Er maður veit ekki alveg hvað maður er að gera, er best að breyta vatninu lítið sem ekkert.
Sýrustig hefur áhrif á meskingu, en það er erfitt að segja hvort að einhver gipsviðbót hefur áhrif til góðs á meskinýtingu.
Í ykkar tilfelli þá myndi ég ekki byrja að spá í áhrifum sýrustigi vatns á meskingu í fyrsta lagi fyrr en eftir að þið eruð búnir að skoða og laga allt annað í bruggferlinu hjá ykkur. En ef áhugi er fyrir því að skoða vatnið, þá er búið að búa til nokkra þræði á þessu spjallborði í kring um það.
Hér eru hlekkir á vatnspælingar
http://www.howtobrew.com/section3/chapter15.html" onclick="window.open(this.href);return false;
http://brewery.org/brewery/library/wchmprimer.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Svo er
http://braukaiser.com/" onclick="window.open(this.href);return false; en ég virðist vera í vandræðum með að tengjast inn á þá síðu.
Síðan hjá AJ DeLange er einnig mjög sniðug, en ég get ekki heldur tengst henni.
http://ajdel.wetnewf.org:81/" onclick="window.open(this.href);return false;
Ef það eru frekari spurningar um vatnsbreytingar, þá legg ég til að það verði stofnaður nýr þráður um það.