Nú er líklega ágætur tími til að huga að "jólaölinu".
Mér datt í hug að koma af stað þræði þar sem hægt væri að deila hugmyndum um hvernig stíll/uppskrift hentaði Þorláksmessuskötunni! Væntanlega bragðmikill og rammur.
Eigiði eitthvað input í þetta? (geri ráð fyrir að allir félagar fágunnar séu miklir smekkmenn og viti fátt betra en kæst skata)
Við Vestfirðingarnir fáum okkur alltaf skötu
Mér hefur fundist gott að fá bjór í dekkri kantinum og kannski aðeins sætan með skötunni, ekki of ramman. Spurning hvort að góður dunkel henti ekki vel
Það hljómar vel. Einhvern veginn grunar mig samt að gott aðventu- og hátíðaöl henti kannski ekki endilega með skötu eða mat skyldum henni. Kannski ætti Þoráksmessuöl að vera nær Þorraöli í karakter.
Dori wrote:Það hljómar vel. Einhvern veginn grunar mig samt að gott aðventu- og hátíðaöl henti kannski ekki endilega með skötu eða mat skyldum henni. Kannski ætti Þoráksmessuöl að vera nær Þorraöli í karakter.
Þórbergur Þórðarson bruggaði hina frægu Þorláksdropa (http://thorbergur.is/index.php?option=c ... &Itemid=47) fyrir Þorláksmessu, úr rúsínum, sykri og pressugeri... og drakk þá svo með ákveðinni seremóníu. Ég hef fengið ágæta versjón af þessum dropum úr vínberjum (þegar þau voru á brunaútsölu) og banönum. Væri eflaust hægt að þróa eitthvað betra með möltuðu byggi í stað sykurs.
Í gerjun: Ekkert Á flöskum: ESB Á teikniborðinu: Jólabjór
mér finnst of seint að byrja að hugsa um jólaöl. ölið mitt var bruggað í lok júni. í 2008, ég bruggað Oct 1, en var ekki tilbuið fyrir en mars.
2007, ég bruggað oct 29, og var lika ekki tilbuin fyrir en mars/april. Kansski ég var of snemma þessum ári, kannski ekki.
En, bjór sem passa vel við skata? ekki hugmynd.
on tap: Nothing! new beer fridge in planning
gassing/maturing: bad beers growing up to maybe be good beers
Fermenting: nothing!
Ég held að ég myndi velja einhvern mjög ramman bjór með skötu - IPA eða jafnvel Double IPA, mjög líklega með smá rúgi. Ástæðan fyrir því er að ég myndi vilja bjór sem sker duglega í gegnum ammóníakið, hamsatólgina og det hele. Ég held að sætur bjór gæti bara lagst ofan á skötubragðið og útkoman orðið þrúgandi. Það er minn túkall.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Ég hugsa að bjór í líkingu við Móra gæti passað vel með skemmdum mat, hann er nógu bragðmikill og flókinn til að drepa niður óbragðið af vesfirskri skötu. Enda verður skötubjór að vera þannig að við sem ekki látum plata okkur í ammoníakveisluna við langborðið, getum drukkið okkur óendanlega skemmtileg af honum einhverstaðar undan vindi.
Í gerjun: ekkert eins og er
Í hugsanaferli: Brúnöl og Irish Stout
Á flöskum: Port 'au Palmer
Bruggað: ca. 202L