Mín pæling er þessi.
Mig langar að brugga 20-25L af bjór / skipti, ekki mikið meira en það allavega og ekki mikið minna.
Hversu stórt Meskiker þarf ég?
Hversu stóran pott þarf ég?
Ég á í augnablikinu kælibox sem ég ætlaði mér að nota sem meskiker. Er ekki alveg 100% hvað það er stórt en ég held að það sé 24L.
Stæðsti potturinn minn í augnablikinu er 8.5L en ég er í smá vandræðum að finna almennilegan pott sem virkar á spanhellu (það er eina hellan mín hérna heima)
Er sniðugt að versla pott að utan?
Hvaða hitamæla notið þið? Ég keypti einn í IKEA um daginn sem var flottur en hætti að virka eftir 75% af fyrstu bruggun
Öll hjálp vel þeginn og allt álit