Gelatín - "cold crash"

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by sigurdur »

Secondary meinaru?

Ég set þetta í Primary sjálfur, en sumir hafa sett þetta t.d. á sama tíma og þeir setja á secondary / keg eða flöskur með góðum árangri minnir mig.
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by kristfin »

sigurdur wrote:Secondary meinaru?

Ég set þetta í Primary sjálfur, en sumir hafa sett þetta t.d. á sama tíma og þeir setja á secondary / keg eða flöskur með góðum árangri minnir mig.
nei, ég á við að þegar ég mundi taka úr primary og setja í kútinn (ég er sjaldnast með secondary), þá mundi ég hella í primary um leið og ég mundi hívera í kútinn svo þetta myndi blandast almennilega. en kannski skiptir það nú engu máli.
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
User avatar
Höddi birkis
Kraftagerill
Posts: 81
Joined: 1. Jun 2010 09:08

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by Höddi birkis »

það getur samt varla verið verra, það er þá allavega pottþétt að það blandist vel... en einsog sigurður segjir, heitt leitar upp
Í gerjun: Coopers lager.
Framundan American pale ale og(fyrsti AG) Epplavín og Jóla glögg.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by sigurdur »

kristfin wrote:
sigurdur wrote:Secondary meinaru?

Ég set þetta í Primary sjálfur, en sumir hafa sett þetta t.d. á sama tíma og þeir setja á secondary / keg eða flöskur með góðum árangri minnir mig.
nei, ég á við að þegar ég mundi taka úr primary og setja í kútinn (ég er sjaldnast með secondary), þá mundi ég hella í primary um leið og ég mundi hívera í kútinn svo þetta myndi blandast almennilega. en kannski skiptir það nú engu máli.
Þú færð án efa pottþétta blöndun ef þú fleytir ofan á gelatínið.
Höddi birkis wrote:það getur samt varla verið verra, það er þá allavega pottþétt að það blandist vel... en einsog sigurður segjir, heitt leitar upp
Ég er ansi efins að útþynnt gelatín helst heitt allan tímann á meðan verið er að fleyta yfir, en blöndunin verður trúlega góð ef það er fleytt á gelatínið.
User avatar
Höddi birkis
Kraftagerill
Posts: 81
Joined: 1. Jun 2010 09:08

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by Höddi birkis »

já meinar það, mundi það þá hlaupa í kekki eða?
Í gerjun: Coopers lager.
Framundan American pale ale og(fyrsti AG) Epplavín og Jóla glögg.
User avatar
Höddi birkis
Kraftagerill
Posts: 81
Joined: 1. Jun 2010 09:08

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by Höddi birkis »

semsagt ef það mundi kólna á meðan væri verið að fleita yfir?
Í gerjun: Coopers lager.
Framundan American pale ale og(fyrsti AG) Epplavín og Jóla glögg.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by sigurdur »

Ég meina að þá hefur eðlisfræðilögmálið, um að heitt leitar upp, ekki lengur gildi þar sem að hitastigið verður mjög fljótt það sama á gelatínupplausninni og bjórnum. Hitastigið verður fljótara það sama í báðum vökvunum heldur en það er að flytjast yfir á milli íláta.

Til að útskýra þetta betur, það sem að hrjáir flesta er svokallað chill-haze sem að myndast þegar bjórinn er kældur niður. Það sem að veldur því er binding á haze næmum próteinum og haze næmum polyphenols við lækkun hitastigs (*). Einnig hráir oft annað lítið fljótandi efni sem að hefur ekki haft tíma til að falla niður, en fellur oft eftir töluverðan tíma í geymslu (mánuði).
Hægt er að hafa áhrif á hversu hratt efnin falla með því t.d. að kæla bjórinn eftir gerjun niður í eins lágt hitastig og þú treystir þér í. Charlie Bamforth (að mig minnir) segir víst að einn sólarhringur við -1°c sé betri heldur en vika við 0°c.

Hugmyndin á bak við að nota gelatín til að tæra chill-haze er sú að ef bjórinn er kældur niður þannig að chill-haze myndast, þá sé auðveldara að láta efni eins og t.d. gelatín bindast prótein/polyphenol og draga þau niður á botninn. Þetta hefur í för með sér að þau efni sem að mynda chill haze sitji á botninum á meðan fleytt er af og skilið efnin eftir.

Þegar bjór með þessum próteinum og polyphenols er kældur, þá myndast chill-haze. Þegar sami bjórinn er hitaður upp (t.d. látinn standa), þá losnar þessi binding og bjórinn verður aftur tær. Ef það á að fjarlægja viðeigandi efni þá ímynda ég mér að best sé að halda bjórnum eins köldum og hægt er þar til að honum hefur verið fleytt af.

