Ertu með eitthvað til sölu eða vantar þig eitthvað til að fullkomna gerjunina? Allt geriltengt má auglýsa eða óska eftir hér.
Til að einfalda leitina, setjið [Til Sölu], [Óskast] eða [Skipti] fyrir framan titilinn á þræðinum.
Forum rules
Til að einfalda leitina, setjið [Til Sölu], [Óskast] eða [Skipti] fyrir framan titilinn á þræðinum.
Þar sem seðlaveskið er þungt haldið af kreppusótt, og aðeins korter til jóla, hef ég ákveðið að selja kútasettið mitt.
Þetta er þriggja kúta pin lock sett frá KegConnections með öllu tilheyrandi, plús tvö aukasett af O-hringjum, "smurning" fyrir hringina, 3 Perlick kranar, og 2,5 kg kolsýruhylki (fullt), og SS "shanks" í ísskápinn/frystikistuna. Ég hef aldrei notað það, en lét þó fylla á kolsýruhylkið og lekaprófaði kútana.
Sendið mér einkaskilaboð ef þið hafið áhuga. Hér fyrir neðan eru tenglar á vörurnar hjá Keg Connection ef þið viljið sjá myndir.
Ég er til í að láta pakkann fara á 70.000 kr. fyrir jól. Endilega skjótið á mig línu ef þið viljið eignast settið (það eina sem mögulega vantar er gamall kæliskápur undir kútana, allt annað er í pakkanum).
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.