Drýsill (Extract Brown Ale/Bitter/eitthvað í þá áttina)

Leyfið spjallverjum að fylgjast með því sem þú ert að gerja. Skrifaðu lýsingu fyrir og eftir gerjun til að sýna okkur hvað hægt er að gera og hverju þið lendið í.
Post Reply
User avatar
Classic
Gáfnagerill
Posts: 318
Joined: 18. Feb 2010 21:14
Location: Reykjavík
Contact:

Drýsill (Extract Brown Ale/Bitter/eitthvað í þá áttina)

Post by Classic »

Þessi var getinn í gærkvöldi:

Code: Select all

 Drysill - Extra Special/Strong Bitter (English Pale Ale)
================================================================================
Batch Size: 20.000 L
Boil Size: 11.000 L
Boil Time: 1.000 hr
Efficiency: 50%
OG: 1.054
FG: 1.011
ABV: 5.6%
Bitterness: 28.4 IBUs (Tinseth)
Color: 15 SRM (Morey)

Fermentables
================================================================================
                       Name        Type    Amount Mashed Late Yield Color
         Cara-Pils/Dextrine       Grain 200.000 g     No   No   72%   2 L
 Caramel/Crystal Malt - 60L       Grain 150.000 g     No   No   74%  60 L
        Chocolate Malt (UK)       Grain  90.000 g     No   No   73% 450 L
          Light Dry Extract Dry Extract  1.361 kg     No   No   97%   8 L
          Light Dry Extract Dry Extract  1.361 kg     No  Yes   97%   8 L
Total grain: 3.162 kg

Hops
================================================================================
             Name Alpha   Amount   Use       Time   Form  IBU
          Fuggles  5.1% 14.175 g  Boil 15.000 min Pellet  4.0
          Fuggles  5.1% 14.175 g Aroma    0.000 s Pellet  0.0
 Styrian Goldings  4.6% 14.175 g  Boil 15.000 min Pellet  3.6
 Styrian Goldings  4.6% 14.175 g Aroma    0.000 s Pellet  0.0
  Northern Brewer  9.4% 20.000 g  Boil   1.000 hr Pellet 20.8

Misc
================================================================================
       Name   Type  Use   Amount       Time
 Irish Moss Fining Boil 5.000 mL 10.000 min

Yeast
================================================================================
                 Name Type Form   Amount   Stage
 Danstar - Nottingham  Ale  Dry 11.001 g Primary
Fyrsta skipti sem ég vinn með korn, ekki frá því að ég sé hálf aumur í lófunum eftir hamfarirnar við að reyna að "mala" það, sérstaklega Cara-Pils, það er grjótharður andskoti. :P Lagt í bleyti í hálftíma í grisjupoka í 3l af vatni, meðan restin af vatninu var að hitna í stóra pottinum. Hnoðað saman úr tveimur Hobgoblin clone uppskriftum sem ég fann á vefnum. Til gamans má geta þess að einkennisklæðnaðurinn á bruggdegi, er einmitt yfirleitt þessi ágæti, og vel viðeigandi bolur (eða líkur honum allavega): http://www.wychwood-shop.co.uk/images/0 ... _taste.jpg" onclick="window.open(this.href);return false;

Var kominn góður þrýstingur á kútinn áður en ég fór að sofa í gær, og bubblar nokkuð reglulega núna. Reikna ekki með öðru en að þetta verði eðalstöff :beer:
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Drýsill (Extract Brown Ale/Bitter/eitthvað í þá áttina)

Post by kristfin »

vona að þessi rokki.

ég smakkaði hobgobblin í fyrsta skipti úti í usa fyrir 2 vikum. sérlega góður.
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
User avatar
Classic
Gáfnagerill
Posts: 318
Joined: 18. Feb 2010 21:14
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Drýsill (Extract Brown Ale/Bitter/eitthvað í þá áttina)

Post by Classic »

Ég drakk talsvert af Hobgoblin þegar hann fékkst hérna, kostaði 300kall flaskan ef ég man rétt, sem var rosa dýrt í þá daga, verð sem maður borgaði bara fyrir "sparibjórana". Þónokkuð langt síðan, svo ég man voða lítið annað en fallegan lit og kómíska flösku, en það hlýtur að hafa verið talsvert í hann varið fyrst ég fílaði hann og keypti aftur og aftur, því þetta var á þeim tíma sem maður var ekki almennilega kominn á bragðið í bjórfýsnum, svo maður var gjarnan að púlla „týpíska íslendinginn“ á þetta, ef bjórinn heillaði ekki við fyrsta sopa kafaði maður ekkert dýpra í að spá í hann og stimplaði hann bara sem sudda.

