Sælar dömur, ég var að panta ferð fyrir mig og kærustuna til Glasgow.
Það fyrsta sem ég gerði var að checka á netinu og finna homebrew shops og pöbba..
Var bara að pæla hvort þið vissuð um eitthvað skemtilegt að gera þarna eða í Edinborg Nenni ekki á einhverja fótboltaleiki.
Í gerjun : Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
Ég hef bara komið til Edinborgar og það er mjög skemmtilegur bær. Gaman að labba um og skoða bara, pöbb eru alls staðar og þar er mjög finn lager þarna sem fæst alls staðar en ég man ekki hvað hann heitir í augnablikinu. Laugarvegurinn þeirra heitir Queensway og er finn þar sem búðir eru bara einum megin við götuna en hinum megin er almenings garður. Rétt hjá er einnig kastalinn sem er mjög fallegeur en við fórum ekki inn að skoða hann þar sem það kostaði frekar mikið minnir mig. En við fórum í dagsferð upp hálendið og skoðuðum vísky verksmiðju sem var áhugavert. Ég drekk samt ekkert vísky en það var samt gaman að fá að skoða og komast aðeins út úr bænum.
Það er lítið mál að átta sig þarna, bara frekar lítið og nettur bær. Góða skemmtun barasta!