Sælir, var með á planinu að leggja í í dag. En svo er svo geggjað veður að ég nenni ekki að hanga inni þennan litla frítíma sem maður hefur!
Þá fór ég að hugsa um hvort væri ekki möguleiki að brugga úti! Er með þetta í potti á eldavél og fór að spá hvort það er ekki hægt að henda þessu á gasgrillið og dúndra í botn!.. Er einhver hérna sem hefur prófað þetta? Haldiði að þetta sé hægt eða er þetta bara út í hött?
Í gerjun: Munich Helles BIAB (gerjað með ölgeri WB06)
Á flöskum: APA bee cave BIAB, Hvítur sloppur BIAB
Á óskalistanum: Jólabjór, Lager, Hafrastout, Irish red ale, IPA, Leffe clone, vienna og partu-gyle
Hugsa að þú náir ekki suðu á gasgrilli... Myndi frekar reyna að nota rafmagnið bara ef þú getur. Gera svo ráð fyrir uppgufun og hafa lokið amk tyllt á til að það fari ekki margar pöddur í bjórinn
Hehe ok, þetta var nú líka postað í bjartsýniskasti
Í gerjun: Munich Helles BIAB (gerjað með ölgeri WB06)
Á flöskum: APA bee cave BIAB, Hvítur sloppur BIAB
Á óskalistanum: Jólabjór, Lager, Hafrastout, Irish red ale, IPA, Leffe clone, vienna og partu-gyle
Hehe vel gert. Maður þarf eiginlega að fá sér alvöru gasgræjur svo maður nenni að brugga á sumrin
Í gerjun: Munich Helles BIAB (gerjað með ölgeri WB06)
Á flöskum: APA bee cave BIAB, Hvítur sloppur BIAB
Á óskalistanum: Jólabjór, Lager, Hafrastout, Irish red ale, IPA, Leffe clone, vienna og partu-gyle
Ég hef bara farið með suðutunnuna mína (plast - rafmagn) út .. ég hafði vit á því að tengja nógu langa framlengingarsnúru í rafmagnstöfluna á sínum tíma