Gleymdi miðanum, hann er hér. Á eftir að laga einhverjar tölur, eru núna miðaðar við "stock" upplýsingarnar í Brewtarget, nenni ekkert að klára þetta fyrr en hann er fullgerjaður svo ég hafi ca. rétta áfengisprósentu. [EDIT: Skipti myndinni út á sama nafni, svo tal um að hann sé hálfkláraður er úrelt]
Image
Gafst upp á gamla skapalóninu, enda enginn nenna til að föndra nema eina flösku upp á punt. Með þessu formi nenni ég frekar að láta miða fylgja ef ég er að gefa flöskur, og nýti plássið til að reyna að slá um mig með einhverjum pervertískum lýsingum á innihaldi flöskunnar. Var m.a.s. búinn að stela mér strikamerkjafonti einhvers staðar, ef manni skyldi detta í hug að reyna að láta flöskurnar lúkka enn meira "pro", þá væri hægt að stækka "best fyrir" rammann og troða strikamerki undir stimpilinn (sem ég á líka eftir að laga og bíður eftir átöppunardegi, hef hingað til verið að setja viðmiðið 6 mánuði eftir átöppun). :P
Last edited by Classic on 30. Sep 2010 00:24, edited 1 time in total.
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Drýsill (Extract Brown Ale/Bitter/eitthvað í þá áttina)

Post by kristfin »

flottur miði.

það er rosalega gaman að eiga miða á flösku, sem maður grefur uppúr kjallaranum mörgum mánuðum eftir bruggun. maður man ekkert hvað var að gerast í kollinum ´manni þá. síðan er maður ekki alltaf meö tölvuna á sér til að fletta upp
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
anton
Gáfnagerill
Posts: 248
Joined: 10. Jun 2010 00:06

Re: Drýsill (Extract Brown Ale/Bitter/eitthvað í þá áttina)

Post by anton »

Jamm... svo er miðinn ekki bara skraut, heldur eitthvað til að stara á ef að ekkert er í TV og maður er að fá sér einn kaldan!
User avatar
Classic
Gáfnagerill
Posts: 318
Joined: 18. Feb 2010 21:14
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Drýsill (Extract Brown Ale/Bitter/eitthvað í þá áttina)

Post by Classic »

Var að fleyta í secondary. Ljósari, áfengari og beiskari en ég hafði ætlað mér, en stefnir í þrælefnilegan bjór fyrir því. Allavega drakk ég allt mælisýnið (90ml), það hefur bara gerst einu sinni áður, svo þetta lofar góðu. Næst reikna ég samt með að bæta aðeins í karamellu- og súkkulaði maltið, og prófa að rúna beiskjuna með því að líkja eftir "first wort hops" eins og önnur uppskriftin sem ég er að elta gerir ráð fyrir. Hef séð það fyrir mér þannig að hita stóra pottinn ekki að suðu heldur bara til jafns við "meskipottinn", blanda saman við það hitastig, bæta svo í humlum og fyrri extraktpoka og hita allt saman úr þessum ca.70°C i suðu. Það er allavega það sem ég myndi gera ef ég ætlaði mér að leggja í aftur strax áður en þessi er orðinn drykkjarhæfur, en svo geta þau plön snögglega breyst þegar ég smakka hann aftur eftir 4-5 vikur kaldan og kolsýrðan...
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi
User avatar
Classic
Gáfnagerill
Posts: 318
Joined: 18. Feb 2010 21:14
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Drýsill (Extract Brown Ale/Bitter/eitthvað í þá áttina)

Post by Classic »

Hér er hann svo ljóslifandi fæddur. Kemur til með að sparka í rassa upp úr miðjum október: :skal:
Image
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi
User avatar
atax1c
Gáfnagerill
Posts: 247
Joined: 17. Apr 2010 18:42

Re: Drýsill (Extract Brown Ale/Bitter/eitthvað í þá áttina)

Post by atax1c »

Ég kann að meta það að þú gerir jafnan miða fyrir bjórinn þinn. Mér finnst líka rosalega gaman að þessu, hef þó bara gert þrjá miða til þessa :)

Edit: Gleymdi að spurja hvernig þú límir miðana á ? Ég hef prófað mjólkina góðu og virkaði vel. Hef líka prófað svona krakkalím sem er vatnsleysanlegt.

