Ég hafði ekki heyrt um þennan stað en vippaði mér á mótorfákinn minn og kíkti á staðinn. Þetta er lítill og flottur staður og metnaðarfullur í bjórvali. Hellingur af flottum bjórum á flöskum. Svo átta nýjir á krana.
Frá Gæðing þá voru á krana: Lager, Pale Ale, Stout, IPA (Tumi humall sem við fengum á keppninni), og svo einn sér sem kallast Microbar. Það er víst sami og lagerinn þeirra í grunninn en með léttari humlum frá Nýja Sjálandi.
Svo var frá Kalda: Kaldi, Norðan Kaldi og að lokum Skjálfti frá Ölvisholti einnig á krana.
Svo er víst léttari IPA bjór á leiðinni sem verður litla systir Tuma Humals og mun kallast Humal-lína.
Barþjónarnir voru mjög áhugasamir þegar ég kynnti mig sem einn af meðlimum Fágunar og verðandi umsjónarmanns heimasíðunnar. Þeir vildu endilega bjóða okkur þegar þeir verða með bjórkynningar.
Skemmtileg viðbót í ört þroskandi bjórmenningu á íslandi.
Ein mynd af staðnum.