Planið er að tappa bjór á flöskur um helgina og ég var að taka eftir því að nokkrar af flöskunum sem ég hafði hugsað mér að nota eru Bavaria flöskur með twist off stút. Hefur einhver hér reynslu af því að tappa á svona flöskur? Heldur þetta þrýstingi?
Er með svona töppunargræju ef að það skiptir einhverju máli:
Kv, Unnar.
Es. mjög gaman að ramba á þessa síðu, hefur gagnast okkur bruggfélögunum mjög mikið
Ég hef prófað Carlsberg skrúftappaflöskur með döprum árangri, nokkrar flöskur voru í lagi en aðrar kylliflatar. Ég er með eins græju og þú. Í þínum sporum myndi ég hugsanlega setja á nokkrar til að prófa, en ímyndaðu þér þá að þú sért í hlutabréfabraski að kaupa íslensk hlutabréf: ekki setja meira í þetta en þú þolir að tapa.
mig langar í svona.. hvernig væri að fá einhvern, vínkjallarann eða brew.is eða einhvern einstakling til að taka að sé að panta þetta fyrir fólk. taka eina hóppöntun þar sem fólk mundi bara fyrirframgreiða eitthvað fyrir stk.
Ég gæti alveg pantað svona ef einhverjir hafa áhuga. Það er pínu vesen með þetta að maður þarf að geyma flöskurnar á hvolfi og eitthvað svona... En væri gaman að prófa.
Gróft skotið væri stykkið hingað komið á um 700kr. Allt of mikið finnst mér - maður þyrfti að eiga amk 40stk fyrir eina lögn, 28.000kr. Frekar nota ég bara venjulega tappa
Já svoldið dýrt, en segjum að þú setjir á 20flöskur með þessum töppum og 20 venjulegar, getur þá tekið helminginn af lögninni með þér í útilegur og svoleiðis án þess að hrista upp í botnfallinu.
en 14.000kr fyrir 20 tappa er náttúrulega klikkun, en erum við ekki flestir klikkaðir?
Svo væri líka gaman að fá sent eitt stk og ath hvort það sé ekki hægt að framleiða eitthvað svipað ódýrara...
unnaro wrote:Þetta var ekkert vesen og bjórinn í þessum flöskum alveg jafn kolsýrður og hinir
Neyðist til að taka þetta til baka, átti einn skrúfutappa bjór eftir af þessum 'batch' sem ég var að opna og hann var flatari en.. já.
Ég sé litla þörf á svona sedex græju fyrir mig því botnfallið virðist alltaf bara sitja eftir í flöskunni þegar ég helli bjórnum í glas. Hvernig stendur á því að botnfallið er bara einhver þykk leðja sem situr föst á botninum, samt mjög lítið, oftast bara í kantinum.