Ertu með eitthvað til sölu eða vantar þig eitthvað til að fullkomna gerjunina? Allt geriltengt má auglýsa eða óska eftir hér.
Til að einfalda leitina, setjið [Til Sölu], [Óskast] eða [Skipti] fyrir framan titilinn á þræðinum.
Forum rules
Til að einfalda leitina, setjið [Til Sölu], [Óskast] eða [Skipti] fyrir framan titilinn á þræðinum.
Uppfært: Ég get haldið í áhugamálið eftir allt, svo ekkert er til sölu af búnaðinum. Korn, ger og humlar mega þó fara til duglegri eigenda, þar sem ég hef takmarkaðan tíma til bjórgerðar. Leitt að láta allt þetta efni fara til spillis.
Hvað væruð þið reiðubúnir að borga fyrir eftirfarandi? Er í svolitlum erfiðleikum, og er að velta fyrir mér hvort það væri þess virði fyrir mig að selja græjurnar.
Um er að ræða:
60 l. suðutunna með þremur 2200W elementum
35 lítra meskiker (með barka)
30 lítra tunna (hugmyndin var að nota hana til að hita meskivatnið í, en hún er enn í heilu lagi - góð gerjunarfata)
BarleyCrusher með 15 punda trekt
Nokkrar (5 eða 6 minnir mig) plast gerjunartunnur, 30 lítra, með tilheyrandi (gúmmí og loftlásar)
Solarproject SP20 dæla
Þrír 5 gallon kútar með tilheyrandi gúmmí og aukahlutum ("smurning", aukasett af O-hringjum)
5 punda kolsýruhylki (mælt, fullt og vottað)
Tvöfaldur þrýstijafnari
Þrír Perlick SS 525 kranar
Um 2 kg. af ýmsum humlum
Slatti af ýmsum gertegundum (þurrger)
Heill 25kg. sekkur af Pale Ale, og nokkrir 5 kg. sekkir af ýmsum sér möltuðum (honey, biscuit o. fl) - allt óopnað
Flöskutré með skál og sprautustút. 7x9, tekur 63 flöskur.
Eflaust eitthvað fleira sem ég er að gleyma. Já, t. d. krydd, humlapokar, yfir 1.000 tappar og sitthvað annað.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Ef ég sel (fer eftir hæsta boði), þá vil ég reyna að losna við sem mest í einu (þarf umtalsverða fjárhæð á einu bretti). En velkomið að gera tilboð. Fylgist með einkaskilaboðum.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Hráefnið má allt fara, þar sem ég er ekki að fara að brugga á næstunni.
Búnaðinn væri fínt að fá tilboð í, en lofa engu um sölu (unless you make me an offer that I can't refuse!). Skýrist líklega ekki fyrr en um mánaðamótin júní, júlí.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.
Hugsa að kúta græjurnar séu allvega 70-80k virði, hugsanlega meira. Það eru margir að leita að svona, og þetta hefur hækkað slatta síðan þú keyptir þínar græjur.
Hélt það líka... Tiltölulega auðvelt að blekkja mig í svona viðskiptum.
Þetta lætur nærri lagi. Sem betur fer geymi ég allar nótur og kvittanir í sambandi við bruggið, svo ég hef við eitthvað að styðjast.
Kornið er allt um 14 mánaða. Innsiglað í upprunalegum umbúðum og geymt í lokaðri kistu við um 10°C. Humlar og ger alltaf geymdir í frysti við -12°C. Eitthvað af humlunum hefur verið opnað, en ég hef alltaf reynt að lofttæma zip-lock pokana eins og hægt er.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.