:43
Location: Hafnarfjörður

Re: Maris Otter

Post by kalli »

OliI wrote:Ég var einhverntíma í sömu hugleiðingum, þú getur googlað "maris otter substitute" eða þvíumlíkt, það eru þónokkrir sem hafa spurt sömu spurningar.
Eftir netrápið endaði ég á að setja pale + 5% heimaristað biscuit (Pale malt í 175°C í 15mín).
Ég var hæstánægður með útkomuna en ég hef ekki guðsgræna glóru um hversu nálægt ég var Maris Otter.
Já, það væri gaman að prófa þetta. Ég skelli smá malti í ofninn. Svo væri gaman að panta Maris Otter einhverntíma og prófa það.
Life begins at 60....1.060, that is.
User avatar
gunnarolis
Undragerill
Posts: 563
Joined: 23. Mar 2010 16:44

Re: Maris Otter

Post by gunnarolis »

Þegar Ölvisholt var að nota Simpson malt (man ekki hvort þeir eru í Weyermann eða Simpson núna) fluttu þeir einusinni inn slatta af maris otter. Það voru nokkrir sem fengu sekki af því...

Mín illa balanceraða paleta gat ekki fundið muninn á öli brugguðu úr Maris Otter, en það er sennilega bara af því að ég er sveitalarfur.

Passaðu samt ef þú heimaristar malt að það er betra að láta það jafna sig í 1-2 vikur áður en það er notað skv radical brewing. Ég hef heimaristað malt eftir þeirri bók með mjög góðum árangri, það smakkaðist nákvæmlega eins og keypt biscuit malt (sem plimmó strákarnir eru með á lager).
Næst: Bock, Pilsner
Í Gerjun : Brett'd Dubbel, Orval, Flemish Red, Lambic Mk1
Á flösku : Dubbel, Amarillo Smash
Á kút : Rauchbier Märzen.
Post Reply