Hér skal eingöngu skrá uppskriftir sem hafa verið prófaðar og gefið góða raun að mati bruggara, vina og/eða vandamanna. Nafn bjórstíls skal taka fram í titli þráðar. Dæmi: "Hvítur sloppur – Belgískur Hveitibjór"
Ég setti saman uppskrift að lager, á að vera í helles stíl. Er að notast við það efni sem ég á, það hefði líklega verið betra að nota ljósara pilsner malt sem grunn, en það verður að bíða næstu ferðar í Ölvisholt.
Ætla að henda gerinu í frekar heitan virt miðað við lager, svona um 18 gráður og henda svo í bjórkælinn og láta gerjast við um 9-11 gráður í 2-3 vikur, lagering fer svo fram við ca. 3 gráður í amk 4 vikur.
23 lítra skammtur
4,00 kg Pale Malt (Weyermann) (3,3 SRM) Grain 82,47 %
0,45 kg Munich I (Weyermann) (7,1 SRM) Grain 9,28 %
0,20 kg Caramel Malt - 10L (Briess) (10,0 SRM) Grain 4,12 %
0,20 kg Carapils (Briess) (1,5 SRM) Grain 4,12 %
1,00 oz Hallertauer Mittelfrueh [4,00 %] (60 min) Hops 12,1 IBU
1,00 oz Hallertauer Hersbrucker [3,80 %] (15 min) Hops 5,7 IBU
0,25 tsp Irish Moss (Boil 10,0 min) Misc
2 Pkgs SafLager German Lager (DCL Yeast #S-189) Yeast-Lager
OG áætlað um 1.050
FG áætlað um 1.012
IBU um 19
litur 5,5 SRM
Ætla að nota tvöfalda skammtaskolun sem skilaði ágætis nýtni síðast eða um 77%.
Í þessari uppskrift er ekkert karamellu malt, enda á það víst ekki heima í þessum stíl skv. Jamil.
Ég átti að vísu ekki Melanoidin malt sem eykur víst bragðfyllingu, ég sleppti því bara og prófaði í staðinn að gera decoction (hlutsuða á) meskingu í fyrsta skipti, sem á að gefa meiri fyllingu/bragð en venjuleg single infusion mesking. Meskingin gekk ekki vandræðalaus fyrir sig en það var gaman að prófa og verður gaman að athuga hvort maður finni mun á bragði.
Mæli með því að lesa þetta til að kynna sér decoction meskingu ef einhver hefur áhuga: http://braukaiser.com/wiki/index.php?ti ... on_Mashing" onclick="window.open(this.href);return false;
Svo átti ég smávegis af þvegnu s-23 geri, gerði starter daginn áður, hefði þurft lengri tíma til að byggja hann upp.
Gerjun við 8-10°c í 2 vikur, virtirinn var við 10 gráður sem og starter þegar gerinu var hellt í.

Gerðirðu single Decotion?
Gerjun: Ekkert
Þroskun/Lagering: Ekkert.
Á flöskum: Raven Rock stout (idle), Blonde Ale, Jólaöl, Volgur Kölsch.
Á næstunni: Einfaldur hveiti.
Það er hægt að nota beersmith til að reikna út vatnið.
Ef þú ætlar í single decoction geturðu farið tvær leiðir, þú getur byrjað í rúmlega 50°c fyrir prótein hvíld en það er kannski ekki nauðsynleg, og tekið svo decoction til að hækka hitann upp í 66-68°c í 45-60 mín.
Getur líka byrjað meskingu eins og venjulega infusion meskingu við 66-68 °c í 60 mín og tekið svo single decoction til að ná í mashout í 75°c ca.
Málið er að lesa sér til og velja svo þá leið sem þú telur henta í hverju tilviki.
Nei ég held ekki, ég var bara ekki viss um hvernig hækkað var hitastigið á milli resta. Er ekki tekið hluta af korninu og það látið sjóða og svo er því blandað aftur saman?
Gerjun: Ekkert
Þroskun/Lagering: Ekkert.
Á flöskum: Raven Rock stout (idle), Blonde Ale, Jólaöl, Volgur Kölsch.
Á næstunni: Einfaldur hveiti.