Er að búa til lager. Og var 1054 í upphafi fyrir rúmum 3 vikum og síðustu eina og hálfa viku hefur OG staðið í 1025. Hitastig er um 10°C geymt í kæliskáp. Gerið er S-23. Ég kíki á þetta reglulega og þegar ég opna skápinn þá virðist vatnið í vatnlásnum vera nokkuð jafnt en byrjar svo hægt og rólega að bubbla eftir að ég hef haft skápinn opin smá stund. Ég hef líka hrært 2-3 hressilega í kútnum til að koma í hann súrefni.
Er ég að gera þetta eitthvað vitlaust, því mér finnst þetta taka svolítið langan tíma og sérstaklega vegna þess að OG hefur ekkert breyst í töluverðan tíma.
Ætti ég kannski að taka lagerinn út og gerja restina við hærra hitastig.
ég hefi reyndar bara einu sinni notað s23 í lager og þá var það ekki að rokka fyrr en ég fór í 12 gráður.
en skv. lýsingunni þá hljómar þetta eins og virtinn hafi ekki fengið nóg súrefni í upphafi og sé þessvegna stopp. ef þó sótthreinsar prik og hrærir upp í botnfallinu varlega, trekkir upp í 12 gráður þá verður þetta ekkert mál.
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
Jæja, nú er ég búinn að láta kútinn standa í um 20°C síðan 1 des og nánast ekkert að gerast. Ég hrærði upp í honum.
Ég á Muntons Premium Gold ger í 6 gr pakkningum,(eina gerið sem ég á) ætti ég að prófa að leysa hluta af því upp í volgu vatni og setja út í til að klára dæmið. Eða hvað finnst ykkur.
Ég myndi kalla þetta gott og setja bjórinn í lageringarfasa, en þú ræður því auðvitað sjálfur. Þú getur prófað að setja meira ger í og vonað það besta.
Nei, ég er að meina að nú sé góður tími til að setja bjórinn í biðstöðu og leyfa honum að "lagerast" (geymast).
Þú ert án efa búinn að vera að geyma hann í u.þ.b. 2 vikur eftir að hann hætti að sýna merki um gerjun.
Ég myndi vera með bjórinn við þetta hitastig í a.m.k. eina viku í viðbót, svo mögulega setja hann á flöskur eftir það.