Barley crusher - hvernig mótor?

Hér má ræða allt er viðkemur græjum til gerjunar. Segðu okkur frá skemmtilegri heimasmíði (DIY) eða áhugaverðum tækjum sem þú rakst á eða fékkst þér.
Post Reply
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Barley crusher - hvernig mótor?

Post by hrafnkell »

Nú fyrst ég er byrjaður að vesenast með brew.is, þá vantar mig leið til að mala kornið fyrir viðskiptavini.

Ég á barley crusher, en vandamálið er að borvélin sem ég á meikar ekki að snúa crushernum nógu hægt til að kornið tætist ekki. Ansi líklegur til að bræða úr henni nema fyrir lítið magn.

Hvernig get ég reddað mér einhverjum mótor eða einhverju til að nota við crusherinn? Helst ódýrt auðvitað :)
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Barley crusher - hvernig mótor?

Post by Idle »

Ég rakst á áhugaverðan þráð um þetta nýverið, en finn hann ekki aftur í fljótu bragði. Þangað til er HBT a. m. k. óþrjótandi uppspretta upplýsinga.

http://www.homebrewtalk.com/f11/motoriz ... her-55049/" onclick="window.open(this.href);return false;
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Barley crusher - hvernig mótor?

Post by kristfin »

þú getur alltaf sett sveif. ef þeir sem kaupa eru ákafir, eru þeir enga stund að mala
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Barley crusher - hvernig mótor?

Post by Idle »

kristfin wrote:þú getur alltaf sett sveif. ef þeir sem kaupa eru ákafir, eru þeir enga stund að mala
Sveifin fylgir, svo það er vissulega möguleiki! Örlítil líkamsrækt í leiðinni. ;)
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Barley crusher - hvernig mótor?

Post by hrafnkell »

úff það væri ekki alveg í það bjóðandi, að mala 10kg+ með sveifinni... Þetta tekur óstjórnlega langan tíma, ég hef prófað það :)
User avatar
Andri
Undragerill
Posts: 621
Joined: 5. May 2009 23:56

Re: Barley crusher - hvernig mótor?

Post by Andri »

Getur fundið fullt af mótorum í sorpu, þurrkaramótorar t.d.
En þú þarft þá líklegast að fá hjól til að lækka rpmið
Áttu ekki einhvern ættingja sem á gíraðann rafmagnsbor ( ekki rafhlöðu ) sem er kominn til ára sinna.
Ég ætla að checka útí bílskúr og gá hvort ég eigi eitthvað til

http://www.youtube.com/watch?v=yORXoQHR ... re=related" onclick="window.open(this.href);return false;
Í gerjun :
Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
Post Reply