Reyndar getur blekið runnið til á venjulegum pappír, á alltaf eftir að fara með svona "pilot" blað á ljósritunarstofu og fá þannig laser ljósrit þannig að blekið renni ekki til.
anton
Gáfnagerill
Posts: 248
Joined: 10. Jun 2010 00:06

Re: Drýsill (Extract Brown Ale/Bitter/eitthvað í þá áttina)

Post by anton »

Það er líka gott ef maður hefur aðgang að WAX prentara. Þá má rennbleyta blaðið.
User avatar
Classic
Gáfnagerill
Posts: 318
Joined: 18. Feb 2010 21:14
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Drýsill (Extract Brown Ale/Bitter/eitthvað í þá áttina)

Post by Classic »

Mér finnst bara hluti af fílingnum að gera miða, og er m.a.s. kominn með miða fyrir flesta ef ekki alla bjóra sem eru á teikniborðinu, og jafnvel einhverja sem enn eru bara draumur (ekki búið að kaupa hráefnið í). Það er líka þannig að símalínur í gömlum húsum á Skólavörðuholtinu eru ekki alltaf að höndla Internetið of vel, sérstaklega þegar það eru 4 tölvur að slást um þessa litlu bandvídd sem línan ræður við, svo stundum færist dauði tíminn í tölvunni yfir í Photoshop, svona ef maður kemst allavega nógu lengi á netið til að stela mynd sem "centerpiece" í miðann. AD&D nördar sem hafa séð myndina kannast yfirleitt við Drýsilinn, þetta er víst einhver fræg teikning úr einhverri reglubókinni, en ég hef litlar áhyggjur af því hvaðan myndin kemur þar sem þetta er jú bara til gamans gert fyrir sjálfan mig og vini mina.

Ég lími þetta ýmist á með krakkaföndurlími eða föndurdoubleteipi sem vill stundum slæðast í buxnavasanum með heim úr vinnunni. Hvort tveggja rennur afar auðveldlega af eftirá. Prenta þetta bara úr venjulegum bleksprautuprentara svo maður hefur alveg séð litina renna til á flöskunum, sérstaklega ef þær eru of nálægt eldavélinni á bruggdegi, en ég er ekkert að föndra á nema eina flösku upp á punt, eða þá ef ég er að gefa flöskur (þetta síðarnefnda fór ég þó ekki að nenna fyrr en ég endurhannaði miðana sem rétthyrning), svo ég set það lítið fyrir mig.
Klassiker ölgerð, Reykjavík
Í gerjun: #fössari (California lager)
Í glasi: Svarthöfði (Imperial stout), #fössari, Snati (Northern English Brown), Apaspil (APA), Fimmta stjarnan (ABA)
Á næstunni: Jólabjór, uppsetning á kútakerfi, útskriftarveisla, halda partíinu gangandi
User avatar
Classic
Gáfnagerill
Posts: 318
Joined: 18. Feb 2010 21:14
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Drýsill (Extract Brown Ale/Bitter/eitthvað í þá áttina)

Post by Classic »

Bump á gömlum pósti í tilefni af annarri atrennu við afurðina. Trúrri uppskriftinni sem ég stal á netinu, en er löngu búinn að týna heimildinni fyrir og lítur svona út í dag:

Code: Select all

 Drysill - Extra Special/Strong Bitter (English Pale Ale)
================================================================================
Batch Size: 23.000 L
Boil Size: 11.000 L
Boil Time: 1.000 hr
Efficiency: 70%
OG: 1.054
FG: 1.011
ABV: 5.6%
Bitterness: 21.6 IBUs (Rager)
Color: 17 SRM (Morey)

Fermentables
================================================================================
                       Name        Type    Amount Mashed Late Yield Color
          Light Dry Extract Dry Extract  1.500 kg     No   No   97%   8 L
          Light Dry Extract Dry Extract  1.500 kg     No  Yes   97%   8 L
         Cara-Pils/Dextrine       Grain 250.000 g     No   No   72%   2 L
 Caramel/Crystal Malt - 60L       Grain 200.000 g     No   No   74%  60 L
        Chocolate Malt (UK)       Grain 140.000 g     No   No   73% 450 L
Total grain: 3.590 kg

Hops
================================================================================
             Name Alpha   Amount        Use       Time   Form IBU
 Styrian Goldings  4.6% 20.000 g First Wort   1.500 hr Pellet 4.3
          Fuggles  4.7% 20.000 g First Wort   1.500 hr Pellet 4.4
 Styrian Goldings  4.6% 20.000 g       Boil 30.000 min Pellet 6.4
          Fuggles  4.7% 20.000 g       Boil 30.000 min Pellet 6.5
 Styrian Goldings  4.6% 20.000 g      Aroma    0.000 s Pellet 0.0
          Fuggles  4.7% 20.000 g      Aroma    0.000 s Pellet 0.0

Misc
================================================================================
       Name   Type  Use   Amount       Time
 Irish Moss Fining Boil 5.000 mL 15.000 min

Yeast
================================================================================
                 Name Type Form   Amount   Stage
 Danstar - Nottingham  Ale  Dry 11.000 g Primary
Stolna uppskriftin er nánast eins, nema með 4,8kg af Maris Otter í stað 2×1,5kg Light DME, og af einhverri ástæðu með 15g af humlum í öllum viðbótum, en samt hærri í beiskjunni, sennilega af því ég er ekki að nota sömu reiknireglu og sá sem póstaði uppskriftinni.