sælir ein létt spurning þarf að lagera við 2°c ég var búin að hugsa mér að geta gerjað í köldu vatni sem er 6.5 gráður heima hjá mér. ég var að komast að þessu núna og það setur strik í reikningin því ég seldi gamla ískápinn fyrir hálfu ári síðan og veit ekki hvernig ég get haldið svona lágu hitastigi lengi...??
lageringin fer yfirleitt fram við 0-4 gráður. þú getur lagerað við hærra hitastig og það tekur skemmri tíma, en verður ekki eins "lagerað"
ef þú setur gerjunarílátið í annað stærra og lætur renna kalt vatn ofaní það stærra, ættirðu að geta haldið 9-12 gráðum sem er fínn hiti fyrir lagergerjun.
með sömu aðferð ættirðu að geta náð að lagera við 7 gráður, sem ætti að gefa fínan bjór á 3-4 vikum