Þá er loksins komið að því að leggja í minn fyrsta all grain um helgina, en ég er aðeins að vandræðast með hvað ég á að setja saman úr korninu og humlunum sem ég hef.
Þetta er það sem ég er kominn með en ég væri mjög glaður ef mér reyndari menn gætu sagt til hvað betur má fara.
Fermentables
Pilsner Malt 4.234 kg 64.5 % 1.9 In Mash/Steeped
Munich Malt 1.588 kg 24.2 % 3.0 In Mash/Steeped
Caramel Malt Light 0.741 kg 11.3 % 6.4 In Mash/Steeped
Hops
Czech Saaz 3.0 % 36 g 9.4 Loose Pellet Hops 60 Min
Czech Sladek 7.0 % 36 g 10.9 Loose Pellet Hops 15 Min
Czech Saaz 3.0 % 24 g 0.3 Loose Pellet Hops 1 Min
IBU 24
Þetta lítur býsna vel út. Ég myndi reyndar íhuga að skipta kannski á Saaz og Sladek þarna (hafa þann sem er með meiri alfasýru sem beiskjuhumla), en það er ekkert alveg bráðnauðsynlegt. Það væri samt forvitnilegt að sjá frekari upplýsingar (þá aðallega IBU).
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Henti í þennan áðan og allt gekk eins og í sögu
Græjurnar þræl virkuðu, PG og OG stóðst þokkalega (endaði með 1,5l minna en áætlað) og nú er gerið farið að vinna sína vinnu.
Kom mér eiginlega mest á óvart hvað þetta var allt saman einfalt.
Nú er bara að setja saman næstu uppskrift og halda áfram