Leyfið spjallverjum að fylgjast með því sem þú ert að gerja. Skrifaðu lýsingu fyrir og eftir gerjun til að sýna okkur hvað hægt er að gera og hverju þið lendið í.
Líklega í fyrra lagi fyrir sumarbjóra, margir hverjir léttir og drekkast frekar fljótt eftir bruggun. Það væri þó alveg pæling að taka léttan saison til dæmis.
Ég er sjálfur búinn að brugga 3 bjóra úr Brewing Classic Styles upp á síðkastið (með smávægilegum breytingum). Það er nokkuð þægilegt þegar manni langar að brugga eitthvað nýtt, til dæmis nýjan stíl. En manni langar kannski að vera nokkuð viss um að uppskriftin sé góð. Mæli sterklega með þessari bók ef manni vantar innblástur
Þið feðgar eruð hrifnir af bjórum sem eru ekki langt útfyrir boxið, eruð komnir með græjurnar ykkar nokkuð á hreint og eruð komnir með góða tækni.
Ég held að þið ættuð að fara að reyna ykkur við mjög hreina þýska bjóra. Þið eruð nánast þýskir í hugarfari og ég hefði virkilega gaman af því að smakka Dusseldorf Alt frá ykkur. Hér er uppskrift.
Mæli einnig með að þið takið fleiri uppskriftir frá braukaisernum sjálfum. Sjá Hér
Næst: Bock, Pilsner
Í Gerjun : Brett'd Dubbel, Orval, Flemish Red, Lambic Mk1
Á flösku : Dubbel, Amarillo Smash
Á kút : Rauchbier Märzen.
Ég var einmitt að pæla í að gera Keiser alt. Er með smá spurningar varðandi hann:
1. Wyeast 1007, hvar get ég fengið það? virkar us-05 í staðinn? (sá það á internetunum)
2. Saaz í staðinn fyrir Spalter?
3. Skrefið þar sem Wyeast 1056 er leyft að gerjast smá í virtinum sem tekinn var frá: er þetta nauðsynlegt? Get ég sleppt því að bæta við nýju geri ef ég sleppi gelatín aðferðinni? þeas notað virtinn bara beint eins og ég myndi nota sykurlausn venjulega..
gunnarolis wrote:Saaz og Hallertauer virka örugglega fínt sem substitute fyrir Spalt humlana. Verður ekki nákvæmlega eins, en það skiptir engu í þessu tilfelli.
Hefði reyndar lúmskt gaman af því að sjá þig sannfæra gamla um að taka einn IPA.
En er einhver séns að fá Spalter hérna heima?
Sko það vill svo skemmtilega til að ef honum langar í einn bjór og mig annan þá gerum við bara báða
Benni reddar ykkur gerinu og þá eruð þið í góðum málum, us-05 gengur alveg sem ger í þetta, en 1007 eða wlp036 eða wlp029 væri mest authentic.
Það sem hann er að gera með því að taka frá virt og frysta er að fylgja reinheitsgebot, þeas að bæta engum hvítum sykri við. Þetta er bara nördapervertisminn í honum og þú getur alveg bætt sykri eins og venjulega.
Saaz og flestir hallertauer humlar ganga fínt sem skipti fyrir spaltinn.
Jú, þessi bjór er sennilega geggjaður.
Næst: Bock, Pilsner
Í Gerjun : Brett'd Dubbel, Orval, Flemish Red, Lambic Mk1
Á flösku : Dubbel, Amarillo Smash
Á kút : Rauchbier Märzen.
Minn er kominn viku á flöskur og ég smakkaði hann í gær og hann var bara mjög ljúfur og góður. Hef lítið smakkað af bjór sem er eingöngu Munich/caraMunich malt en er að fíla þennan.
Notuðuð þið Carafa 2 í ykkar? Ég sleppti því hjá mér...
Heyrðu nei þessi situr bara enn í secondary við sirka 1°c Eflaust löngu orðinn tilbúinn í kolsýringu en við höfum bara ekki gefið okkur tíma til að sinna honum neitt.
Uppskriftin breyttist mikið frá Kaiser Alt. Ég er bara ekki með hana í þessari tölvu til að pósta henni, annars hefði ég látið hana fylgja með.
Það var í henni hveiti, caramunich einhvað, aroma 120 og einhvað carafa, I eða III man það ekki alveg.
Ég reyndi svolítið að nota það sem við áttum til.
Stefnan er samt að smakka hann á morgun og jafnvel setja á keg ef við verðum duglegir.