Tommi V wrote:Sælir félagar. Er á leiðinni í ölvisholt til að versla malt ofl fyrir fyrsta all grain-inn . Hef smá reynslu af kittum og malt extract/humla bruggun. Hafa orðið merkilega góð sérstaklega með wyeast gerinu. Þvílík bylting á íslandi að getað verslað hráefni hjá ÖB. Áður þurfti maður alltaf að panta eða versla erlendis og áman hefur aldrei haft mikinn metnað fyrir bjór. Frábært framtak að stofna þessa síðu. Er viss um að hún mun verða lykillinn að því að lyfta Íslenskri bjórmenningu upp á mun hærra plan en hjá týpískum Eurolager. Það þarf meira en bara gott vatn til að gera afbragðs bjór.
Velkominn í hópinn, sammála þér með það að þetta sé frábært framtak hjá Ölvisholti. Þeir í ámunni sérhæfa sig í eimingu og engu öðru, selja einstaka fikturum vínkit og tilbehør.
Ölvisholt eru líka að standa sig mjög vel í því að koma nýjum hugmyndum til okkar, mér finnst þessir týpísku bragðlausu lagerbjórar ekkert vera að höfða til mín lengur. Tuborg, Víking, Gull, "Lager", Carlsberg... mér þykir samt gott að fá mér einn og einn Thule