Þetta er a.m.k. minn skilningur á þessu efni. Ég vona að þetta útskýri frekar en að rugla meir í ríminu. :skal:

(*) http://www.grace.com/engineeredmaterial ... ofing.aspx" onclick="window.open(this.href);return false;
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by kristfin »

þegar ég verð kominn með nýja kerfið í gang, þá fæ ég 2 kúta úr batchinu. þá væri gaman að prófa með og án gelatins.
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
User avatar
Höddi birkis
Kraftagerill
Posts: 81
Joined: 1. Jun 2010 09:08

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by Höddi birkis »

sigurdur wrote:Ég meina að þá hefur eðlisfræðilögmálið, um að heitt leitar upp, ekki lengur gildi þar sem að hitastigið verður mjög fljótt það sama á gelatínupplausninni og bjórnum. Hitastigið verður fljótara það sama í báðum vökvunum heldur en það er að flytjast yfir á milli íláta.

Til að útskýra þetta betur, það sem að hrjáir flesta er svokallað chill-haze sem að myndast þegar bjórinn er kældur niður. Það sem að veldur því er binding á haze næmum próteinum og haze næmum polyphenols við lækkun hitastigs (*). Einnig hráir oft annað lítið fljótandi efni sem að hefur ekki haft tíma til að falla niður, en fellur oft eftir töluverðan tíma í geymslu (mánuði).
Hægt er að hafa áhrif á hversu hratt efnin falla með því t.d. að kæla bjórinn eftir gerjun niður í eins lágt hitastig og þú treystir þér í. Charlie Bamforth (að mig minnir) segir víst að einn sólarhringur við -1°c sé betri heldur en vika við 0°c.

Hugmyndin á bak við að nota gelatín til að tæra chill-haze er sú að ef bjórinn er kældur niður þannig að chill-haze myndast, þá sé auðveldara að láta efni eins og t.d. gelatín bindast prótein/polyphenol og draga þau niður á botninn. Þetta hefur í för með sér að þau efni sem að mynda chill haze sitji á botninum á meðan fleytt er af og skilið efnin eftir.

Þegar bjór með þessum próteinum og polyphenols er kældur, þá myndast chill-haze. Þegar sami bjórinn er hitaður upp (t.d. látinn standa), þá losnar þessi binding og bjórinn verður aftur tær. Ef það á að fjarlægja viðeigandi efni þá ímynda ég mér að best sé að halda bjórnum eins köldum og hægt er þar til að honum hefur verið fleytt af.

Þetta er a.m.k. minn skilningur á þessu efni. Ég vona að þetta útskýri frekar en að rugla meir í ríminu. :skal:

(*) http://www.grace.com/engineeredmaterial ... ofing.aspx" onclick="window.open(this.href);return false;
þetta útskýrir allt fyrir mig :beer:
Í gerjun: Coopers lager.
Framundan American pale ale og(fyrsti AG) Epplavín og Jóla glögg.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by sigurdur »

Mynd af nýjasta bjórnum. Athugið að þetta er ekki úrhelling úr dósinni fyrir aftan ;)
Image
User avatar
Höddi birkis
Kraftagerill
Posts: 81
Joined: 1. Jun 2010 09:08

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by Höddi birkis »

Glæsilegt :D flott að sjá dósina fyrir aftan í gegn, sýnir hversu tær hann er...
Í gerjun: Coopers lager.
Framundan American pale ale og(fyrsti AG) Epplavín og Jóla glögg.
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by Oli »

Setti hálfa plötu gelatín út í 20 ltr skammt núna fyrir nokkrum dögum, útbjó það samkvæmt leiðbeiningum hér framar í þræðinum en setti beint í primary sem ég var búinn að þurrhumla, þetta virkar, bjórinn var vel tær þegar ég fleytti yfir kút í gær. Hvet menn til að prófa þetta ef þið viljið tæran bjór á stuttum tíma.
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by sigurdur »

Oli wrote:Setti hálfa plötu gelatín út í 20 ltr skammt núna fyrir nokkrum dögum, útbjó það samkvæmt leiðbeiningum hér framar í þræðinum en setti beint í primary sem ég var búinn að þurrhumla, þetta virkar, bjórinn var vel tær þegar ég fleytti yfir kút í gær. Hvet menn til að prófa þetta ef þið viljið tæran bjór á stuttum tíma.
Frábært að heyra :)
User avatar
gunnarolis
Undragerill
Posts: 563
Joined: 23. Mar 2010 16:44

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by gunnarolis »

Siggi hvað varstu að gera með dós af pilsner urqell í annari og tissjú í hinni? :shock:
Næst: Bock, Pilsner
Í Gerjun : Brett'd Dubbel, Orval, Flemish Red, Lambic Mk1
Á flösku : Dubbel, Amarillo Smash
Á kút : Rauchbier Märzen.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by sigurdur »

gunnarolis wrote:Siggi hvað varstu að gera með dós af pilsner urqell í annari og tissjú í hinni? :shock:
Ég sóða svo mikið út að ég neyðist til að vera með pappír í annarri :sing:
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by Oli »

kannski ágætt að hafa þennan þráð á HBT til hliðsjónar líka

http://www.homebrewtalk.com/f13/using-g ... ndex2.html" onclick="window.open(this.href);return false;
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
Bjössi
Gáfnagerill
Posts: 390
Joined: 2. Oct 2009 11:52
Location: Reykjavík

