BREWFERM korn og gögn og gæði

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
Post Reply
kalli
Gáfnagerill
Posts: 440
Joined: 9. Jan 2010 09:43
Location: Hafnarfjörður

BREWFERM korn og gögn og gæði

Post by kalli »

Þá er að koma Brouwland pöntuninni inn í Inventory í BeerSmith. En með kornið væri gagnlegt að hafa einhverjar upplýsingar td. potential, diastatic power, dry yield og protein. Ég hef ekki getað fundið þessar upplýsingar. Lumar einhver á lausninni?
Life begins at 60....1.060, that is.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: BREWFERM korn og gögn og gæði

Post by sigurdur »

Þetta er allt belgískt, þannig að þú ættir að geta notað gögnin um belgískt korn í beersmith gagnagrunninum.

Ég sendi póst til Brouwland þar sem að ég bað um gögn um Brewferm kornið, ég skal pósta því um leið og ég fæ þau, ef ég fæ þau.
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: BREWFERM korn og gögn og gæði

Post by Idle »

Ég veit að allt korn sem ég pantaði er upprunnið frá Weyermann. Pale Ale, og nokkrir fimm kílóa sekkir af ýmsu sérmalti. Það er nú þegar allt inni í BeerSmith hjá mér.

Þetta er ekki allt belgískt. Tekið er fram við hverja korntegund (a. m. k. þær sem ég skoðaði fyrir pöntun) hvaðan þær eru.
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: BREWFERM korn og gögn og gæði

Post by sigurdur »

Ha, er BrewFerm maltið ekki allt belgískt?

Jæja, þá þurfið þið væntanlega að lesa vel á pakkningarnar áður.
Gagnablöðin koma samt hingað, ef ég fæ þau.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: BREWFERM korn og gögn og gæði

Post by sigurdur »

Jæja, loksins loksins.
Hér eru gögnin sem að ég fékk frá Brouwland um Brewferm kornið.

Þarna eru allar upplýsingar sem að þarf að setja í Beersmith, eða eitthvað annað forrit.

Athugið þó að litagildi í EBC er ekki það sama og SRM gildi.

Formúlan til að breyta EBC í SRM er eftirfarandi

Code: Select all

SRM = EBC * 0.508
Heimild: http://en.wikipedia.org/wiki/Standard_Reference_Method" onclick="window.open(this.href);return false;
Attachments
brewferm malt specs.pdf
(147.2 KiB) Downloaded 571 times
kalli
Gáfnagerill
Posts: 440
Joined: 9. Jan 2010 09:43
Location: Hafnarfjörður

Re: BREWFERM korn og gögn og gæði

Post by kalli »

Glæsilegt. Takk fyrir það.
Life begins at 60....1.060, that is.
anton
Gáfnagerill
Posts: 248
Joined: 10. Jun 2010 00:06

Re: BREWFERM korn og gögn og gæði

Post by anton »

Æði!
Ég er að vona að sá munur sem virtist vera á mælingu á OG í raun og OG skv beersmith um helgina hjá mér hafi verið útaf því að ég var líklega að nota kolvitlausar skilgreiningar í beersmith .. en ekki afþví að nýtnin var léleg :)

Ef einhver er búinn að hamra þetta inn í beersmith gæti sá hinn sami sett beersmith extension skrá hér (.bsm)
User avatar
andrimar
Kraftagerill
Posts: 148
Joined: 3. Jun 2009 12:26
Location: Miðbær

Re: BREWFERM korn og gögn og gæði

Post by andrimar »

sigurdur wrote:Jæja, loksins loksins.
Hér eru gögnin sem að ég fékk frá Brouwland um Brewferm kornið.

Þarna eru allar upplýsingar sem að þarf að setja í Beersmith, eða eitthvað annað forrit.

Athugið þó að litagildi í EBC er ekki það sama og SRM gildi.

Formúlan til að breyta EBC í SRM er eftirfarandi

Code: Select all

SRM = EBC * 0.508
Heimild: http://en.wikipedia.org/wiki/Standard_Reference_Method" onclick="window.open(this.href);return false;
Ein spurning í framhaldi. Vitum við hvernig þessi EBC gildi eru fengin? Því það virðist víst skipta máli uppá SRM <-> EBC útreikningana. Sbr. þessi umræða á HBT http://www.homebrewtalk.com/f128/ebc-sr ... rs-111374/" onclick="window.open(this.href);return false;
Kv,
Andri Mar
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: BREWFERM korn og gögn og gæði

Post by sigurdur »

andrimar wrote:Ein spurning í framhaldi. Vitum við hvernig þessi EBC gildi eru fengin? Því það virðist víst skipta máli uppá SRM <-> EBC útreikningana. Sbr. þessi umræða á HBT http://www.homebrewtalk.com/f128/ebc-sr ... rs-111374/" onclick="window.open(this.href);return false;
Ég veit ekki hvernig EBC gildið var fundið hjá BrewFerm.
Ég sendi þeim tölvupóst en ég veit ekki hvort að ég fái gott svar.

Við skulum byggja á því að þeir séu með puttann á púlsinum og hafi uppfært búnað og formúlur eftir 1991 með heiminum.
Prófaðu bara að nota þessi gildi.
User avatar
andrimar
Kraftagerill
Posts: 148
Joined: 3. Jun 2009 12:26
Location: Miðbær

Re: BREWFERM korn og gögn og gæði

Post by andrimar »

Já held það sé skynsamlegast. :)
Kv,
Andri Mar
Post Reply