Smá áfall

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
Post Reply
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Smá áfall

Post by Idle »

Upp úr miðjum maí lagði ég í nokkra bjóra. Sökum vinnu, svo sumarfrís og leti, og svo aftur vinnu (og leti), kom ég því aldrei í verk að tappa þeim á flöskur, ekki einu sinni að fleyta ofan af gerkökunum í hreinar fötur. Mér varð því ekki svo hverft við áðan þegar ég ætlaði að taka mælisýni áður en ég byrjaði átöppunina. Stækur fnykurinn sem gaus upp úr fötunum ætlaði að kæfa mig. Logsveið í nefið og niður í lungu. Þessu verður hellt niður innan stundar. Held að ég sitji á um 45 lítrum af ediki. :lol:
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
sigurdur
Æðstigerill
Posts: 1985
Joined: 8. Jul 2009 09:18
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Re: Smá áfall

Post by sigurdur »

Sjitt ..

Þú hefur ekki ákveðið að búa til tómatsósu í staðinn þá? ;-)
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Smá áfall

Post by Idle »

Nei, þessu helli ég bara niður. Lærði þó mína lexíu af þessu. ;)

Uppfært: Góðu fréttirnar eru hinsvegar þær að ég pantaði mér Barley Crusher í dag. :)
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
anton
Gáfnagerill
Posts: 248
Joined: 10. Jun 2010 00:06

Re: Smá áfall

Post by anton »

Það er umræða hér http://fagun.is/viewtopic.php?f=2&t=1104 um hvaða öl passar með skötu -- mér sýnist við vera komin með eitthvað sem er nægilega ógeðslegt til að passa með skötunni . Skata og annar skemmdur matur ætti ekki að skemma og yfrigænfa bragðið af þessum sérstæða mjöð :) :drunk:
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Smá áfall

Post by Idle »

anton wrote:Það er umræða hér http://fagun.is/viewtopic.php?f=2&t=1104 um hvaða öl passar með skötu -- mér sýnist við vera komin með eitthvað sem er nægilega ógeðslegt til að passa með skötunni . Skata og annar skemmdur matur ætti ekki að skemma og yfrigænfa bragðið af þessum sérstæða mjöð :) :drunk:
Tja... Ég myndi fremur drekka edikið eitt og sér, en að sóa því í svelgi án bragðlauka (ég borða allan "þorramat", siginn fisk, og held mikið upp á hákarl...). Kæst skata, selshreifar, vestfirskur hnoðmör og slíkt flokkast ekki undir matvæli. :D

Allt í góðu gamni; þeir sem geta komið þessu ofan í sig án þess að gretta sig eru hetjur í mínum augum. ;)
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
User avatar
kristfin
Ofurgerill
Posts: 1312
Joined: 6. Aug 2009 16:28
Location: Kópavogur

Re: Smá áfall

Post by kristfin »

bummer siggi. ég er meira í því að hella niður bjór í flöskum. þeas missa glerkúta í gólfið :)

ég get hinsvegar sagt þér að ég hefi verið að hella soldið af bjór niður. fyrstu dökku bjórarnir mínir sem fóru á flöskur hafa ekki elst vel, en ég helli þeim yfir humlabeðið mitt svo einvher njóti góðs af.
Öl ger:Þýskt (WLP029&WY1007), Belgískt (WLP500), Amerískt (WY1056), Enskt (WLP002), Írskt (WY1084)
Lager ger:Bohemian (WY2124), San Francisco (WLP810)
Annað ger:Cry Havoc(WLP862), Weihenstaphen Weizen (WY3068), Saizon (WLP565)
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Smá áfall

Post by hrafnkell »

Ég hellti niður um 100 lítrum af bjór um daginn.. Það var miður, en holræsakerfi borgarinnar nýtur góðs af.
User avatar
Andri
Undragerill
Posts: 621
Joined: 5. May 2009 23:56

Re: Smá áfall

Post by Andri »

Ég leyfi þessu alltaf að njóta vafans.. Ég er mjög nískur á áfengi :)
Ég hef geymt allskonar bjóra sem voru ekki góðir í fyrstu, Coopers bjórinn minn er fínn núna eftir tvö ár.
Siggi, smakkaðirðu edik bjórinn? :)
Í gerjun :
Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Smá áfall

Post by Idle »

Andri wrote:Ég leyfi þessu alltaf að njóta vafans.. Ég er mjög nískur á áfengi :)
Ég hef geymt allskonar bjóra sem voru ekki góðir í fyrstu, Coopers bjórinn minn er fínn núna eftir tvö ár.
Siggi, smakkaðirðu edik bjórinn? :)
Ég rak tunguna í þetta, og bragðið var hið sama og lyktin. Hreint edik. Enginn vafi þar á ferð. ;)
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
Post Reply