Hitamælar

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
Post Reply
arnarb
Gáfnagerill
Posts: 242
Joined: 14. Jun 2009 22:30

Hitamælar

Post by arnarb »

Lenti í þeirri óskemmtilegri lífsreynslu að þegar ég athugaði efficiancy á meskingunni þá kom í ljós 47% nýting...Eftir að hafa sannreynt þetta með annarri mælingu þá mældi ég hitastigið með Eurocard hitamælinum mínum. Hann sýndi tæplega 70C.

Það þótti mér ansi heitt þar sem ég miðaði við 67C meskingu og 74C útskolun. Mældi samt aftur og fékk sama hitastig, 70C.

Því miður hafði ég ekki möguleika á að sannreyna hitamælinn en það kom síðan í ljós að hann var alvarlega bilaður. Sýndi 102C við suðuna en einungis 34C þegar ég stakk honum beint í sjóskafl.

Ég endaði því með því að fá minna virt en ég hafði hugsað mér - einungis 16 lítra eftir suðu. Ég fékk nefnilega lítið úr meskikerinu, lenti í "stuck sparge".

Daginn eftir fór ég að leita að hitamæli og fann einn í A4. Því miður var hann ekki með merkingum, þannig að ég þurfti að calibera hann með hitamæli sem fylgdi ofninum mínum. Ég bruggaði aftur daginn eftir með þessum nýja hitamæli og mædi nýtingun 79%...mun betra en daginn áður.

EFtir að hafa lesið þræði hérna kom í ljós að þessir hitamælar frá Eurocard, þe eru með vír, eyðileggjast þegar vírinn kemst í snertingu við vatn...sem minn greinilega lenti í.

Það er semsagt hægt að fá ódýra hitamæla í A4 (kópavogi) eða í Vínkjallaranum (1100 kr). Er búinn að fjárfesta í einum og bý í ofvæni eftir því að prófa næstu meskingu - og sjá hvaða nýtni ég fæ.

Núna er ég með 2 hitamæla og ætlunin er að tryggja að báðir séu að sýna svipaða mælingu svo ég lendi ekki í því að fá stuck sparge og bjór sem ég veit ekkert hvernig mun líta út...býð samt spenntur eftir hvernig hann bragðast, því hann lyktar nokkuð vel (American Blonde Ale).
Arnar
Bruggkofinn
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Hitamælar

Post by sigurdur »

Ég fékk gefins grill kjöthitamæli sem að hefur dugað mér ansi vel hingað til, meskjun eða grill, stendur alltaf fyrir sínu.

Tegundin er Acu-Rite, hér er slóðin, http://www.partshelf.com/ci00648.html" onclick="window.open(this.href);return false;
User avatar
arnilong
Gáfnagerill
Posts: 259
Joined: 5. May 2009 20:30

Re: Hitamælar

Post by arnilong »

Meinarðu snjóskafl?
Í gerjun: Jólaöl 2009
Í þroskun: Bláberjalambic 2007
Í flöskum: Margt
Á næstunni: Rauchbier, Alt og eitthvað belgískt brjálæði
User avatar
Andri
Undragerill
Posts: 621
Joined: 5. May 2009 23:56

Re: Hitamælar

Post by Andri »

prófaðu frekar að stinga honum í glas með mulnum klaka(eða bara snjó) og vatni og hrærðu þangað til að klakinn leysist eitthvað upp. Held að það sé ekkert nákvæm mæling að stinga honum í snjóskafl :þ

----------
Las 34°C sem 4°C en já 34°C er kjánalega stór skekkja.
Ég prófaði mælinn minn núna í snjóskafli og hann var 4,5°C. Setti svo í glas með aðalega snjó & vatni þá fór hann niður í 0°C
Í gerjun :
Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
Post Reply