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by Bjössi »

Alveg brillíjant þráður
ég gleymdi að setja irish moss í minn fyrsta lager sem er núna búinn að vera í lageringu í 1 viku, við um 0°C
gelatin mun ég prófa í hvöld, fæst þetta ekki bara í bökunardeid í supermörkuðum?
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by Oli »

Bjössi wrote:Alveg brillíjant þráður
ég gleymdi að setja irish moss í minn fyrsta lager sem er núna búinn að vera í lageringu í 1 viku, við um 0°C
gelatin mun ég prófa í hvöld, fæst þetta ekki bara í bökunardeid í supermörkuðum?
Jú, þetta er bara gamla matarlímið
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
BeerMeph
Gáfnagerill
Posts: 189
Joined: 18. Nov 2009 20:27

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by BeerMeph »

Ef ég er í einstaklega þolinmóðu stuði og langar í tæran bjór þá læt ég bjór þroskast oft 3-6 mánuði á flöskum við herbergishita og færi þá síðan í kæli við 4°C í vikur eða mánuði - hefur virkar mjög vel upp á tærleika.
Gerjun: Ekkert
Þroskun/Lagering: Ekkert.
Á flöskum: Raven Rock stout (idle), Blonde Ale, Jólaöl, Volgur Kölsch.
Á næstunni: Einfaldur hveiti.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by sigurdur »

BeerMeph wrote:Ef ég er í einstaklega þolinmóðu stuði.....
Þarna hittiru naglann á höfuðið .. flestallir eru ekkert sérlega þolinmóðir, þ.m.t. ég.
User avatar
BeerMeph
Gáfnagerill
Posts: 189
Joined: 18. Nov 2009 20:27

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by BeerMeph »

hehe já ég hef lært mikið um þroskunina á þolinmæði minni sérstaklega upp á hvaða gallar lagast og hverjir ekki.

Hef komist að því að fuselbragð fer aldrei sama hvað maður lætur bjórinn þroskast (allavega í þeim 2 skiptum sem ég hef fengið fuselaðan bjór) og hitt að svona súrt bragð (acetaldehyde) hverfur hægt og bítandi. Er t.d með ljósöl sem er orðið 14 mánaða gamalt og í fyrstu var það með súrt eftirkeimsbragð sem er algjörlega horfið og í dag er þetta æðislegur bjór :).

En nóg af off topic umræðu..!
Gerjun: Ekkert
Þroskun/Lagering: Ekkert.
Á flöskum: Raven Rock stout (idle), Blonde Ale, Jólaöl, Volgur Kölsch.
Á næstunni: Einfaldur hveiti.
User avatar
atax1c
Gáfnagerill
Posts: 247
Joined: 17. Apr 2010 18:42

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by atax1c »

Aðeins að vekja þennan þráð með spurningu. Ég er með Blonde ale í gerjun núna í gler-carboy. Ég hafði hugsað mér að prófa þessa aðferð hjá honum Sigga.

Myndi kæla bjórinn í 1-2 daga, og gera svo gelatín blönduna og hella henni í glerkútinn í gegnum tregt. Eina sem ég er með áhyggjur af er hvort að glerið myndi springja og bjór útum allt ?

Eða eru þetta óþarfa áhyggjur, ef blandan fer beint í kaldan bjórinn ætti hún að kólna frekar fljótt...
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by sigurdur »

blandan hefur ekki næga varmarýmd til að hita 20+ lítra plús gler carboy að neinu frásegjanlegu marki.
Þú þarft ekkert að hafa áhyggjur af þessu. :)
User avatar
Diazepam
Villigerill
Posts: 38
Joined: 9. Mar 2010 13:54
Location: Hafnarfjörður

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by Diazepam »

Ég er að gerja 60 L af bjór núna og hef verið að lenda í þessu Chill Haze dæmi. Mig langar mikið að prófa þetta gelatín dæmi og er því búinn að lesa þennan þráð nokkrum sinnum.

Bara svo að ég klúðri þessu ekki þá langar mig að spyrja: Þú setur gelatínu í primary gerjunarkútinn eftir að hann hefur verið mjög kældur ekki satt? Ég hef síðan haft þann sið að fleyta úr prímary yfir á hreina fötu áður en ég tappa á flöskur. Myndi ég geta haldið því áfram, þ.e.a.s. fleytt af prímary (með gelatínu) og bætt við priming sykur og tappað svo á flöskur?
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Gelatín - "cold crash"

Post by sigurdur »

Ég kæli bjórinn (tekur 2-3 daga) eins nálægt -1°C og ég næ hverju sinni.
Ég set svo gelatínið í bjórinn og leyfi því að vinna vinnuna sína í nokkra daga (3-4 daga).
Svo fleyti ég yfir í átöppunartunnuna þegar ég er tilbúinn.
Post Reply