Er að fara að leggja í, svo ég ákvað að reyna að hnoða saman koparnum á meðan ég hita vatnið í meskinguna. Það var svo sem minnstur vandinn að koma koparvafningnum í hæfilega stærð, en helv... hosuklemmurnar virðast ekki ætla að nægja. Sama hvernig ég reyni að herða að þeim, þá sprautast alltaf vatn meðfram rörinu. Hvaða aðferðum hafið þið beitt, sem hafið smíðað ykkar eigin kælispíral?
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Jæja, þetta hefur gengið að vefja spíralinn hjá þér. Til hamingju.
Ég notaði hosuklemmu sem að rétt passaði utan um slönguna (minnstu sem að ég átti). Ég prófaði að nota stærri en hún vildi bara ekki halda nógu vel.
Ég lenti líka í þessu. Lausnin hjá mér var að hafa mjög lítinn kraft á vatninu. Þetta eru frekar mjóar slöngur hjá mér, og ég stilli kraftinn bara þannig að vatnið rétt nái að fylla upp í slönguna, en þannig að það sé enginn þrýstingur. Þá sprautast ekki meðfram. Veit ekki hvort það breytir neinu fyrir þig, en þú getur gáð.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
sigurdur wrote:Ég notaði hosuklemmu sem að rétt passaði utan um slönguna (minnstu sem að ég átti). Ég prófaði að nota stærri en hún vildi bara ekki halda nógu vel.
Sama hér, nota minni hosuklemmur, þá kemur þetta örugglega. Þú getur líka prófað að teipa vel undir klemmurnar og reynt að ná jöfnum þrýsting utan um slönguna.
Ég er með klemmur sem ég þarf að vanda mig við að troða upp á slönguna með því að krumpa og skáskjóta slöngunni einhvern veginn - þær eru líklega nógu litlar. Spurning hvort að ég reyni að rétta ögn úr röraendunum svo þeir séu beinni, og slangan leggist þannig þéttar að þeim. Svo er það þetta með límbandið, prófa það líka.
Er samt viss um að ég ætlaði að gera eitthvað annað á meðan ég bíð eftir meskingunni...
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Tókst að rétta betur úr endanum, en á ekkert almennilegt límband hérna (prófaði glært "skrifstofulímband" frekar en ekkert), og þetta lítur strax betur út. Held að ég eigi gott einangrunarlímband í bílnum.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
ég er bara með standard 3/8" koparrör sem ég setti garðslöngu á og hosuklemmu. rörið er reyndar svona 2" iinní slönguna. hef ekki átt í neinum vandamálum. planið er reyndar að silfurkveikja nippla á spíralinn
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
já, bara skella slöngunni einhverja 5cm kanski upp á og herða bara andskoti vel með hosuklemmu sem passar.. slangan þarf líka helst að passa bara rétt yfir
simple as that
Í gerjun : Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
Ég keypti 1/2" mjúkt koparrör (1m) um daginn og það var sama metraverð á 1/2" metranum og 3/8" metranum hjá Íshúsinu. Ég veit ekki hvort að það er sama verð á þessum rörum almennt óháð stærðar en ég held að þetta sé ekki verri staður til þess að kaupa kopar.
Ég fékk 1/2" mjúkan eir hjá Landvélum (10m) á ca 16.000.-
Það var samt eitthvað undir gangverði hjá þeim. Mér ofbauð nefnilega metraverðið sem þeir gáfu upp fyrst og spurði hvort þeir ættu hitaskipti (eins og forhitarar) og fór að velta því fyrir mér hvað svoleiðis hlyti að kosta fyrir framan afgreiðslumanninn. Hann gaf mér þá ríflegan afslátt og ég fór nokkuð sáttur heim með eirrúlluna.
Í gerjun: ekkert Í lageringu á secondary: Sterkur S04 Á flöskum: ekkert Á næstunni: eitthvað meira en EKKERT!
Ég keypti mína hjá Kælitækni á góðu verði s.l. haust.
Varðandi hosurnar, þá setti ég líka eins littla og ég komst af með. Annars lak alltaf meðfram. Herti bara varlega en duglega til að halda koparnum eins heilum og hægt var.
Alveg sammála með kælinguna - þetta er algjörlega nauðsynleg græja.
Þið þurfið ekki að silfursjóða á þessi rör nippil til að festa stút á endana.
Þið fáið ykkur fittings sem kallast lauskóna og er með ró og lausum kón sem þið herðið upp á rörið með skiptilykli.
Ef þið eruð með mjúk eirrör þá verðið þið að fá það sem kallast innlegg í rörið til að það leggist ekki saman þegar þið herðið upp á fittingsinum.
arnarb wrote:Sæll.
Hvar er hægt að kaupa svona lauskóna og innlegg í rörið?
Ég keypti þetta hjá Îsleifi Jónssyni á tæplega 2.000 kr total. Svo skellti ég gardena quick disconnect tengjum framan á og hef ekki orðið var við nein lekavandamál.
Hefur einhver prófað kælispíral frá þessum? http://store.homebrewheaven.com/wort-ch ... -p947.aspx" onclick="window.open(this.href);return false;
50$ veit svo sem ekki hvað þetta kostar komið hingað heim?
Sé að koparinn virðist kosta sitt.
Kv.
S.
Attachments
indoor_wort_chiller.jpg (4.04 KiB) Viewed 41315 times
Þetta virkar svo djö. pro og menn virðast vera að borga allt að 1600kr.mtr. hérna heimafyrir utan fittings á endann +2000kr.
Þarna eru um 8mtr. og allt frágengið.
En ég veit líka að hluti af hobbíinu er að gera þetta sjálfur.
Hvað eru annars háir tollar af svona vörum?