Hvar sjóðið þið ?

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
Post Reply
User avatar
atax1c
Gáfnagerill
Posts: 247
Joined: 17. Apr 2010 18:42

Hvar sjóðið þið ?

Post by atax1c »

Langar að forvitnast um ykkur sem eruð með suðukatla með elementum eins og ég. Hvar sjóðið þið ?

Ég hef verið að sjóða út á svölum útaf uppgufun en það er leiðinlegt að þurfa stundum að fresta bruggdegi útaf veðri :)

Fyllist íbúðin af gufu eða eru einhverjir hérna sem sjóða bara inni í hlýjunni ?
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Hvar sjóðið þið ?

Post by Eyvindur »

Ég er reyndar með gamlan þvottapott. Ég er svo heppinn að vera með stúdíó og skrifstofu úti í bílskúr (sem er ekki bílskúr lengur), og ég geri þetta allt saman þar. Það verður helvíti mikil gufa, þannig að ég hef oftast opið í gegn (dyr sitthvorum megin). Ef mér verður of kalt loka ég í smá stund og læt gluggana duga, en ég verð að opna öðru hverju, því það verður ansi rakt annars (og ég er með fullt af hljóðfærum og raftækjum sem ég vil ekki að skemmist). Uppgufunin hjá mér er reyndar yfir meðallagi, þetta væri kannski skárra ef ég væri með 4 lítra eða minna - en ég er í kringum 6 held ég (mælingin var ófullkomin á sínum tíma - hef ekki náð að gera nýja).
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
atax1c
Gáfnagerill
Posts: 247
Joined: 17. Apr 2010 18:42

Re: Hvar sjóðið þið ?

Post by atax1c »

Já ég er einmitt með 6+ lítra uppgufun...
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Hvar sjóðið þið ?

Post by Eyvindur »

Ef þú getur verið nálægt svölunum og opnað út gæti það alveg gengið, samt. Stóra spurningin er samt hvort þú býrð einn. Ég hef einu sinni bruggað inni í íbúðinni og konan var mjög nálægt því að kyrkja mig í svefni eftir það. Lyktin fer misvel í fólk (og hún festist í húsgögnum - you have been warned).
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
atax1c
Gáfnagerill
Posts: 247
Joined: 17. Apr 2010 18:42

Re: Hvar sjóðið þið ?

Post by atax1c »

Ætli maður verði bara ekki að láta veðrið ráða og brugga þegar það er gott... :fagun:
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Hvar sjóðið þið ?

Post by Eyvindur »

:fagun: Mottumars.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
anton
Gáfnagerill
Posts: 248
Joined: 10. Jun 2010 00:06

Re: Hvar sjóðið þið ?

Post by anton »

Bílskúr, við "litlu dyrnar" en ekki galopið. Opinn gluggi hinummegin. Hef ekki orðið var við of mikinn raka...annarstaðar en í suðunni.

Lygtin er góð, finnst mér, en misjafnt jú hvað fólki finnst. Hún er svona 1-2 daga að fara...
User avatar
valurkris
Gáfnagerill
Posts: 262
Joined: 29. Jul 2009 06:47
Location: Kópavogur

Re: Hvar sjóðið þið ?

Post by valurkris »

ég notast við svalirnar
Kv. Valur Kristinsson
User avatar
smar
Villigerill
Posts: 42
Joined: 1. Jul 2010 07:42
Location: Selfoss

Re: Hvar sjóðið þið ?

Post by smar »

Firsta suðan var gerð í eldhúsinu, konan mín er rétt nýbúin að fyrirgefa mér :)
Núna er allt soðið á svölunum, en í framtíðini ætla ég að setja sveran barka á lokið fyrir suðutunnuna og leiða út um gluggan.
Smári
Villigerill
Posts: 23
Joined: 1. Dec 2010 14:07

Re: Hvar sjóðið þið ?

Post by Smári »

Ég sýð í stofunni í lítilli stúdentaíbúð án mikilla vandræða. Að vísu rétt upp við opna svalahurð.

Ekki finnst mér nú lyktin vera mikil eða þrálát. Hátíð miðað við skötusuðu!
addi31
Villigerill
Posts: 36
Joined: 2. Dec 2010 22:49

Re: Hvar sjóðið þið ?

Post by addi31 »

Ég sauð síðast inn í eldhúsi með 2 glugga opna. Fannst lykti ekki svo svakalega fyrr en konan kom heim. Setti mjög strangar reglur um að allt svona væri bannað í nánustu framtíð. Þegar við vöknuðum daginn eftir var öll lykt farin og hún orðin rólegri (var að koma heim af erfiðri kvöldvakt) þá sá hún að sér og fannst það ekki svo slæmt að brugga í eldhúsinu :skal: :skal:
arnarb
Gáfnagerill
Posts: 242
Joined: 14. Jun 2009 22:30

Re: Hvar sjóðið þið ?

Post by arnarb »

Ég brugga alltaf í eldhúsinu. Það kemur mikil lykt af þessu en ég er með opna svalahurð og glugga til að fá flæði. Er einnig með barka sem ég leiði að glugganum til að minnka enn frekar.

Svo er allaf gott að brugga þegar konan er ekki heima það kvöldið :)
Arnar
Bruggkofinn
anton
Gáfnagerill
Posts: 248
Joined: 10. Jun 2010 00:06

Re: Hvar sjóðið þið ?

Post by anton »

haha... Hað er málið með þessar konur...
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Hvar sjóðið þið ?

Post by Idle »

Ég brugga í eldhúsinu. Persónulega finnst mér lyktin einstaklega ljúf, en konan er ekki á sama máli. Hún er þó ósköp þolinmóð gagnvart þessu áhugamáli mínu, blessunin. Við höfum ekki orðið vör við að lyktin festist neitt sérstaklega í húsgögnum eða klæðnaði. Áður, þegar ég sauð í potti á eldavélinni, þurfti ég að loka öllum gluggum til að viðhalda suðunni á ~20 lítrunum. Nú hef ég hinsvegar glugga og jafnvel svaladyr opnar þegar ég sýð í 60l. tunnunni. ;)
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Hvar sjóðið þið ?

Post by Eyvindur »

Það er ástæða fyrir því að eiginkonur eru kallaðar She Who Must Be Obeyed.

Þetta á það til að festast svolítið í sófanum sem ég er með í skúrnum hjá mér. En ekkert varanlega - fer eftir 2-3 daga.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Post Reply